Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 75
147
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Þekkir greinarhöfundur þær vel úr
fjöllum á Norður- og Austurlandi.
Þessi smágrein varð tilefni
„Athugasemdar“ frá Jóni Jónssyni
jarðfræðingi í Náttúrufræðingnum
1985, þar sem hann gagnrýnir
orðafar, einkum orðið jarðsil, sem
Sigurður notaði fyrstur, og bendir
á alþýðuorðið paldrar um þetta
fyrirbæri.
Nokkra undrun vekur það mér að
hvorugum höfundanna virðist hafa
verið kunnugt um að myndanir þær,
sem verið er að lýsa og algengar
eru í hlíðum fjalla, hálsa og hóla
um allt Suðurland, heita PALDRAR.
Það orð er notað í öllum sveitum
Skaftafellssýslu og líklega um land
allt, því spurt hef ég fólk bæði af
Vestfjörðum og Austfjörðum, sem
kannast vel við það. Paldrar geta líka
myndast í litlum halla og er vel þekkt
fyrirbæri í Skandinavíu. Í Svíþjóð eru
þeir nefndir „fårstigar“ (kindagötur).6
Jón var Vestur-Skaftfellingur
að uppruna, því vel kunnugur
alþýðumáli sýslunnar, en hafði
auk þess hlotið háskólamenntun í
Svíþjóð, og ætti því að mega treysta
því sem hann segir um paldra
í Skandinavíu, en þetta er eina
heimild mín í þá veru. Reyndar
nefnir hann líka götupaldra, hryggi
sem verða til milli hestagatna á
gömlum reiðleiðum, og mun það
vera algeng merking orðsins um
allt land.
Frekari skýringar
Ólafur Arnalds jarðvegsfræðingur
hefur ritað margt um jarðveg og
jarðvegseyðingu. Um paldrana
hefur hann m.a. þetta að segja
(2010) (3. mynd):
Meðal megineinkenna norðurslóða
eru áhrif frosts á hlíðar. Moldarefni
og laus jarðefni frjósa á vetrum en
þiðna á sumrin. Þegar vatnið frýs
bólgnar það út um tæp 10% og einnig
meira ef vatn flyst að frostbylgjunni,
eins og skýrt var hér áður. Þegar
þiðnar minnkar rúmmálið á ný.
Þyngdarkrafturinn verkar á þessar
rúmmálsbreytingar, sem veldur togi
á jarðvegsefnum undan hallanum.
Þetta verður til þess að smám saman
myndast bylgjuhreyfing jarðvegsefna
niður brekkuna. Ferlið hefur verið
nefnt jarðsil á íslensku, en heitir
„solifluction“ á alþjóðamálum, en
einnig „gelifluction“. Hér á landi eru
bæði jarðsilstungur ... og stallar, sem
einnig eru nefndir paldrar, algeng
fyrirbrigði í grónum hlíðum. Jarðsil er
þó alls ekki einvörðungu bundið við
grónar hlíðar, það á sér einnig stað í
ógrónum hlíðum.7
Í kennslubókinni Almenn jarðfræði
(2004) er umrædds fyrir bæris getið
á þessa leið:
Í grónum brekkum myndast oft
lágvaxnir þúfnagarðar eða stallar
þvert á hallann. Þessir þúfnagarðar
hafa verið nefndir paldrar, en þeir
3. mynd. Paldrar á Fagradal í Bjarnarhafnarfjalli á Snæfellsnesi. Hlíðin snýr í norður. Myndin er tekin í um 300 m hæð y. s. Ljósm. Ólafur
Arnalds, myndin birtist áður í bók hans „The Soils of Iceland“, 2015.