Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 58
Á FERÐ UMheiminn
Sæng og koddi kr. 12.936
Rúmföt kr. 6.742
Ullarteppi
kr. 8.245
25% afsláttur af
fermingargjöfum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Það er gegnumgangandi ósk
þeirra ferðalanga sem við höfum
þjónustað á síðustu tíu árum að
þeir vilja fá að kynnast heima-
mönnum – þeir hafa áhuga á fólki.
Það er gaman að virða fyrir sér
litskrúðuga fugla eða skoða tign-
arlegar byggingar, en verðmæt-
ustu minningarnar úr ferðalaginu
tengjast iðulega fólkinu sem varð á
vegi manns.“
Þannig kynnir Viktor Sveins-
son áherslurnar hjá ferðafélaginu
Farvel (www.farvel.is) sem mun
formlega hefja starfsemi 1. mars
næstkomandi. Farvel byggir á
gömlum grunni en Viktor stofnaði
fyrir áratug ferðaskrifstofuna Órí-
ental sem er sérhæfð í ferðum til
SA-Asíu.
„Við leitumst ávallt við að
opna fólki menningu okkar
áfangastaða í gegnum mannlífið og
setjum framandi markaði eða af-
skekkt þorp ofar á listann en þjóð-
minjasöfn. Sífellt erum við að leita
að hinu einstaka – hinu óvænta,“
segir hann. „Að finna bakdyrnar
að ævintýrunum, frekar en að
troðast inn um aðalinnganginn
með öllum hinum ferðamönn-
unum.“
Ekkert land óviðkomandi
Hjá Farvel er allur heimurinn
í boði og meðal annars skipulagð-
ar ferðir til Mið- og Suður-
Ameríku, Afríku og á nýja áfanga-
staði í Evrópu. „Við urðum vör við
það hjá Óríental að fólk sem hafði
farið á okkar vegum til SA-Asíu
vildi ferðast með okkur á ný, en til
annarra heimshluta, og greinilegir
möguleikar fyrir starfsemina að
vaxa út fyrir þann ramma sem
Óríental hefur sinnt svo vel og
mun halda áfram að sinna.“
Meðal þeirra landa sem má
heimsækja með Farvel eru Perú,
Madagaskar, Marokkó, og Kosta-
ríka, svo nefnd séu örfá dæmi. Á
hverjum stað nýtir Farvel þekk-
ingu þaulreyndra íslenskra leið-
sögumanna sem þekkja áfanga-
staðinn út og inn.
„Í Marokkó og á Kúbu er það
Örnólfur Árnason sem hefur unnið
með Óríental í Asíu, t.d. stýrt
fjölda ferða til Balí í samvinnu við
Moggaklúbbinn. Á sínum tíma
gerði Örnólfur eftirminnilega út-
varpsþætti um Kúbu og Marokkó
sem nefndust Ykkar maður í Ha-
vana! og Hjá Márum. Í Perú og
Kostaríka höfum við Helga Bene-
diktsson okkur til halds og trausts
en hann hefur stýrt göngu- og
hjólaferðum Óríental til Víetnams.
Valdimar Kúld er einnig til taks í
Suður-Ameríku, hefur búið þar
lengi og ferðast víða.“
Merkilegt er að skoða hvern-
ig ferðalög Íslendinga hafa þróast
í gegnum tíðina og hvað stofnun
Farvel segir um þessa þróun.
Fyrir tveimur til þremur áratug-
um voru sólarstrandaferðirnar
toppurinn á tilverunni, þá bættust
við borgarferðirnar og nú virðist
landinn vilja ferðast langt út í
heim á framandi slóðir. Um leið
hefur aldrei verið auðveldara að
skipuleggja ferðina sjálfur, hægt
að bóka flug og gistingu með
nokkrum smellum og fá ábend-
ingar um áhugaverða við-
komustaði á netinu. Bendir Viktor
á að séðir ferðalangar hafi áttað
sig á að góð ferðaskrifstofa standi
fyrir sínu og þá ekki síst þegar
leiðin liggur til fjarlægustu heims-
hluta.
„Verðið sambærilegt við það
ef fólk skipulegði ferðina sjálft,
þrátt fyrir þá mikilvægu ráðgjöf
og vinnu sem ferðaskrifstofan
leggur til, enda kaupum við gist-
ingu, flug og aðra þjónustu á
heildsöluverði. En mest munar þó
um að góð ferðaskrifstofa veit
meira en það sem kemur fram á
Tripadvisor og kann að hjálpa við-
skiptavininum að velja og hafna,“
útskýrir Viktor og bendir á að
það sem vinsælar ferðasíður
hampa sé ekki endilega alltaf það
áhugaverðasta.
„Það getur t.d. ruglað vin-
sældalista yfir áhugaverðustu
áfangastaðina að fólk fer þangað
einfaldlega vegna þess að þeir
lentu einhvern veginn ofarlega á
lista og eru „upphitaðir“ af vin-
sældastreyminu sem ferðasíð-
urnar framkalla. Það verður eins
konar „netsefjun“ sem þýðir að
upplýsingarnar gefa kannski ekki
eins glögga mynd og þarf til að
skipuleggja vel heppnaða ferð.“
Ferðaskrifstofa eins og Far-
vel léttir líka undirbúninginn til
muna. „Það geta tugir, ef ekki
hundruð klukkustunda farið í það
að skipuleggja nokkurra daga eða
nokkurra vikna ferð á fjarlægum
stað þar sem maður hefur ekki
komið áður. Farvel sparar fólki
þessa vinnu en gætir þess um leið
að geta lagað hverja ferð að sér-
stökum óskum og þörfum við-
skiptavinarins.“
Sífellt að leita að hinu óvænta
Ferðafélagið Farvel skipuleggur klæðskerasniðnar ferðir á
framandi áfangastaði um allan heim Kúba, Perú, Kostaríka
og Marokkó meðal þeirra landa sem eru í boði
Bros Marga dreymir um að skoða Perú.Kátína Í Madagaskar. Kynni af öðru fólki skapa oft verðmætustu ferðaminningarnar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þekking Viktor segir Farvel reiða sig á sérfróða íslenska leiðsögumenn.
Með aukinni reynslu af ferðalögum virðist
smekkur fólks breytast. Viktor segir marga
Íslendinga hafa mikla og víðtæka ferða-
reynslu, og leita ekki eftir því sama og þeir
gerðu kannski í fyrstu ferðinni. „Bæði er
orðið algengara að fólk vilji ferðast til ex-
ótískra staða, en líka í styttri, vel kjarnaðar
og vandlega skipulagðar ferðir. Fyrir tíu ár-
um var það að liggja á ströndinni stór hluti
af ferðalaginu en núna vill fólk meira af ein-
hverju skemmtilegu að gera, kanna landið
og upplifa, þó oftast fylgi smá sól, sandur og
sjór með.“
Vilja kanna
og upplifa