Orð og tunga - 01.06.2014, Blaðsíða 139
Kristín Bjarnadóttir: Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
127
listi með sex sviðum fyrir hverja beygingarmynd, eins og í úttakinu
fyrir nafnorðið aknr í Töflu 2. Sviðin eru uppflettiorð, auðkennisnúm-
er, orðflokkur eða kyn nafnorðs, hluti orðaforðans í BIN7 (hér 'alm',
fyrir 'almennt mál'), beygingarmynd og málfræðilegt mark eða grein-
ingarstrengur.
akur;472164;kk;alm;akur;NF.ET.
akur;472164;kk;alm;akurinn;NF.ET.MGR.
akur;472164;kk;alm;akur;ÞF.ET.
akur;472164;kk;alm;akurinn;ÞF.ET.MGR.
akur;472164;kk;alm;akri;ÞGF.ET.
akur;472164;kk;alm;akrinum;ÞGF.ET.MCR.
akur;472164;kk;alm;akurs;EF.ET.
akur;472164;kk;alm;akursins;EF.ET.MGR.
akur;472164;kk;alm;akrar;NF.FT.
akur;472164;kk;alm;akrarnir;NF.FT.MGR.
akur;472164;kk;alm;akra;ÞF.FT.
akur;472164;kk;alm;akrana;ÞF.FT.MGR.
akur;472164;kk;alm;ökrum;ÞGF.FT.
akur;472164;kk;alm;ökrunum;ÞGF.FT.MGR.
akur;472164;kk;alm;akra;EF.FT.
akur;472164;kk;alm;akranna;EF.FT.MGR.
Tnfla 2. Úttak úr BÍN til máltækninota.
Rammarnir (sbr. Töflu 1) eru búnir til eftir því sem þörf krefur, í hvert
skipti sem nýfundið afbrigði passar ekki í þá ramma sem þegar eru
til, þ.e. þegar knippi af beygingarreglum dugar ekki fyrir öll afbrigði
einhvers orðs. Vegna þessa er BÍN byggð á beygingu einstakra orða,
ef í það fer, þ.e. kerfið er búið til neðan frá ('bottom-up'). Dæmi um
þetta eru samsett orð sem hafa hvorugkynsorðið vegur sem síðari hluta.
Osamsetta orðið vegur er oftast vegar í eignarfalli eintölu, þó að beyg-
ingarmyndinni vegs bregði einnig fyrir, t.d. í orðasambandinu koni-
ast til vegs og virðingar. I sumum samsetningum af orðinu er eignar-
fallsendingin -s hins vegar ráðandi, t.d. í orðunumfarvegur, jarðvegur og
útvegur. Orðin vegur og akvegur annars vegar og farvegur, jarðvegur og
útvegur skiptast því í tvo beygingarflokka, ef.et: -ar/-s og -s/-ar. Þarna er
ráðandi ending á undan en röðin á beygingarafbrigðum í BIN ákvarðast
yfirleitt af tíðni þó að þar geti margir aðrir þættir komið við sögu.
Beygingarflokkar í BIN eru nú yfir 630 og í sumum þeirra eru
tugþúsundir orða en í öðrum eru stök orð. Þetta stafar stundum af
7 Helstu „hlutar BIN“ eru almennt mál, mannanöfn og ömefni og sérorðaforði
ýmiss konar.