Orð og tunga - 01.06.2014, Blaðsíða 138
126
Orð og tungn
3 Keyrslan á beygingardæmunum
Upprunalega voru beygingardæmin í BÍN búin til með því að nota
tiltölulega einfaldar skriftur þar sem númeraðir orðstofnar í færslum
fyrir einstök orð voru keyrðir inn í ramma með beygingarendingum,
þ.e. beygingarflokk. Niðurstaðan var safn af XML-skrám sem síðan
voru notaðar til að búa til það úttak sem þörf var fyrir, t.d. til birtingar
á vefnum eða til nota í máltækniverkefni. Gagnagrunnurinn sem nú
hýsir BIN virkar á svipaðan máta. Færslan um hvert orð geymir öll
stofnbrigði og upplýsingar um það hvar í beygingardæminu hvert
stofnbrigði á sér stað. Nafnorð eru merkt eftir því hvort þau koma
fyrir í eintölu, fleirtölu eða hvort tveggja, sagnir eru merktar eftir því
hvort þær koma fram í germynd, miðmynd eða hvort tveggja o.s.frv.5
Hver beygingarmynd er síðan geymd í gagnagrunninum með sínu
marki, t.d. ö/cwr<þgf.et.>, sjá Töflu 1.
An greinis (+)
Eintala (+) Fleirtala (+)
Nf. 1+0 akur 3+ar akrar
Þf. 1+0 akur 3+a akra
Þgf. 3+i akri 2+um ökrum
Ef. 1+s akurs 4+a akra
Með greini (+)
Nf. 1+inn akurinn 3+arnir akrarnir
Þf. 1+inn akurinn 3+ana akrana
Þgf. 3+inum akrinum 2+unum ökrunum
Ef. 1+sins akursins 4+anna akranna
Tafla 1. Ramminn fyrir nafnorðið akur.
I Töflu 1 er ramminn fyrir nafnorðið akur, en þar eru engin göt í beyg-
ingardæminu og engin afbrigði. Gildin fyrir beygingarformdeildirnar
eru því alltaf '+', þ.e. eintala = +et., fleirtala = +ft., og ákveðni = +ángi\,
+mgr. (I fleirtöluorði væri gildið fyrir eintöluna -et. og þá verður sá
hluti beygingardæmisins tómur.) Stofnbrigðin akur (1), akr (3 og 4),6
ökr (2) eru tölusett og eru hluti af inntaki fyrir orðið. Á vefsíðunni birt-
ist beygingardæmið á mjög svipaðan hátt og í Töflu 1 en 2. og 4. dálki
er sleppt.
Alengasta úttak á gögnum úr BÍN til máltækninota er einfaldur
5 Nákvæmar upplýsingar um rofana sem ráða birtingu beygingarmynda er að finna
á vefsíðu BÍN: http://bin.amastofnun.is.
6 Sama stofnbrigði fær af tæknilegum ástæðum stundum fleiri en eitt númer.