Morgunblaðið - 25.02.2016, Síða 83
MENNING 83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Um áratugaskeið gekk fjár-hópur nokkur laus á fjall-inu Tálkna sem gengur ísjó fram þar sem Tálkna-
fjörður og Patreksfjörður mætast
fyrir opnu hafi. Tilraunir til að smala
fénu fóru iðulega út um þúfur og
varð hópurinn sífellt styggari – og
ófrýnilegri. Ævintýralegar sögur
fóru að ganga af þessum hreyst-
irollum sem hristu af sér margverð-
launaða skoska smalahunda jafnt
sem reykvíska sérsveitarmenn í
þyrlum. Heimamenn sáu að lokum
við fénu eftir að hafa lagt líf og limi í
hættu við smölun í snarbröttum
fjallshlíðunum og hefur fjallið verið
rollufrítt frá árinu 2010. Sitt sýndist
hverjum um örlög þessa magnaða
fjárhóps sem nú heyrir nú sögunni
til. Sú saga varð kveikjan að list-
rænni rannsókn myndlistarmann-
anna Bryndísar Snæbjörnsdóttur og
Marks Wilsons og sýningunni Feral
Attraction: The Museum of Ghost
Ruminants í Listasafni ASÍ.
Þótt rannsóknarefnið sé ramm-
íslenskt (og ramman rolluþef leggi
að vitum safngesta) er yfirskriftin á
ensku en mætti e.t.v. útleggja sem
„Aðdráttarafl villifjár: Draugasafn
jórturdýra“. Yfirbragð sýning-
arinnar er vísindalegt og á neðri
hæð safnins má í Arinstofu sjá ýmis
gögn. Á vegg hangir röð ljósmynda
af landfræðilegum heimkynnum
fjárhópsins og inni í sýningarkassa
varpast lifandi mynd, sem sýnir rún-
ing, á landakort af Tálkna. Gamlar
bækur um fjármörk og þjóðsögur
hafa einnig verið lagðar í kassann og
er í þeim fólgin skírskotun til gagn-
virkra samskipta manns og náttúru
og þeirra ævintýralegu mynda sem
þau geta tekið á sig. Í öðrum kassa
liggja vigtarseðlar frá Kaupfélagi
Skagfirðinga ásamt kindabeinum, en
þannig undirstrika listamennirnir
atferli sem gengur út á að vigta,
mæla og flokka náttúruna. Á gólfi
Gryfjunnar liggja mikil og marglit
ullarreifi og mynda eins konar
þúfnalandslag, og á veggjum sjást
ljósmyndir af fagurhyrndu fé og
klettóttum fjallshlíðum – afdrepi
þess á flótta undan menningunni, á
endimörkum hins byggilega heims.
Sýning Bryndísar og Marks er
sjónrænt áhugaverð og hún felur
jafnframt í sér athuganir á menning-
arsögulegum og þekkingarfræðileg-
um þáttum er varða samskipti
manns og náttúru. Framsetningin er
látlaus en hún dregur engu að síður
fram annarleikann sem umlykur
minninguna um Tálknaféð. Með
þessu sérstæða dæmi – sem hefur
sterka tengingu við íslenska sjálfs-
mynd – tekst listamönnunum að
kveikja áleitna og siðferðislega
þanka um slík samskipti og um sjón-
arhorn mannsins og afskiptasemi
andspænis þeim sjálfstæða veru-
leika sem náttúran er, og hann er
reyndar sjálfur hluti af.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fé á flótta „Á gólfi Gryfjunnar liggja mikil og marglit ullarreifi og mynda eins konar þúfnalandslag, og á veggjum
sjást ljósmyndir af fagurhyrndu fé og klettóttum fjallshlíðum – afdrepi þess á flótta undan menningunni.“
Óhemjur
Listasafn ASÍ, Freyjugötu
Til 28. feb. 2016. Opið þri.-su. kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Feral Attraction: The Museum of
Ghost Ruminants – Bryndís Snæ-
björnsdóttir og Mark Wilson
bbbmn
Ífyrra gaf Bjartur út glæpasög-una Gleymdu stúlkurnar eftirSöru Blædel og Dauðaslóðiner sjálfstætt framhald þeirrar
sögu. Fyrri mál eru áréttuð og lausir
endar hnýttir.
