Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Á FERÐ UMheiminn
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Við höfum allt frá byrjun, árið
2004, boðið upp á ferðir í beinu
flugi frá Akureyri, Egilsstöðum og
Keflavík og erum eina ferðaskrif-
stofan sem veitir þá þjónustu,“
segir Ómar R. Banine, fram-
kvæmdastjóri Trans-Atlantic á
Akureyri. „Starfsemin hefur undið
upp á sig, við erum nú einnig með
skrifstofu í Reykjavík og úrval
ferða hefur aukist jafnt og þétt,
ekki bara með leiguflugi heldur
einnig í áætlunarflugi. Nú er svo
komið að við bjóðum ferðir út um
allan heim, þar sem við einblínum
á spennandi valkosti sem ekki eru
í boði hjá öðrum.
Hjá Trans-Atlantic höfum við
til dæmis lagt mikla áherslu á að
bjóða upp á árshátíðaferðir fyrir
hópa, fyrirtæki og stofnanir til
spennandi borga og sérhönnum
ferðir að óskum hvers og eins. Í
tengslum við borgarferðirnar
bjóðum við meðal annars upp á
skoðunarferðir og eftirminnilegar
matarveislur fyrir hópa, oft í höll-
um, köstulum eða húsum frá mið-
öldum. Okkar hópar hafa verið af
ýmsum stærðum og gerðum, þeir
stærstu í kringum 400 manns.“
Sérferðir sumarsins
Ómar segir áhuga Íslendinga
á ferðalögum hafa breyst síðustu
árin á þann veg að þeir ferðist nú
á fjarlægari slóðir og fari víða um.
Mynstrið sé þó það sama og verið
hafi, fólk velji sólríkari staði yfir
sumartímann en á haustin taki
borgarferðirnar við.
„Sérferðir sumarsins eru til
Eystrasaltslandanna og Balk-
anskagans. Í byrjun júní leggjum
við í 8 daga ferð til Litháen, Lett-
lands og Eistlands þar sem við
heimsækjum Vilnius, Riga og Tall-
inn. Við skoðum þessar glæsileg-
ustu miðaldaborgir Evrópu frá 11.
og 12. öld; borgir sem eru á
heimsminjaskrá UNESCO, mið-
stöðvar menningar og lista við
Eystrasaltið.
Svo er það Balkanskaginn 13.
til 25. júní. Þá ferðumst við um
þrjú af löndum fyrrverandi Júgó-
slavíu; Serbíu, Svartfjallaland og
Króatíu. Þetta eru lönd með mikla
og merkilega sögu og heillandi
menningu, sem jafnframt skarta
einstakri náttúrufegurð.“
Trans-Atlantic býður upp á
ferðir til Mexíkó allt árið, bæði
fyrir einstaklinga og hópa, þó
flestir kjósi að ferðast þangað yf-
ir sumartímann, að sögn Ómars.
„Mexíkó er til dæmis mjög vin-
sæll áfangastaður á meðal út-
skriftarnema, sem fara þangað
aðallega í maí og júní. Mexíkó
hefur upp á allt að bjóða og okk-
ar viðskiptavinir hafa mikið svig-
rúm. Allt er innifalið í verðinu og
fólk getur ráðið sjálft hvenær það
fer og hversu lengi það dvelur.
Sömuleiðis förum við ferðir í
Dóminíska lýðveldið allt árið um
kring. Þar er ferðatilhögun hlið-
stæð ferðunum til Mexíkó, þar
sem fólk getur valið um flugdaga
og lengd dvalar á þessari para-
dísareyju og allt er innifalið.“
Í september er Trans-Atlantic
með beint flug frá Akureyri og
Keflavík bæði til Edinborgar og
Verona. „Þá erum við líka með
nokkrar borgir þar sem fólk getur
valið hvenær það vill ferðast, sniðið
fyrir hópa, fyrirtæki og ein-
staklinga. Við bjóðum ferðir í beinu
flugi frá Keflavík til hinnar fögru
borgar Búdapest og hinnar glæsi-
legu Hansaborgar Gdansk í Pól-
landi allt árið, tvö flug í viku. Einn-
ig er flogið tvisvar í viku til Riga í
Lettlandi frá maí til október. Loks
er það Barcelona, við erum með
tvö flug í viku þangað frá miðjum
mars og fram í miðjan október.“
Töfrar Sri Lanka
Ómar nefnir fleiri spennandi
ferðir með haustinu. „Í nóvember
er skipulögð ferð til Sri Lanka;
svæði sem býður upp á hrífandi
náttúru, einstaka menningu og
fjölbreytt dýralíf. Við förum meðal
annars í safaríferð á jeppum og
skoðum villt dýr í sínu náttúrulega
umhverfi. Sri Lanka er eyjan sem
Sinbað sæfari og Marco Polo
heimsóttu á ferðum sínum. Í sept-
ember förum við líka til Kosta
Rica, en þar höfum við í samvinnu
við heimamenn hannað sérstaka
ferð þar sem fólk nær að upplifa
náttúru landsins og dýralíf með
því, ferðast eftir frábærum göngu-
leiðum sem eru við flestra hæfi.
Í október bjóðum við svo upp
á ferð á slóðir Maya-indíána, til
Mexíkó, Guatemala og Belize;
kynnumst stórkostlegri náttúru og
fjölbreyttu dýralífi, ferðumst inn á
töfrandi regnskógasvæði og skoð-
um gamlar menningarborgir Ma-
ya. Síðast en ekki síst er það ferð-
in okkar til Tansaníu í nóvember,
eins friðsælasta lands Austur-
Afríku, rétt sunnan miðbaugs. Við
bjóðum hana í samvinnu við dr.
Önnu Elísabetu Ólafsdóttur, eig-
anda TanzaNice Farm, sem verð-
ur jafnframt fararstjóri í þessari
einstöku ferð.“
http://www.transatlantic.is
Hátíðarkvöldverður í kastala
Vinaþjóðir Í júní er skipulögð ferð til Eystrasaltsríkjanna Litháen, Lettlands og Eistlands.
Sri Lanka Býður upp á heillandi menningu og náttúru.
Söguleg Flogið er beint frá Keflavík allt árið til pólsku Hansaborgarinnar Gdansk.
Mexíkó Sívinsæll áfangastaður, allt árið um kring.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjölbreytni Ómar R. Banine, framkvæmdastjóri Trans-Atlantic: „Nú er svo komið að við bjóðum ferðir út um allan
heim, þar sem við einblínum á spennandi valkosti sem ekki eru í boði hjá öðrum.
Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic býður upp á ferðir í beinu flugi frá Akureyri, Egilsstöðum og Keflavík allt árið
Meðal heillandi áfangastaða sumarsins má nefna Balkanskagann, Eystrasaltslöndin, Búdapest og Barcelona
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200