Orð og tunga - 01.06.2001, Síða 24
14
Orð og tunga
Samfelld vinna við Alfrœðiorðabókina hófst í maí 1987 og verkinu lauk í október
1990. í henni eru samkvæmt lauslegri áætlun 150 ársverk sem svarar til þess að það
hafi tekið einn mann einn mánuð að búa til hverja blaðsíðu bókarinnar. Þetta er síst
ofreiknað. Efnið þurfti að velja, þýða og staðfæra eða frumsemja. Síðan þurfti að lagfæra
það og samræma, prófarkalesa, semja myndatexta og töflur, velja og útvega myndir,
útbúa skýringarmyndir og kort og huga að millivísunum. Að þessu loknu þurfti að
brjóta bókina um, skeyta filmur, prenta hana og binda, og að lokum að koma henni á
framfæri.
Tilhögun verksins
Vinna við gerð Alfrœðiorðabókarinnar skiptist í sjö meginþætti, þ.e. ritstjórn, tölvu-
vinnslu, vinnu við frumhandrit, yfirlestur og samræmingu á handriti, vinnslu á myndefni,
prófarkalestur og umbrot.
Ritstjórn
{ upphafi verksins var skipað útgáfuráð sem átti að funda reglulega með ritstjórum og
vera þeim til aðstoðar. Vinnutilhögunin átti að vera sú að þrír til fjórir menn þýddu
dönsku bókina. Tveir til þrír ritstjórar áttu að stýra verkinu í hjáverkum, einn átti að sjá
um að bæta við íslensku efni, einn starfsmaður átti að slá efnið inn í tölvu og tveir til þrír
að lesa handritið yfir. Það kom mjög fljótt í ljós að þetta fyrirkomulag gengi ekki við
svo umfangsmikið verkefni. Þá voru ráðnir tveir fastir ritstjórar sem endurskipulögðu
verkið. Eftir því sem á leið var föstu starfsfólki fjölgað og á síðari stigum verksins
störfuðu tólf manns í ritstjórninni.
í byrjun fór mestur tími ritstjóranna í að skipuleggja verkið, deila út verkefnum og
útbúa vinnuleiðbeiningarhanda öllum sem unnu við það.
Fengnir voru rúmlega 100 sérfræðingar til að þýða, staðfæra og endurskoða efnið í
Fakta, fella út sérdanskt efni og semja séríslenskar skýringar. Sérfræðingamir fengu í
hendur handrit af viðkomandi efnisflokki og skrá y fir þær myndir og töflur sem tilheyrðu
honum. Einnig fengu þeir hefti frá ritstjórn með leiðbeiningum um uppsetningu. Hver
sérfræðingur skrifaði undir sérstakan samning þar sem m.a. var kveðið á um greiðslu,
höfundarrétt forlagsins á efninu og tiltekinn var skiladagur handrits. Miðað var við að allt
efnið yrði tilbúið frá hendi sérfræðings um áramótin 1988/89. Einn starfsmanna hafði
m.a. það verk með höndurn að fylgjast með framvindu verksins hjá sérfræðingunum og
sjá til þess að skiladagar stæðust. Þannig tókst að fá inn 96% handrita á tilsettum tíma.
Aldrei kom til kasta útgáfuráðsins því að of tímafrekt hefði verið að bíða eftir
fundum með því til að fjalla um þau fjölmörgu vandamál sem komu upp daglega og
varð að leysa jafnóðum. Það kom því nánast af sjálfu sér að ritstjórnintók að sér hlutverk
ráðsins og naut hún liðveislu sérfræðinganna þar sem á þurfti að halda.