Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 52
FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hinn 28. febrúar erufjörutíu ár liðin frá því aðValdar greinar, hljóð-tímarit fyrir blinda og sjónskerta, hóf göngu sína. Þá eru nú rúm 20 ár frá því Morgunblaðið varð aðgengilegt blindum og sjónskertum. Talgervill sem blaðið lét sérstaklega hanna var tekinn í notkun í desember 1994. Markaði þetta hvort tveggja þáttaskil í fjölmiðlun á þessu sviði. Hljóðtímarit byrjaði 1976 Efnið í Valdar greinar var lesið inn á segulband úr dagblöðum og tímaritum og fjölfaldað á snældur fyrir þá sem áhuga höfðu. Seinna fór efnið á geisladiska. Þetta var gert í hljóðveri í húsi Blindrafélagsins við Hamrahlíð í Reykjavík. Sáu Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur, sem var vinsæll útvarpsmaður fyrr á tíð, og félagar í Lionsklúbbnum Nirði um lesturinn fyrstu árin. Tímaritið kom fyrst út hálfsmánaðarlega, en síðan vikulega. Áskrifendur voru 8 í upp- hafi, en urðu 160 þegar mest varð. Með árunum varð efnið fjölbreyttara, það birti tilkynningar og fréttir frá Blindrafélaginu og viðtöl í tengslum við fundi og viðburði. Þróaðist hljóð- tímaritið smám saman í að verða nokkurs konar innanfélagshljóðrit Blindrafélagsins. Æ meira fór fyrir efni frá félaginu eftir því sem starf- semin jókst. Farið var að birta hljóð- ritanir frá fundum og viðburðum ásamt því að viðtöl við félagsfólk og ýmsa tengda málaflokknum urðu æ fyrirferðarmeiri. Hefur Gísli Helga- son sinnt ritstjórn síðustu árin, en verið meira og minna viðloðandi hljóðritun og vinnslu efnis frá upp- hafi. Innlestri blaðagreina í Valdar greinar var hætt á síðasta ári, en ritið er enn gefið út á tveggja vikna fresti og er að jafnaði rúmar tvær klukku- stundir að lengd. Talgervill frá Morgunblaðinu Morgunblaðið hefur verið að- gengilegt blindum og sjónskertum í rúm 20 ár. Talgervill, forrit sem blað- ið lét sérstaklega hanna, var tekinn í notkun í desember 1994 eftir fjögurra ára undirbúningsvinnu. Þetta þótti mikil bylting á sínum tíma og var þá aðeins við lýði í sex öðrum löndum í Evrópu. Tæknilega var fram- kvæmdin í upphafi þannig að blaðið var sent inn á ákveðið svæði í tölvu- kerfi blaðsins. Tölva Blindrafélagsins hringdi síðan í Morgunblaðið á ákveðnum tíma, náði í nýja tölublaðið og sendi það sjálfvirkt í tölvur blindra og sjónskertra áskrifenda. Þar sá tal- gervillinn um að lesa efni blaðsins eft- ir áhuga hvers og eins.Þegar Morg- unblaðið hóf að reka sérstakan fréttavef, mbl.is, var við hönnunina tekið sérstaklega mið af því að vef- urinn nýttist blindum og sjón- skertum. Geta notendur sem hafa skerta sjón stækkað letrið að þörfum og blindir notað talgervil. Talgervill Morgunblaðsins mæltist mjög vel fyrir þegar hann kom fram 1994. Fyrsti notandinn, Ólafur Þór Jónsson sjúkranuddari, fagnaði framtakinu enda hafði hann þá ekki getað lesið blaðið í 30 ár. „Þetta er ekki minni bylting en þegar gufuskipin hættu og vélskipin komu til sögunnar,“ sagði hann. „Það að blindir og sjónskertir skuli loksins fá aðgang óhindrað að dagblaði er sennilega einhver merkasti atburður í fjölmiðlun í 20 ár,“ var haft eftir Gísla Helgasyni, forstöðumanni Hljóðbókagerðar Blindrafélags- ins. Þáttaskil með hljóð- tímariti og talgervli Blindir Hús Blindrafélagsins við Hamrahlíð í Reykjavík. Í hljóðveri fé- lagsins hefur um árabil verið unnið hljóðtímarit fyrir blinda og sjónskerta. 