Morgunblaðið - 14.05.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.05.2016, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016 Fjör Ungur maður var spenntur fyrir bátunum og sjónum þar sem hann spókaði sig á bryggjunni í Hafnarfirði. Eggert Íslendingar eiga heimsmet í að nýta sér erlend skattaskjól, samkvæmt Panama- skjölunum. Sú upp- ljóstrun hefur kallað skömm yfir alla þjóð- ina. Sama hvað hver segir þá er eitt á hreinu. Skattaskjól eru fyrst og fremst notuð til að fela eignir og komast undan skattgreiðslum. Ís- lendingar sem nota skattaskjól gera það til að komast hjá því að greiða skatta af tekjum og eignum og vilja láta aðra bera sinn hlut í ríkisrekstr- inum, s.s. að halda hér uppi heilbrigðisþjón- ustu og menntakerfi. Einkenni aflands- félaga í skattaskjólum eru skattleysi eða lág- ir skattar, leynd og ógagnsæi. Afskriftir og aflandsfélög Meðal eigenda aflandsfélaga eru aðilar sem hafa fengið háar fjár- hæðir afskrifaðar í kjölfar falls bankanna haustið 2008. Dæmi eru einnig um að kröfur í þrotabú bankanna hafi verið vistaðar í af- landsfélögum. Háar fjárhæðir hafa komið til landsins í gegnum gjald- eyrisútboð Seðlabankans og eig- endur fengið þar verulega ábót. Um þau viðskipti ríkir trúnaður sem aðeins opinber rannsókn get- ur aflétt. Ef þessir hópar yrðu bornir saman, þ.e. þeir sem fengu háar fjárhæðir afskrifaðar hjá bönkunum, kröfur aflandsfélaga í þrotabú bankanna og þátttaka í gjaldeyrisútboðum Seðlabankans, fengj- ust svör við því hvort um sömu aðila sé að ræða í einhverjum til- vikum. Réttlæti og niður- staða Eðli málsins sam- kvæmt þá eru allir sem eiga eða hafa átt aflandsfélög í skatta- skjólum tortryggðir vegna þess að til- gangurinn er leynd og skjól. Þá getur einnig verið að í ein- hverjum tilvikum sé ekki hægt að skýra eignamyndun afla- ndsfélaga með heið- arlegum viðskiptum. Svo virðist sem stofn- uð hafi verið eignar- haldsfélög hér á landi gagngert til að skuld- setja þau. Lánsféð hafi síðan verið fært til aflandsfélaga án þess að um nokkur viðskipti hafi í raun verið að ræða og jafnvel reynt að hylja slóðina með flóknum milli- færslum. Það er mögulegt að rekja þessi viðskipti með opin- berri rannsókn. Þessi mál verður að upplýsa. Ís- lensk þjóð getur ekki unað því að fólk í forréttindaaðstöðu gerist eins konar yfirstétt í landinu á grundvelli auðgunarbrota. Aldrei getur orðið sátt og friður í sam- félaginu nema sannleikurinn komi í ljós. Panamaskjölin hafa aukið möguleikana á því að upplýsa þessi mál og það er mikilvægt að íslensk stjórnvöld nýti sér þá möguleika. Eftir Oddnýju G. Harðardóttur »Eðli málsins samkvæmt þá eru allir sem eiga eða hafa átt aflandsfélög í skattaskjólum tortryggðir vegna þess að tilgangurinn er leynd og skjól. Oddný G. Harðardóttir Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Slóð peninganna Mér eins og fleirum var nokkuð brugðið við að heyra af því að líf- ríki í Mývatni væri um þessar mundir í hættu. Vistkerfi Mý- vatns er ofurviðkvæmt eins og við vitum, við bestu aðstæður er það einstakt á heimsvísu, en þess á milli er eins og dragi fyrir sólu og blábakteríur taka yfir. „Leirlosið“ eins og Mývetningar sjálfir kalla blómann hefur fylgt Mývatni um aldir. Er skólpið að drepa vatnið? Ég stóð sjálfan mig að þeim hugsunum að nú stefndi í óefni. Næringarefni frá vaxandi byggð og ferðafólki væru orðin það mikil að Mývatn væri hratt og örugglega að breytast í skólpsúpu. Forvitnin rak mig af stað og ég vissi af merkri bók í hillunni hjá mér um náttúru Mývatns frá 1991. Hún hefur að geyma undirstöðugreinar um