Morgunblaðið - 14.05.2016, Blaðsíða 33
lega í næstum fjögur ár. Þá barst
sú frétt að Valdimar ætti senni-
lega aðeins nokkra klukkutíma
ólifaða. Þetta var óvænt högg. Að-
eins mánuði áður hafði Valdi
mætt, að venju hress og glaður.
Með sinni alkunnu gamansemi
sagðist hann hafa verið að stríða
lækninum sínum og spyrja hann
um þegar tvö líffæri væru biluð-
,hvort þeirra væri þá orsök að bil-
un hins. Fátt hefði verið um svör.
Valdi hafði einmitt haft for-
göngu um að þeir sem tök hefðu á,
úr stúdentsárgangi 1954 frá MA,
hittust mánaðarlega. Enda var
hann afar félagslyndur. Þessi ár-
gangur var mjög fámennur, 34,
eftir óvægið strandhögg Lands-
prófsins, sem þá gilti í fyrsta sinn
um inntöku í þriðja bekk MA. Ár-
gangurinn var nokkuð sérstæður,
enda stundum nefndur Undri.
Valdi, ásamt fleiri öndvegismönn-
um úr Gagnfræðaskólanum á Ísa-
firði, las þriðja bekk utan skóla og
kom í fjórða bekk MA. Þriðjungur
þessa fámenna árgangs hefur á 62
árum horfið á braut.
Við Valdi áttum nána samleið í
níu ár, fyrst þrjú ár í MA og næst
þrjú ár í Verkfræðideild HÍ. Við
skemmtum okkur oft saman og
stundum lásum við saman undir
próf, en hann var afburðanáms-
maður í raungreinum. Þar sem við
höfðum báðir valið vélaverkfræði
þurftum við að vinna ákveðinn
tíma á vélaverkstæðum. Á þessum
tíma þurfti að vinna sér inn fyrir
vetrinum á sumrin, því engin voru
námslánin.
Við gerðum tilraun eitt sumarið
til að sameina þetta með vinnu á
verkstæði, þar sem von var um
mikla vinnu á Keflavíkurvelli.
Þessi von brást en við unnum
þarna um sumarið, Valdi á renni-
verkstæði en ég á málmsteypu-
verkstæði. Við skemmtum okkur
þá við að hnoða saman vísur fyrir
verkstæðisformenn okkar, sem
áttu í erjum innbyrðis, uns hitnaði
í kolunum og verkstjórinn bað
okkur að hætta yrkingum.
Næst tóku við tvö og hálft ár í
seinni hluta náms í Kaupmanna-
höfn. Þar nutum við Kristín kona
mín oft gestrisni hjá Valda og
Lillý, en svo var Guðrún kona
hans ætíð kölluð. Þau höfðu erft
leiguíbúð, sem Þorvarður bróðir
Valda hafði haft í námi sínu, en
húsnæðisskortur var mikill. Við
spiluðum þá m.a. gjarna brids.
Síðasta árið völdum við báðir kæli-
tækni sem sérgrein og unnum
lokaritgerð saman, sem var hönn-
un á íslensku frystihúsi.
Þegar við vorum að ljúka nám-
inu í ársbyrjun 1960, bárust okkur
bréf frá kennara okkar Leifi Ás-
geirssyni formanni Stærðfræða-
félagsins, þar sem okkur var boðin
vinna í þrjá mánuði við Regne-
centralen, sem hafði smíðað fyrstu
dönsku tölvuna DASK. Þetta var
að undirlagi Gunnars Böðvarsson-
ar verkfræðings, sem fyrstur
manna hér á landi kom auga á
möguleika hinnar nýju tölvu-
tækni. Að því loknu fluttum við
heim og unnum um sumarið hjá
Gunnari á Raforkumálaskrifstof-
unni.
Um haustið skildu leiðir um
sinn, er Valdi hélt til Bandaríkj-
anna til framhaldsnáms
Eftir þessa löngu samleið get
ég með sanni sagt að Valdi reynd-
ist ávallt traustur félagi og sannur
vinur. Við Kristín sendum öllum
aðstandendum Valda okkar ein-
lægustu samúðarkveðjur
Helgi Sigvaldason.
Fallinn er frá einn af frum-
kvöðlum vélaverkfræðimenntun-
ar á Íslandi, prófessor Valdimar
K. Jónsson. Undirritaður var einn
af þeim fjölmörgu sem áttu því
láni að fagna að kynnast Valdi-
mar, bæði sem kennara en síðar
sem samstarfsmanni. Valdimar
var vel liðinn kennari sem var vel
heima í faginu og hafði af mikilli
reynslu að miðla. Valdimar gegndi
mörgum stjórnunar- og trúnaðar-
störfum innan Háskóla Íslands
sem utan, svo mörgum í raun að
ekki er hægt að telja þau upp í
stuttri grein sem þessari.