Louise Rick, yfirmaður manns-
hvarfadeildar lög-
reglunnar í Kaup-
mannahöfn, fær það
verkefni að leita að
15 ára gömlum pilti
á æskuslóðum sín-
um á Sjálandi.
Hvarfið tengist
ákveðnum gjörðum,
málið vindur upp á
sig og fljótlega
verður ljóst að ekki er allt sem sýnist,
jafnt í rannsókninni sem og í einka-
málum Louise Rick.
Sara Blædel hefur sýnt að hún er
góður höfundur og hér heldur hún
áfram á þekktri braut. Sagan er ekki
aðeins vel skrifuð heldur er tekist á
við ákveðið málefni og hulunni svipt
af áratugalöngum leyndardómi.
Það orkar gjarnan tvímælis að rifja
upp atburði, sem greint hefur verið
frá í fyrri bókum höfundar. Sara Blæ-
del fetar svolítið þá braut en gerir það
af fagmennsku og þessi endurtekning
truflaði ekki lesturinn utan einu sinni.
Afmarkaður heimur tiltekins hóps
karlmanna er einkum til umfjöllunar
og það verður að segjast eins og er að
Sara Blædel lýsir sérlega vel þeim
viðbjóði sem þar viðgengst. Hún gef-
ur engan afslátt og lesandi getur ekki
annað en staldrað við og hreinlega
spurt: Ætli svona lagað viðgangist
einhvers staðar?
Að nokkru leyti er niðurstaðan fyr-
irsjáanleg nokkuð snemma og fyrir
bragðið er spennan ekki sem slík sög-
una á enda en samt vill maður sjá
hvernig hún endar og hættir ekki
fyrr en hún er öll. Það hlýtur að vera
einn helsti tilgangur höfundar og enn
ein rósin í hnappagat Söru Blædel.
Sara Blædel blandar skemmtilega
saman fornri trú og nútímanum. Titill
bókarinnar, Dauðaslóðin, gefur enda
margt til kynna. En dauðinn tekur á
sig ýmsar myndir og þessi átakasaga
er ekki aðeins um djöfullega fram-
göngu manna heldur einnig um fórn-
ir, kærleika og ást.
Uppgjör við fortíðina
Glæpasaga
Dauðaslóðin bbbbn
Eftir Söru Blædel.
Ingunn Snædal íslenskaði.
Bjartur 2016. Kilja. 236 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Spennuhöfundur „Þessi átakasaga er ekki aðeins um djöfullega framgöngu
manna heldur einnig um fórnir, kærleika og ást,“ segir um sögu Blædel.
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fös 26/2 kl. 19:30 50.sýn Lau 19/3 kl. 15:00 57.sýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn
Lau 5/3 kl. 15:00 54. sýn Lau 19/3 kl. 19:30 58.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn
Lau 5/3 kl. 19:30 55.sýn Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn
Fös 11/3 kl. 19:30 56.sýn Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn
Fim 17/3 kl. 19:30 Aukasýn Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 27/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 6/3 kl. 19:30 14.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 Lokasýn
"Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..."
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Þri 8/3 kl. 19:30 Aðalæf Sun 13/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn
Fim 10/3 kl. 19:30 Frums. Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn
Lau 12/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Um það bil (Kassinn)
Lau 27/2 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/3 kl. 19:30 19.sýn Sun 10/4 kl. 19:30 22.sýn
Sun 6/3 kl. 19:30 17.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 20.sýn
Mið 9/3 kl. 19:30 18.sýn Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn
"...ein af bestu sýningum þessa leikárs."