52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeim semfylgjast meðbreskum kosningum þykir talningin eftir lok- un kjörstaða eft- irminnileg. Þar er talið fyrir opnum tjöldum og talning ekki hafin fyrr en engin hætta er á að úrslit berist út og hafi hugsanlega einhver áhrif á úrslitin. Þegar talning er langt komin mæta frambjóðendur á talningarstað. Bæjarstjórinn á viðkomandi stað mætir svo í pontu með skrautlega embætt- iskeðjuna yfir brjóstið. Hann þakkar lögreglunni liðveisluna, talningarmönnum og öllum þeim öðrum sem lagt hafa þessum þætti lýðræðisins lið. Allt í kringum hann eru fram- bjóðendur, ekki bara helstu framboða heldur allra sem buðu sig fram. Sé talið í kjör- dæmi forsætisráðherrans mætir hann og andstæðingar úr röðum hefðbundinna flokka. Og það mæta fleiri frambjóð- endur og sumir skrautlegir. Trúðar (þ.e. í einkennisbúningi slíkra) eru ekki sjaldséðir. Og þarna eru líkar fulltrúar hefð- bundinna smáflokka. Frambjóðendur allra þess- ara aðila eru raunsæir. Þeir vita að sigur er ekki í augsýn í einmenningskjördæmum. Rík- isvaldið setur hömlur á fram- boð með þeim hætti að sérhver frambjóðandi verður að leggja fram tryggingu sem gengur upp í þann kostnað sem sjóður almennings er talinn hafa af framboðsbrölti hans, nái hann ekki lágmarksfylgi. Þetta er upphæð sem munar um þótt hún sé ekki svo á að hún bein- línis standi í vegi fyrir því að sá sem hefur nokkurn stuðning treysti sér til að bjóða fram. Fyrir kemur að „alvöru“ fram- boð nái ekki lágmarkinu og þá bætist hneisa við fjárhags- tapið. Hér er þessu öfugt farið. Nái framboð hér ekki manni á þing en fær þó lágmarksfylgi bjóð- ast því álitlegar fjárhæðir. Litlar kvaðir eru settar á hvernig brúka má það fé. Á óróleikakjörtímabilinu 2009- 2013 urðu til dæmi um 4 manna þingflokk, sem hvarf frá flokknum sem bauð þingmenn- ina fram. Framboðsflokkurinn hélt háum árvissum fjár- greiðslum þótt tengslin við þingmennina væru engin. Frægt var þegar prófessor við Háskólann, sem jafnan þóttist tala í nafni alls almennings var í slíku framboði. Flokkur hans var fjarri því að ná inn á þing og náði ekki einu sinni þeim 2,5 prósentum sem hefðu tryggt honum mikið fé í fjögur ár. Þessi umbótamaður, sem þjóð- in vildi ekkert með, barðist fyr- ir því að horft yrði fram hjá reglunum og flokkskrílið yrði hækkað í fylgi upp í það sem munaði! Þessar ógöngur endurspegla alvar- lega þróun. Óli Björn Kárason gerði það að umtalsefni hér í blaðinu í gær. Hugleiðingar hans sýna hvern- ig hið íslenska stjórnmálakerfi hefur verið ríkisvætt og svo komið að sumir stjórnmála- flokkar líta út eins og dóttur- félög ríkisins og aðrir eru að ná því nánast að verða hrein- ræktuð ríkisfyrirtæki. Breyt- ingar eru svo taldar réttlæta að embættismenn ríkisins séu með nefið niðri í málefnum stjórnmálaflokka, sem er háskaleg þróun, sem horfið var frá austan járntjalds eftir hrun múrsins. Óli Björn segir m.a.: „Í desember 2006 voru sam- þykkt lög um fjármál stjórn- málasamtaka og frambjóðenda [nr. 162/2006]. Þar með voru stjórnmálaflokkar endanlega settir á jötu ríkis og sveitarfé- laga. Lögin kveða á um að ár- lega skuli „úthluta fé úr ríkis- sjóði til starfsemi stjórnmála- samtaka sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Al- þingi eða hlotið hafa a.m.k. 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni“. Hver stjórnmálaflokkur fær greitt í hlutfalli við atkvæða- magn. Því meira fylgi því hærri er ríkisstyrkurinn. Stjórn- málasamtök sem bjóða fram í öllum kjördæmum geta sótt um sérstakan styrk úr ríkis- sjóði og runnu nokkrir tugi milljóna úr ríkissjóði til hinna ýmsu framboða í síðustu kosn- ingum. Auk þessa er árlega veitt fé úr ríkissjóði til starfsemi þing- flokka á Alþingi. Lögin skylda sveitarfélög með fleiri en 500 íbúa til að styrkja stjórnmála- samtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn í sveit- arstjórn eða a.m.k. 5% at- kvæða í kosningum. Frá 2010 til 2015 fengu stjórnmálaflokkar í heild tæp- lega 2.100 milljónir króna úr ríkissjóði. Þetta jafngildir því að hver Íslendingur með at- kvæðisrétt í síðustu alþingis- kosningum hafi greitt um 8.800 krónur til stjórnmálasamtaka. Þessu til viðbótar bættust nokkur hundruð milljónir frá sveitarfélögunum.“ Óli Björn bendir á að byrjað sé að spila á kerfið: „Þannig komust Píratar í Reykjavík, að þeirri niðurstöðu á stjórnarfundi í janúar á síð- asta ári að „business modelið okkar ætti að vera að fá sem mestar tekjur frá ríkinu“.