Eitt af því sem Valdimars verð-
ur minnst fyrir er hans stóri þátt-
ur við að koma á fót framhalds-
námi í verkfræði við Háskóla
Íslands. Var hann leiðbeinandi
bæði fyrsta meistaranemans og
fyrsta doktorsnemans í verkfræði
sem luku prófi frá háskólanum.
Hin síðari ár var Valdimar virkur í
norrænu samstarfi á sviði orku-
rannsókna og sat hann í hitaveitu-
fagráði norrænu orkurannsókna-
áætlunarinnar um árabil. Þau
störf hans áttu þátt í því að hann
var kjörinn heiðursdoktor frá Há-
skólanum í Lundi í Svíþjóð árið
1998.
Valdimar hvatti og studdi
marga unga verkfræðinga til
doktorsnáms við norræna há-
skóla, einkum á sviði hitaveitna og
jarðhitanýtingar og átti þannig
mikilvægan þátt í áframþróun
greinarinnar.
Við hjónin þökkum Valdimar
fyrir samfylgdina og þann stóra
þátt sem hann átti á þroskabraut
okkar og sérhæfingu innan verk-
fræðinnar. Við sendum afkomend-
um og aðstandendum hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ólafur Pétur Pálsson,
forseti iðnaðarverkfræði-,
vélaverkfræði- og tölv-
unarfræðideildar Háskóla
Íslands, og Ragnheiður
Inga Þórarinsdóttir.
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur til sölu
Skýringar yfir fornyrði Lögbókar
þeirrar er Jónsbók kallast,
Reykjavík 1854, Egilssaga 1809,
Njálssaga 1809, Fornmanna-
sögur 1-12, 1825 - 1837,
Dýravinurinn 1885 - 1916,
Sunnanfari 1. - 13. árg., Reykja-
víkurbiblían 1859, Ættir Aust-
firðinga 1-9, Íslenskir annálar
1847, Chess in Iceland 1905,
Kirkjuritið 1. - 32. árg, Kollsvíkur-
ætt, Krossaætt 1-2, MA stúdent-
ar 1-5, Allar í góðu bandi.
Rómálmur og Grásilfur, Dagur,
Sögur og Kvæði 1897 Einar Ben,
Galdrakver Ísleifur 1857,
Auðfræði Arnljóts, 1880.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Garðar
Garða- og heimilisþrif
Við komummeð brosið,
og förummeð ruslið.
Gerum vortilboð
Sími 861 8752
Húsgögn
Skápasamstæða
Til sölu vel með farin skápa-
samstæða, hæð 188cm breidd
220cm. Verðhugmynd kr. 20.000.
Upplýsingar í síma 8205808
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Til sölu
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Gæði í gegn !
Teg: 503602 Mjúkir og þægilegir
herrasandalar úr leðri.Litir: brúnt og
svart. Stærðir: 40 - 48.
Verð: 11.890.-
Teg: 503603 Mjúkir og þægilegir
herrasandalar úr leðri með hælbandi.
Litir: brúnt og svart. Stærðir: 40 - 46
Verð: 13.585.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
TILBOÐ TILBOÐ Dömuskór úr leðri,
stakar stærðir.
Tilboðsverð: 2.900.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070. TILBOÐ -TILBOÐ - TILBOÐ
Teg NICOLE - stakar vænar stærðir
Verð kr. 5.900,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Velúrgallar
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Fyrir konur á öllum aldri
Stærðir S-XXXXL
Verkfæri
Giftingar- og trúlofunarhringar frá
ERNU Handsmíðuð hringapör úr silfri
með alexandrite-steini sem gefur
mikið litaflóð. Verð 27.500 á pari með
áletrun. ERNA, Skipholti 3, sími
5520775, www.erna.is
Bílar
Renault Master vörubíll
með sturtubúnaði. 9/2012 ekinn
aðeins 16 þús km. Lengd á palli
328 cm. Flott kaup.
Verð aðeins 4.290.000 án vsk.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Slípa ryð af
þökum, ryðbletta
og tek að mér ýmis
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Get útvegað með stuttum fyrir-
vara tvö 26.5 m2 hús með 8 m2
verönd. Hafa verið mjög vinsæl í
ferðaþjónustu. Gott verð ef pantað er
strax. Uppl. hjá Jabohús sími
5814070 / 6996303
Renault sparibaukur árg 2012,
dísel, sparneytin, 6 gíra. hraðastillir,
mjög góður bíll til sölu vegna
flutnings. Áhvílandi um 1,2 m. Y
firtaka á láni auk milligjafar. Verð
1,8m. skoða tilboð. Uppl síma
6635575 gisli@aflafrettir.is
Armbandsúr í útskriftargjöf, frí
áletrun PL dömu, herra og hjúkkuúrin
eru samsett í Frakklandi enda haldast
gæði og listræn hönnun í hendur.
Verðið er frábært. ERNA, Skipholti
3, s. 5520775 www.erna.is
Verslun