Morgunblaðið - 14.05.2016, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þið ættuð ekki að láta draga ykkur
til þess að gera annað en þið viljið sjálf. Ein-
hver gamall vinur hefur samband og það
gleður þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki byrgja andstreymið innra með
þér. Dagurinn í dag er einn af þessum dög-
um þegar þú getur ekki stillt þig um að taka
upp veskið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér hefur tekist vel upp við end-
urskipulagningu starfs þíns. Reyndu að
slaka svolítið á og sjá hlutina í víðara sam-
hengi. Ekki hlæja að fólki, bara með því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fólk hlustar þegar þú talar, en í dag
læturðu meira gott af þér leiða með því að
hlusta. Þú ert full/ur af bjartsýni og gleði yf-
ir lífinu. Haltu því áfram.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Forðastu hvers kyns deilur í dag. Ekki
reyna að sporna við ástinni. Það sem áður
fór í taugarnar á þér gerir það ekki lengur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Um leið og þú lætur álit þitt í ljós
máttu líka eiga von á viðbrögðum við þeim.
Sumir sjá alltaf fullt glas, þú ert ein/n af
þeim.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú er hissa hversu margt þú átt enn
ólært í þinni atvinnugrein. Töfrar verða ekki
til nema maður nái sambandi við sinn skap-
andi mátt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú verður þú að hrökkva eða
stökkva því ekkert annað getur þokað mál-
um þínum áfram. Taktu til í ísskápnum.
Reyndu að tjá þig um það sem þér liggur á
hjarta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag er jafngóður fyrir
fjármálaviðskipti og gærdagurinn var slæm-
ur. Reyndu að leysa málin á sanngjarnan
hátt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er hugsanlega rétti tíminn til
þess að kynnast nýjum hlutum, fara á sýn-
ingar, söfn eða listviðburði. Finndu þér eitt-
hvað til að dreyma um.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki örvænta þó að þér finnist
þú ekki eiga næga peninga. Þakkaðu fyrir
það sem þú átt og hefur. Er heilsan ekki
mikilvægust?
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að öllum orðum fylgir ábyrgð
svo lofaðu engu nema að þú getir staðið við
það. Ef það tekst ertu ofurhetja.
Síðasta laugardag svifaði sem oft-ar gátu til Guðmundar Arn-
finnssonar og hann sendi hana
áfram:
Lítillátur er hann eigi.
Enginn sigrar kappa þann.
Sleginn er á einum degi.
Er í Vatnsmýrinni hann.
Helgi Seljan leysir gátuna þannig:
Völlur er á mörgum manni
mjög er gott að halda velli.
Dagslátta var sögð með sanni
sáust flugtök þar í hvelli.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Það er völlur á sjálfhælnum. Sé ég líka
ég sigri enga sem heldur velli.
Velli í dagsláttu dugleg flíka,
deili um flugvöll og yrki í hvelli.
Þessi er lausn Helga R. Einars-
sonar:
Lögðu saman glópska og greind,
gamalkunnar stöllur.
Gátunnar því leystu leynd.
Lausnin reyndist: völlur.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Völlur þykir Óla á.
Ei hann leggja að velli má.
Völl á degi vaskir slá.
Í Vatnsmýri ég flugvöll sá.
Og lætur limru fylgja:
Þó Óla sé brigslað um elli
enn mun hann sterkur á svelli
og sigrað fær alla
jafnt konur sem kalla
sá kall heldur alltaf velli.
Og loks segist Guðmundur hafa
„bögglað saman einni gátu rétt í
þessu“:
Oft það felur í sér vald.
Er á vöru lækkað gjald.
Fundarkvaðning einnig er.
Aðvörun svo gæt að þér.
Páll Imsland heilsaði leirliði á
fimmtudag og sagðist mega til að
rifja upp gamla limru í tilefni um-
ræðunnar:
Það er merkilegt vatn þetta Mývatn
sem er mestmegnis einungis slývatn.
og ef túrisminn vex þar
upphefst töluvert pex þar,
auk þess pollurinn breytist í pí-vatn.
