Jólakver - 01.12.1924, Síða 15
ifr
&b:
KÁTT ER Á JÓLUNUM
•\-v\
Æ
HN GIN hátíð er meiri fagnaðarhátíð en jóla-
hátíðin. Hún er móðir allra annara hátíða, því
hún er haldin í minningu þess, sem er upp-
haf hins raikla gleðiboðskapar, — í minningu þess,
að frelsari mannanna fæddist í heiminn. Á engri há-
tíð er eins mikið um dýrðir og á jólunum. Allir
fagna komu jólanna, og allir kosta kapps um að hafa
þá svo mikla viðhöfn og svo mikinn fögnuð, sem
föng eru á. En einkum eru það börnin, sem hlakka
mjög til jólanna.
„Kátt er á jólunum; — koma þau sennu,
segja börnin, þegar jólin nálgast. Löngu, löngu áður
en jólin koma spyrja börnin, hvort nú sé langt til
jólanna, og ef illa liggur á þeim, þegar jólin eru í
nánd, þarf oft eigi annað en kveða við þau þessa
gömlu vísu:
„Það skal gefa börnum brauð,
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,
væna flís af feitum sauð,
er fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð;
gafst hún upp á rólunum“.