vistkerfi og næringarefnabúskap vatnsins. Í Mývatn rennur grunnvatn undan hraunum langt að komið og einnig heitar lindir. Inn- rennsli er einkar næringarríkt og með því er átt við þá efnaþrennu sem þarf fyrir blómlega ljós- tillífun í vatni eða sjó. Þ.e. fosfór, nítrat (köfn- unarefni) og kísil. Kísillinn berst til vatnsins í mjög ríkum mæli og skortir aldrei. Hér snýst málið hins vegar um fosfór og nítrat. Fyrstu mælingar um 1970 bentu til þess að innflæði fos- fórs og köfnunarefnis væri í hlutfallinu 1,5 gr á móti 1,9 gr. á hvern fermetra Mývatns ár hvert. Undirstaðan í öllu lífríki Mývatns eru nokkr- ar tegundir svifþörunga en þeir dafna helst þeg- ar köfnunarefni og fosfór eru í hlutföllunum 7:1. Framboð köfnunarefnis er því takmarkað sam- anborið við fosfórinn og getur hæglega hamlað fjölgun þörunga. Það er ekki öll sagan, því nær- ingarefni berast líka frá rotnandi lífverum á botni sem vindar og öldur róta upp í grunnu vatninu. Bakteríublóminn og hvarf kúluskíts Þá víkur sögunni að skaðvaldinum blábakt- eríunum eða anabaena eins og tegundin heitir á fræðimáli. Þörungarnir og bakteríurnar berjast um næringarefnin og sérstaklega köfnunarefnið sem vill ganga til þurrðar á sumrin. Einn þessara þörunga er græn- þörungur sá sem myndar kúlu- skítinn á botni í Syðriflóa. Kúlu- skíturinn dafnar oftast vel þegar vatnið er tært og blábakteríurn- ar ná sér lítt eða ekki á strik. Menn hafa hins vegar fyrir löngu komist að því að fjölgun þeirra eða „leirlosið“ verður helst þegar þörungar hafa gengið svo á köfn- unarefnið sem tekur að skorta um mitt sumar. Mikill fosfór en lítið nítrat er fjölgunarkokteill blágrænu bakteríanna. En nú flækist málið svo um mun- ar. Anabaena er þeim eiginleikum gædd að geta unnið óbundið köfnunarefni úr andrúms- loftinu og breytt í nítrat og ammoníak. Í raun eru blábakteríurnar ekkert annað en áburðar- verksmiðja sem tekur köfnunarefni úr loftinu og breytir í næringarefni! Í blómanum tekur, í eðlilegum árum, að skorta fosfór og offjölgun tekur enda. Svo mikið nítrat kemst hins vegar í umferð eftir blómann að talsverð frumfram- leiðsla getur haldist áfram í vatninu fram á haustið, einkum ef fosfór gruggast upp úr botni á sama tíma. Ofauðgun eða skortur næringarefna? Vandi síðustu ára er sá að blábakteríurnar hafa orðið yfirgæfandi og blóminn í fyrra hélst þannig meira og minna fram á haust. Á meðan líða svifþörungar skort og þar með allt vistkerfið sem byggist á þeim. Allt byggist á framboði næringarefna, inn- byrðis hlutfalli þeirra og kapphlaupi lægstu þrepa lífkerfisins um nýtingu þeirra. En höfum hugfast að í umræðunni hefur verið talað um ofauðgun næringarefna, en ekki skort. Að um- svif mannsins á margvíslegan hátt hafi aukið framboð næringarefnanna með þessum afleið- ingum. Maðurinn með 2% alls fosfórs í Mývatn Næst rak á fjörur mínar nýja skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis- og auðlindaráðu- neytið; Mývatn – ákoma og afrennsli. Gunnar Steinn Jónsson höfundur hennar er virtur fræði- maður á sínu sviði. Hann leggur mat á ákomu næringarefna í Mývatn eftir uppruna. Auk lindarvatnsins er það áburðarnotkun á tún bænda í sveitinni og úrgangi manna er skipt á íbúa annars vegar og ferðafólk hins vegar. Einn- ig það sem berst frá umferð ökutækja og ekki síst það sem berst langt að m.a. með regni og snjó sem fellur á vatnið. Skemmst er frá því að segja innrennsli fosfórs í Mývatn var áætlað (árið 2000) um 52 tonn á ári, megnið eða 51 tonn kemur með lindarvatninu. Landbúnaður, skólp og aðrir þættir bæta við 1 tonni eða um 2% af heildinni. Hvað