Og bætir við „Þetta síðasta orð
ætti ég kannski að rita „pee“-vatn.“
Og þann hinn sama dag sagði
hann líka: „Mikið skelfing og ósköp
er“ – leiðinleg öll þessi kosninga-
ræða daganna. Hvers vegna er það
ekki byggt inn í stjórnarskrána að
hafa hér sjálfkjörið?
Róshildur ráðskona’ á Bjargi
var rökföst og frábitin þvargi,
og guðsorðatali
og trúmálahjali
öllu tók hún með reiði og gargi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það heldur velli sem hæfast er
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SPURÐI LÆKNINN ÞARNA HVAÐ
ÞYRFTI TIL ÞESS AÐ LAGA MAGAVERK, OG
HANN SAGÐI MÉR UM 8.500 KRÓNUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar tveir heimar
verða að einum.
ÉG MYNDI VILJA
KLÍFA FJALL, EÐA
SYNDA Í HAFINU
ENN BETRA!
HVERSU LENGI
HEFURÐU VERIÐ
MEÐ SKEGG?
SÍÐAN BÖRNIN
MÍN VORU UNG!
ÞAÐ MINNIR
MIG Á ÞÁ GÖMLU
GÓÐU DAGA…
…ÞEGAR ÉG GAT
STOLIÐ NAMMINU
ÞEIRRA OG GEYMT
ÞAÐ Í SKEGGINU
MÍNU!
L J Ó S M Y N D A S T O F A R O B B A
B R Ú Ð K A U P S -
M Y N D I R
60.000 KR.
S K I L N A Ð A R -
M Y N D I R
90.000 KR.
Að gleðjast eins og barn yfir ein-földum hlutum ætlar Víkverji
að vera duglegri við að tileinka sér.
Ástæðan fyrir þessu breytta við-
horfi Víkverja er sú að Víkverja-
barnið fékk sína fyrstu fótbolta-
sokka, legghlífar, fótbolta og
takkaskó á dögunum.
Það er ekki frásögur færandi
nema fyrir þær sakir að barnið gat
varla sofnað því það var svo spennt
að prufa græjurnar á næstu fót-
boltaæfingu daginn eftir. Barnið
ætlaði í fyrstu að sofa í fótbolta-
sokkunum með legghlífarnar utan
yfir. Það skal tekið fram að legg-
hlífarnar eru í mjög fallegum litum.
Víkverji gat þó talið barninu trú
um að það dygði að vera í sokk-
unum en ekki með legghlífarnar
líka, það væri hreinlega óþægilegt.
Eitthvað gekk brösuglega að sofna
í sokkunum sem barnið dró reglu-
lega upp yfir hnén og rak þau út í
loftið til að dást að þessum fínu
sokkum. Að lokum sættist krakk-
inn á að klæða sig úr sokkunum og
leyfa tásunum að leika frjálsum.
x x x
Um leið og barnið vaknaði daginneftir fór það í fótboltasokkana
fínu og krafðist þess að fá að fara í
þeim í leikskólann. Það var sam-
þykkt með semingi en þeir áttu þó
að vera innanundir buxunum.
Í bílnum á leiðinni í leikskólann
laumaðist barnið til að setja sokk-
ana yfir buxurnar og spígsporaði
inn í leikskólann með buxurnar
pokandi, kátt og glatt með fótbolta,
takkaskó og legghlífar í poka,
tilbúið á æfingu seinna um daginn.
Fótboltasokkana fínu þurfti
nefnilega að sýna landsliðskonunni
góðu í fótbolta sem gætti barnsins
á leikskólanum. Sokkarnir fóru
ekki fram hjá nokkrum manni og
án efa ekki landsliðskonunni
snjöllu.
x x x
Þessa gleði og eftirvæntingu ætl-ar Víkverji að tileinka sér.
Leyfa sér að fá fiðrildi í magann yf-
ir einhverju nýju og spennandi.
Gleðjast yfir nýju flíkunum sínum
og vera ánægður með sig.
Kannski verður þó staðar numið
við að leggjast í rekkju í flíkunum
en ávinningurinn af þessu hugar-
fari er augljós. víkverji@mbl.is
Víkverji
Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
(Mósebók 1:1)