“ Afleiðingar laga um styrki við stjórnmálasamtök eru ógnvænlegar} Ógöngur Þ að er óhætt að segja að Ófærð, spennuþáttaröð Baltasars Kor- máks, hafi slegið í gegn. Hátt í 60% landsmanna horfðu á loka- þættina á sunnudagskvöldinu sem telst met nú þegar fullyrt er að línuleg sjón- varpsdagskrá sé að líða undir lok. Það heyrir til undantekninga að fjölskyldur safnist sam- an fyrir framan sjónvarpið til að horfa á sama dagskrárliðinn á sama tíma. Við erum hvert og eitt okkar orðin eigin dagskrárstjórar og höfum það í hendi okkar hvenær við horfum á uppáhaldsefnið. Ófærð sýndi svo ekki verður um villst að það er enn hægt að ná til fjöldans á sama tíma. Góð saga er alltaf gulls ígildi. Ég var í þessum 60% hópi og hafði gaman af að sjá rjómann af íslenskum leikurum fara sannfærandi með hlutverk sín. Í Ófærð feng- um við innsýn í íslenskan veruleika eins og hann gæti lit- ið út, þó undir merkjum skáldskapar. Það var því óþægi- leg samsvörun þegar fréttir bárust af manni sem virðist hafa haldið tveimur konum föngnum í kjallara án þess að bæjarbúar tækju eftir því. Lögreglan þarf aldeilis að standa í lappirnar í slíkum málum. Verðum við ekki að horfast í augu við að það sem gerist úti í hinum stóra heimi gerist líka hér á landi? Þó að það sé líklega oftast smærra í sniðum er það jafnalvarlegt og krefst þess að lögreglumenn séu með á nótunum bæði í mannafla og tækjabúnaði. Í einum þættinum segir danski skipstjór- inn að lögreglan hafi ekki hugmynd um hvað fer fram hér á okkar litlu eyju. Þar held ég að hand- ritshöfundarnir hafi hitt naglann á höfuðið. Nú þegar 1,3 milljónir manna leggja leið sína til landsins og búist er við enn meiri fjölda á þessu ári og þeim næstu þurfa stjórnvöld að vera vel vakandi. Það er ekki hægt að stinga vandamálunum undir stól eða horfa í hina átt- ina. Orðspor íslenska kvikmyndagerðarfólksins hefur eflst gríðarlega síðustu ár þegar hver bíómyndin og sjónvarpsþáttaserían á fætur annarri vekur áhuga og athygli víða um heim. Kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi hefur heldur betur vaxið fiskur um hrygg. Baltasar Kormákur hefur fyrir löngu sýnt og sannað að hann hefur framúrskarandi nef fyrir góðri sögu og hvernig best er að segja hana. Hann er kominn á þann stað í ferli sín- um að hafa val um að gera myndir í Hollywood. Við ætt- um að vera þakklát fyrir að hann hefur ennþá áhuga á að segja íslenskar sögur. Skálduðu sögupersónurnar Her- cule Poirot, Wallander, Taggart, Morse og Harry Hole, svo fáir séu nefndir, hafa allir leyst ráðgátur hver með sínum hætti. Er kannski íslenski lögreglustjórinn Andri, í traustum höndum Ólafs Darra Ólafssonar, kominn í þennan hóp og á eftir að leysa enn fleiri morðmál? Þegar einhverjar milljónir hafa séð Ófærð myndast sjálfsagt töluverður þrýstingur á Baltasar að framleiða fleiri þáttaraðir. Ég ætla að hefja þann þrýsting hér og nú og óska eftir að fá meira af Andra! margret@mbl.is Margrét Kr. Sigurðardóttir Pistill Góð saga er alltaf gulls ígildi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Önnur bylting í fjölmiðlum fyrir blint og sjónskert fólk varð þegar Kristinn Halldór Ein- arsson, þáverandi formaður Blindrafélagsins, kynnti fyrir nokkrum árum til sögunnar nýjung sem kallaðst vefvarp. Þar er hægt að hlusta á margs konar efni, Valdar greinar, fréttir og tilkynningar frá Blindrafélaginu og hljóðbækur frá Hljóðbókasafni Íslands. Vef- varpið hefur þann kost að vera mjög aðgengilegt og auðvelt í notkun, sérstaklega fyrir eldra fólk, sem þekkir lítt tölvur. Enn er verið að þróa það þannig að það nýtist betur og efn- isflokkum fjölgi. Vefvarpstækið kemur frá hollenska fyr- irtækinu Solutions Radio. Það er einfaldur, talandi, gagnvirkur og auðstýr- anlegur, nettengdur staf- rænn móttakari. Vefvarpið notast við nýjasta íslenska talgervilinn. Vefvarpið enn í þróun SÍFELLT NÝ TÆKNI Vefvarp Ný tækni í þróun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.