Morgunblaðið - 25.02.2016, Qupperneq 27
stjóri Steðja og annar eigenda, segir
móttöku ferðamanna vera ört vax-
andi hluta af starfseminni.
Steðji með stærri aðstöðu
„Við gerum orðið töluvert af því að
fá til okkar hópa ferðamanna. Þeir
skipta orðið nokkrum þúsundum yfir
árið,“ segir Dagbjartur en Steðji hef-
ur verið að stækka aðstöðuna í
brugghúsinu til að geta tekið á móti
fleirum. Vonast hann til að aðstaðan
verði tilbúin með vorinu.
„Hingað koma líka vinnustaðahóp-
ar í skemmtiferð eða árshátíðarferð,
einnig erlendir ferðamenn á leið í
Húsafell og á Langjökul. Þetta hefur
mikið að segja fyrir okkur. Við meg-
um ekki auglýsa bjórinn en svona
kynningar og heimsóknir hafa mikil
áhrif. Þær styrkja líka innviði ferða-
þjónustunnar á svæðinu,“ segir Dag-
bjartur en auk þess að kynna bjórinn
frá Steðja kaupa ferðamenn einnig
minjagripi. Þá hafa þeir sýnt hvala-
bjórnum mikinn áhuga og spurt mik-
ið um hann.
Eitt nýjasta brugghúsið er Segull
67 á Siglufirði. Marteinn Haraldsson
bruggmeistari segir reksturinn fara
mjög vel af stað og viðtökur hafa ver-
ið góðar. Stefnan hefur verið tekin á
að koma tveimur heilsársbjórum inn í
verslanir ÁTVR á næstunni og einnig
að brugga árstíðabundna bjóra.
Marteinn segir fjölda ferðamanna
fara um Siglufjörð og ætlunin sé að
kynna bjórinn fyrir þeim. „Aðallega
höfum við verið að taka á móti Ís-
lendingum. Við fengum marga hópa
til okkar í desember og traffíkin er að
fara aftur af stað eftir áramótin,“
segir hann en móttökusalur og bar er
í brugghúsinu, til að taka á móti gest-
um.
Nýir eigendur eru teknir við
rekstri brugghússins í Ölvisholti í
Flóahreppi en bruggmeistarinn er
áfram sá sami. Bragi Hinrik Magn-
ússon rekstrarstjóri segir það vera í
undirbúningi að setja upp betri að-
stöðu til að taka á móti ferðamönn-
um, enda komi oft beiðnir um kynn-
ingar og móttöku. „Þetta er
sveitabrugghús og við viljum halda í
sveitastemninguna. Við ætlum okkur
að gefa ferðamönnum og heima-
mönnum færi á að kynna sér afurðir
okkar,“ segir Bragi.
Námskeið fyrir ferðamenn
Bryggjan Brugghús við Granda-
garð er jafnframt veitingahús. Þar
innandyra er bruggaður bjór og seld-
ur á staðnum. Elvar Ingimarsson
rekstrarstjóri segir stefnt að því að
tappa bjórnum á flöskur og koma í
vínbúðirnar. „Við opnuðum fyrir
þremur mánuðum og viðtökurnar
hafa verið mjög góðar. Langflestir
gestir eru Íslendingar en straumur
erlendra ferðamanna er að aukast,“
segir Elvar en Bryggjan brugghús
starfrækir einnig bjórskóla. Á mið-
vikudögum kl. 18 er námskeið fyrir
Íslendinga og kl. 20 fyrir útlendinga,
þar sem kennt er á nokkrum tungu-
málum. Elvar segir námskeiðin sæta
auknum vinsældum, ekki síst meðal
ferðamanna, sem bóka sig í gegnum
ferðaskrifstofur og hótel.
Bryggjan brugghús ætlar að halda
upp á 27 ára afmæli bjórsins til 1.
mars nk. með því að bjóða upp á bjór
á sama verði og hann var árið 1989.
Einnig verður sérstakur bjór brugg-
aður og kynntur 1. mars, þar sem
hægt verður að fylgjast með brugg-
meistaranum að störfum.
Bjórbað Bruggsmiðjan á Árskógs-
sandi, sem framleiðir Kalda, hyggst
opna bjór-spa líkt og þetta í haust.
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Bjóráhugamenn eru þegar farnir að fagna 27 ára af-
mæli bjórsins á Íslandi, sem rennur upp 1. mars nk. Ár-
leg bjórhátíð á vegum Kex Hostel er þegar hafin og
stendur fram á laugardagskvöld. Íslenskum og erlend-
um bruggurum hefur verið boðið til hátíðarinnar, sem
fer fram á Kex Hostel, Mikkeller & Friends, veit-
ingastaðnum Hverfisgötu 12 og Fiskislóð 73. Fjölbreytt
dagskrá og bjórsmökkun fer fram á þessum stöðum á
hverju kvöldi.
Bjórbarir halda einnig upp á afmæli bjórsins, Bryggj-
an Brugghús við Grandagarð og Microbar á Vesturgötu
2 (kjallaranum undir Restaurant Reykjavik) sem Gæð-
ingur brugghús rekur. Þar verða í boði sérstakir bjórar,
bruggaðir í tilefni 1. mars, og á Microbar verður mis-
munandi Gæðingur á öllum 14 bjórdælunum.
Dagskrá um alla borg
27 ÁRA BJÓRAFMÆLI 1. MARS
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Bar Nóg er að gera hjá helstu bjórveitingahúsum í borginni, m.a. Microbar við Vesturgötu 2.
KOMDUMEÐMÁLIN og við
hönnum, teiknum og gerum
þér hagstætt tilboð.
FAGMENNSKAÍFYRIRRÚMI
Þú nýtur þekkingar og
reynslu og fyrsta flokks
þjónustu.
VIÐ KOMUMHEIMTIL ÞÍN,
tökummál og ráðleggjum
um val innréttingar.
ÞÚVELUR að kaupa
innréttinguna í
ósamsettum einingum,
samsetta, eða samsetta
og uppsetta.
Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15
Við sníðum
innréttinguna að þínum
óskum. Þú getur fengið
skúffur og útdregin
tauborð undir vélarnar,
einnig útdreginn
óhreinatausskáp,
kústaskáp o.m.fl .
Baðherbergi
Uppþvottavélar
Helluborð Ofnar
Háfar
Kæliskápar
RAFTÆKI
FYRIR ELDHÚSIÐ
SANNKALLAÐ
Vandaðar hirslur Þvottahúsinnréttingar
ÁBYRGÐ - ÞJÓNUSTA
5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum.
Fríform annast alla þjónustu.
(Trésmíðaverkstæði,
raftækjaviðgerðaverkstæði).
20%AFSLÁTTURAF
RAFTÆKJUM
friform.is
Viftur
PÁS A ERÐ
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
AFSLÁTTU
R15%
AFÖLLUM
INNRÉTT
INGUM
TILPÁSKA
VÖNDUÐRAFTÆKI
ÁVÆGUVERÐI
NÚÍAÐDRAGANDAPÁSKANNAHÖFUMVIÐÁKVEÐIÐ
AÐBJÓÐAOKKARALBESTAVERÐ