Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 67

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 67
139 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Innsetning hnitakerfis Forritið Mira Pro UE 8.0 var notað í úrvinnslu. Fyrst var búin til skrá með stöðuhnitum viðmiðsstjarna, og voru þær upplýsingar sóttar í gagnasafn SIMBADs.15 Þessar stjörnur umhverfis 61 Cygni-tvístirnið voru hnitsettar á myndunum til að setja inn hnitakerfið. Það er miðað við miðbaug himins sem 0° breidd, +90° á norðurskauti og –90° á suðurskauti (myndhnitakerfi, e. World Coordination System). Breiddarbaugar himins eru stjörnubreidd, kvarðaðir í gráðum: mín.:sek. Lengdarbaugarnir, stjörnu- lengd, taka mið af tímaás og eru í klst.:mín.:sek. Myndstuðlaaðferð (e. plate constants method) er notuð til að reikna hnitakerfið út frá viðmiðs- stjörnunum. Í aðferðinni er tekið tillit til þess að stjörnur í íhvolfu hnitakerfi varpast á myndflöt.14,19 Til að ákvarða mælifasta (x- og y-hnit hverrar stjörnu) þarf minnst þrjár viðmiðunarstjörnur, en fleiri voru notaðar til þess að auka nákvæmni og með því að vinna á móti aflögun af völdum tíbrár, optískum göllum eða villum í hnitsetningu.16,14 Hnitakerfið var sett inn út frá 13 stjörnum. Þegar búið er að hnitsetja hverja mynd er myndstuðulfasti ákvarðaður með aðferð minnstu kvaðrata (e. least squares method) en Mira-forritið sér um útreikningana sem til þess þarf. Síðan var staðsetning beggja stjarnanna í 61 Cygni, sérhverja mælingarnótt, ákvörðuð sem meðaltal af myndafjölda ásamt staðalskekkju. Vegna þess hvað margar viðmiðs- stjörnur voru notaðar varð óvissa 4. mynd. Stjörnur eru misbjartir ljóspunktar á myndum (A) en á FITS-sniði inniheldur sérhver díll tölugildi ljósmagnsins sem féll á hann. Gögnin eru því í þrívídd (B). Forrit ákvarðar skurðpunkt fyrir stjörnu út frá vægi þeirra díla sem ljósið dreifðist á (Mirametrics, 2015). – Stars appear as dots of different brightness (A) but the FITS format allows every pixel to store the values of the flux it was exposed to. Therefore the data are stored as a 3-D matrix (B). Sophisticated software pinpoints the centroid by the value of numbers pixel on which the starlight hit. 5. mynd. Mæligildi tímabilsins 2012–2016 (svartir punktar) bornar saman við brautarlíkan á A) hornbili, B) stöðuhorni. Tími í júlíönsku dagatali er á x-ás, á vinstri lóðás er hornbil (í bogasek.) en á hægri lóðás gráðuhornið mælt frá 61A í 61B. Brota- línurnar eru brautarlíkön en þau sýna hornbilið aukast um ~0,3“ árin þrjú og stöðuhornið 0,2°. – Measured values from 2012—2016 (black dots) compared to a orbital model of A) distance and B) position angle (PA). Julian date is on the x-axis, separation of the binary on the left y-axis (in arcseconds) and PA in degrees to the right, measured from 61A to 61B. Broken lines are modelled after two recent investigations. They presents extended separation at about 0.3“ in the three years and the PA 0.2°.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.