Orð og tunga - 01.06.2014, Blaðsíða 27
Heimir Freyr: Afstaða sagnar til neitunar á 19. öld
15
—«—Atvikssetn. —■—Tilvísunörsetn.
—*...Skýringörsetn.-----Spurnarsetn.
Mynd 2. Hlutfall S3 af heildardæmafjölda eftir tegund aukasetningar (sbr. töflu 5).
(13) a. Brjefið til Kristjáns er þjer sent svo hann geti ekki þrætt fyrir að
hafa fengið það (1890, kk., 35)
b. það má þó margt læra hér sem maður þekkir ekki heima (1899,
kvk., 20)
c. Jeg bid þig bezti pabbi ad fyrirgefa mér ad eg skrifadi þér ekki
í vetur (1889, kvk., 19)
d. Þú spyrð mig í brjefinu þínu hvert mig langi ekki heim aptur
ef þú gætir útvegað mjer atvinnu sem eg gæti lifað af (1875, kk.,
19)
(14) a. en stódu utan um og forsigladu hana svo kallinn ekki géti
skémt hana (1857, kk., 19)
b. og var sagt að posturin hefði tekið hana sjálfur og sent með ein-
hverjum sem hann ekki þegti (1868, kvk., ?)
c. hún biður að fyrir gefa að hún ekki skrifi (1887, kvk., 25)
d. þú biður mig að seigja þjer í einlægni hvert mig ekki lángi heim
aptur (1876, kk., 36)
Notkun S3 í sendibréfum í kjörumhverfi S2/S3 í skandinavísku megin-
landsmálunum sýnir nú gerólíka dreifingu, sbr. töflu 6 (í samanburði
við töflu 3 hér á undan). Hlutfall S3 er hæst í blönduðu umhverfi
og á tímabilinu 1875-1900 er hlutfallið einmitt lægst í dæmigerðu
S3-umhverfi. Þessi munur er tölfræðilega marktækur á síðari hluta
aldarinnar.16 Því virðast aðrar hömlur vera að verki; líkindin eru yfir-
borðsleg.
16 A f.hl. 19. aldar er væntingartíðni S3 í blönduðu umhverfi of lág fyrir
kí-kvaðratspróf Pearsons en dreifingin er marktæk 1850-1875 (p-gildi =
0,00166) og 1875-1900 (p-gildi = 0,0001294).