Orð og tunga - 01.06.2014, Blaðsíða 168
156
Orð og tunga
Nýtt afmælisrit
Guðrún Kvaran. Glíman við orðin. Ritgerðasafn gefíð út í tilefni sjö-
tugsafmælis höfundar 21. júlí 2013. Reykjavík: Stofnun Árna Mag-
nússonar í íslenskum fræðum. 2013. (xiv + 374 bls.) ISBN 978-9979-
654-25-4.
I ritinu er safnað saman úrv'ali greina eftir Guðrúnu Kvaran sem gefa yfírlit
yfir viðfangsefni hennar og skrif á löngum starfsferli. Greinamar eru alls
nítján og þeim er skipað í fimm flokka eftir efni: Orðabókafræði, nafnfræði,
orðfræði og orðsifjar, Biblíumál og loks málfræðiskrif fyrri alda. Sem dæmi
um greinar í ritinu má nefna „Andans kona og orðabókarpúl" sem fjallar
um orðabókastörf Bjargar C. Þorláksdóttur og framlag hennar til íslensk-
danskrar orðabókar Sigfúsar Blöndals, „Söfnun Þórbergs Þórðarsonar úr
mæltu máli" sem fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um orðasöfnun hans
og yfirlitsgrein um íslenskar Biblíuþýðingar, „Almúganum til sæmdar og
sáluhjálpar. Um íslenskar Biblíuþýðingar". Allar hafa greinamar birst áður,
í tímaritum, ráðstefnuritum eða afmælisritum, og þær komu upphaflega út
á árunum 1990-2011. Tvær greinar um nafnfræði eru skrifaðar á dönsku en
aðrar em á íslensku. Framan við greinamar er, auk efnisyfirlits og heilla-
óskaskrár (Tabula gratulatoria), formáli ritnefndar, þar sem ferill Guðrúnar
er rakinn í stuttu máli og gerð grein fyrir efni og efnisskipun í ritinu. I bók-
arlok er birt ítarleg ritaskrá höfundar þar sem talið er allt sem birst hefur
eftir Guðrúnu á prenti, frá árinu 1967 til 2013. Ritnefnd bókarinnar skipuðu
þau Gunnlaugur Ingólfsson, Jóhannes B. Sigtryggsson og Þóra Björk Hjart-
ardóttir.
Málvísindi og íslensk málfræði
Höskuldur Þráinsson & Matthew Whelpton (ritstj.). Chomsky. Mál,
sál og samfélag. Reykjavík: Hugvísindastofnun og Háskólaútgáfan.
(385 bls.) ISBN 978-9935-23-016-4.
I tilefni af heimsókn Noams Chomskys á 100 ára afmæli Háskóla Islands2011
var stofnað til þverfræðilegs meistaranámskeiðs þar sem fyrirlesarar voru
úr ýmsum deildum Háskóla íslands auk gestafyrirlesara frá Háskólanum
á Akureyri og Háskólanum á Bifröst. Fyrirlestrarnir fjölluðu um framlag
Chomskys til vísinda, samfélagsmála og stjórnmálaumræðu og sjálfur hélt
hann sérstakan, opinn fyrirlestur um fræðilega afstöðu sína í málvísindum
í tengslum við námskeiðið auk opinbers hátíðarfyrirlesturs um stjórnmál
og samfélag. Báðir fyrirlestrar Chomskys eru birtir í ritinu, hvor um sig
sem inngangur að hinum tveimur hlutum verksins: „Maður, mál og sál"
og „Maður og samfélag". í fý'rri hlutanum eru auk greinar Chomskys, „The
'Generative Enterprise': Its Origins, Goals, and Prospects", ellefu greinar sem