Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 9
81
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
staðsett með GPS-staðsetningartæki
og ljósmyndir í góðri upplausn
teknar. Jarðvegur á Sveinahrauni
er víða sendinn og jarðvegseyðing
mikil og þurfti nokkrar atlögur
þangað til viðunandi árangur náðist.
NIÐURSTÖÐUR
Mæld jarðvegssnið
Í ágúst árið 2012 voru mæld
jarðvegssnið sem gáfu góð fyrirheit
um að leysa mætti gátuna um
aldur Sveinahrauns. Þau voru á
tveimur stöðum með um 20
kílómetra millibili á Sveina- og
Randarhólagígaröðinni, þ.e. við
Randarhóla annars vegar og
Vegasveina hins vegar (3. mynd).
Í Randarhólum voru snið mæld
bæði sunnan og norðan gíganna, og
einnig á rofstalli í Jökulsárgljúfrum
(5. mynd). Í Vegasveinum var
snið mælt í gjallnámu í þeim gíg
sem næstur er þjóðveginum um
Mývatnsöræfi (6. mynd).
Í hásuður frá Syðsta-Randarhól
liggur um 1 km löng hrauntunga (5.
mynd). Markast vesturjaðar hennar
af barmi Jökulsárgljúfurs. Vegna
árrofsins má auðveldlega komast að
undirlagi hraunsins (7. mynd, snið 1
á 8. mynd). Ekki var búist við miklu
þegar rótað var í gjallið næst undir
hrauninu en eftir því sem dýpra kom
reyndust jarðlögin þó áhugaverð.
Neðst í sniðinu, næst ofan á grágrýti,
er svart gjóskuríkt sandlag dálítið
malarblandið. Ofan á því er 60 cm
þykkt lag úr loftbornu gjalli, þar
sem stærstu molarnir eru 6–7 cm í
þvermál. Upptök þess eru vafalaust
í Randarhólum sem eru 800 m
norðvestan sniðsins. Um önnur
upptök er vart að ræða. Næst ofan
á gjalllaginu er gráhvítt gjóskulag,
um 2–3 cm þykkt. Hefur hluti af
gjóskunni hripað niður í gegnum
gjallið fyrir neðan. Ofar tekur við
40 cm þykkt lag af sandblönduðu
núnu gjalli, greinilega tilfluttu og
uppsöfnuðu. Síðan tekur við annað
lag af loftbornu gjalli, um 40 cm
þykkt. Þetta lag er fínna í korninu
en það neðra og nær upp undir
hraunið efst í sniðinu. Telja má víst
að gjallið og hraunið tilheyri sama
gosi.
Snið var mælt utan í Syðsta-
Randarhól, norðan megin (snið 3; 5.
og 8. mynd). Þar mátti sjá Heklu-5
mjög glögglega og 26 cm neðar
er dökkt fínkorna lag, mögulega
Saksunarvatns-gjóskan. Annað snið
var mælt um 400 m norðan Syðsta-
Randarhóls, í þykku rofabarði (snið
2 og 2a; 5. og 8. mynd). Þar mátti sjá
gjallið frá gígunum og ljósa (súra)
gjósku næst ofan á því líkt og í sniði
1 sunnar. Fínkorna gjall er næst ofan
á ljósa laginu.
Skömmu eftir að sniðin við
Randarhóla voru skoðuð fannst
gott snið í gjallnámu í Vegasveinum
(7. mynd, snið 4 á 9. mynd). Við
nánari skoðun kom í ljós að ofan
á gjallinu var ljóst gjóskulag (10.
mynd). Eins og við Randarhóla
hafði askan hripað talsvert niður
í gjallið. Ofan á ljósa laginu er um
5. mynd. Snið í Randarhólum og við Hafragilsfoss (snið 1, 2, 3, 5 og 6).42 – Locations of soil
sections east of Jökulsárgljúfur Canyon at Randarhólar and Hafragilsfoss waterfall.