köfnunar- efnið áhrærir var ákoman 67 tonn með lindum. Landbúnaður lagði til 6 tonn og mannfólkið með sínum úrgangi um 3 tonn. Hins vegar var metið að köfnunarefnisframleiðsla blábakteríanna væri heil 200 tonn! Þessar tölur sýna glögglega að afrennsli sem beint er af völdum manna er hlutfallslega minniháttar og ætti trúlega í stóra samhenginu ekki hafa nein áhrif eða hvað ? Árni Einarsson, forstöðumaður RAMÝ, hefur af langri reynslu sinni bent á tvær mögulegar ástæður hnignunar lífríkisins í vatninu. Annars vegar vegna hægfara aukningar á næringar- efnum með fjölgun íbúa og ferðamanna. Önnur skýring gæti legið í loftslagsbreytingum. Mögu- lega samspili þessara þátta eins og raunin virð- ist vera með hnignun í vatnavistkerfum úti í heimi þar sem blábakteríur eru orðnar skað- valdur. Seinni haustkoma en áður var Á Mývatni nær hækkandi sólin snemma vors að hefja ljóstillífun undir ísnum á vatninu. Eftir að ísa leysir upp úr miðjum í maí eða stundum ekki fyrr en í júní hitnar vatnið hratt. Vatnshitinn getur náð 12-15 stigum í júlí, en kólnar síðan ákveðið með lækkandi sólarhæð og lengri nótt- um. Sólarljós og vatnshitinn eru vitanlega miklir áhrifaþættir á gangverk alls lífríkis og samspil viskerfis í Mývatni. Greiningar á samfelldum hitamælingum við vatnið allt frá 1923, lengst af í Reykjahlíð, benda ekki til þess að sumarhiti hafi hækkað svo nokkru nemi (júní til ágúst). Hins vegar, og það eru kannski öllu meiri tíðindi, þá virðist það vera svo að sumarið hefur heldur ver- ið að lengjast. Eða öllu heldur er haustkoman seinni en áður var. Þetta er mjög greinleg þróun síðustu 55 ára og ekki rúm hér í stuttri blaðgrein að gera frekari grein fyrir henni. Mikill áramun- ur er á haustkomunni í Mývatnssveit. Að jafnaði verður hún í kring um 5. til 10. september, en seinni árin er stundum hlýtt alveg fram í október. Hér verður að hafa í huga að á þessum tímabili hefur veðurfar hlýnað samfara vel þekktri ára- tuga sveiflu hitans hér á landi. En hvernig lengri sumartíð fram í september kann að hafa áhrif á lífríki Mývatns er ókannað, að því að ég best veit. Lokaorð Alls ekki er víst að ákoma næringarefna vegna skólps hafi nokkur áhrif á lífríki Mývatns, en vissulega gæti hlutfall fosfórs og köfnunar- efnis hafa raskast lítillega. Í mínum huga þurfa menn að vera vissir í sinni sök áður en farið verður að verja mörg hundruð milljónum króna í úrbætur á fráveitum í Mývatnssveit. Ekki er andmælt þeim framkvæmdum sem miða að auknu hreinlæti, en allt fráveituvatn þarf að flytja í burtu með ærnum tilkostnaði eigi að koma í veg fyrir að næringarefnin berist á end- anum út í vatnið. Höfum hugfast að meðalmað- urinn skilar dag hvern frá sér 9 g af köfnunar- efni og tæpum 3 g af fosfór. Skepnuhald þyrfti líka að takmarka og notkun áburðar, lífræns og tilbúins á bökkum vatnsins. Ég bið menn ekki um annað en að flana ekki að neinu í flýti, það er ekkert víst að Mývatn blómstri á ný þó mann- inum og athöfnum hans verði alfarið úthýst úr sveitinni. Ástæðurnar geta hæglega verið aðrar, en vissulega munu margir segja að nauðsynlegt sé að gera eitthvað. Þá liggur beinast við að ráð- ast að skólpi og áburði frá landbúnaði og vona í hjarta sínu að það dugi til að snúa þróuninni við. Eftir Einar Sveinbjörnsson »Ég bið menn ekki um annað en að flana ekki að neinu í flýti, það er ekkert víst að Mý- vatn blómstri á ný þó mann- inum og athöfnum hans verði alfarið úthýst úr sveitinni. Einar Sveinbjörnsson Höfundur er veðurfræðingur. Mývatn – ekki er allt sem sýnist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.