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 27/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 6/3 kl. 13:00 7.sýn Sun 20/3 kl. 13:00 9.sýn
Sun 28/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 13/3 kl. 13:00 8.sýn
Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fös 26/2 kl. 22:30 19.sýn Fös 4/3 kl. 22:30 22.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn
Mið 2/3 kl. 19:30 20.sýn Þri 22/3 kl. 20:00 23.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn
Fös 4/3 kl. 19:30 21.sýn Lau 2/4 kl. 19:30 24.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 26/2 kl. 20:00 35.sýn Fim 3/3 kl. 20:00 39.sýn Lau 5/3 kl. 22:30 43.sýn
Fös 26/2 kl. 22:30 36.sýn Fös 4/3 kl. 20:00 40.sýn Fim 10/3 kl. 20:00 44.sýn
Lau 27/2 kl. 20:00 37.sýn Fös 4/3 kl. 22:30 41.sýn
Lau 27/2 kl. 22:30 38.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 42.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 2/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 30/3 kl. 19:30 8.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 11.sýn
Mið 9/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 9.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 12.sýn
Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 10.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 28/2 kl. 11:00 aukasýn Sun 28/2 kl. 16:00 aukasýn
Síðustu sýningar!
Kvika (Kassinn)
Fim 3/3 kl. 21:00 Frums. Fös 11/3 kl. 21:00 3.sýn Þri 15/3 kl. 21:00 5.sýn
Lau 5/3 kl. 21:00 2.sýn Lau 12/3 kl. 12:00 4.sýn
Dansverk eftir Katrínu Gunnarsdóttur
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 11/3 kl. 20:00 Frums. Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Mið 11/5 kl. 20:00
Lau 12/3 kl. 20:00 2.k Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Fim 12/5 kl. 20:00
Sun 13/3 kl. 15:00 aukas. Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Fös 13/5 kl. 20:00
Þri 15/3 kl. 20:00 aukas. Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Lau 14/5 kl. 14:00
Mið 16/3 kl. 20:00 aukas. Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Mán 16/5 kl. 20:00
Fim 17/3 kl. 20:00 3.k. Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Þri 17/5 kl. 20:00
Fös 18/3 kl. 20:00 4.k. Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Mið 18/5 kl. 20:00
Lau 19/3 kl. 20:00 aukas. Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00
Sun 20/3 kl. 14:00 aukas. Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00
Þri 22/3 kl. 20:00 5.k Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00
Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00
Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Þri 24/5 kl. 20:00
Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Þri 3/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00
Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00
Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Fim 5/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00
Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Lau 28/5 kl. 20:00
Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Sun 8/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Þri 10/5 kl. 20:00
Abba söngleikurinn sem slegið hefur í gegn um allan heim
Njála (Stóra sviðið)
Fim 25/2 kl. 20:00 23.sýn Lau 27/2 kl. 20:00 25.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 27.sýn
Fös 26/2 kl. 20:00 24.sýn Fös 4/3 kl. 20:00 26.sýn
Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu
Hver er hræddur við Virginiu Woolf? (Nýja sviðið)
Fim 25/2 kl. 20:00 Lau 27/2 kl. 20:00
Fös 26/2 kl. 20:00 Sun 28/2 kl. 20:00 síð sýn.
Allra síðustu sýningar
Flóð (Litla sviðið)
Sun 28/2 kl. 20:00 10.sýn Sun 13/3 kl. 20:00 11.sýn
Nýtt íslenskt verk um snjóflóðið á Flateyri
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 25/2 kl. 20:00 31.sýn Fim 3/3 kl. 20:00 Fös 18/3 kl. 20:00
Fös 26/2 kl. 20:00 32.sýn Fös 11/3 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 5/3 kl. 20:00 103.sýn Lau 12/3 kl. 20:00 104.sýn Lau 19/3 kl. 20:00 105.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Lau 27/2 kl. 20:00 5.k Fim 10/3 kl. 20:00 Lau 9/4 kl. 20:00
Fös 4/3 kl. 20:00 6.k Fim 17/3 kl. 20:00
Sun 6/3 kl. 20:00 Sun 20/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið)
Lau 27/2 kl. 13:00 Sun 28/2 kl. 13:00 Lokasýn. Sun 6/3 kl. 13:00
Nýtt 5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum
Njála – „Unaðslegt leikhús“ – ★★★★ , S.J. Fbl.