Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 46

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 46
Náttúrufræðingurinn 118 11. mynd. Loftið yfir fermetranum á 10. mynd. – The ceiling above the square meter on Fig. 10. Ljósm./Photo: ÁBS 2014. 9. mynd. Útlínur Stefánshellis eftir uppdrætti Reichs 1973. Fimm mismunandi gerðir dropstráabrota sem safnað var af einum fermetra gólfs (undir brotstað). Örvar sýna fundarstað. Samtals 1.516 brot, heildarlengd 28,4 m.20 – The outline of Stefánshellir, drawn after Reich’s map 1973. Five different types of fragments collected from one square meter of floor (underneath the breakage area). See arrow. A total of 1,516 fragments, total length 28.4 m.20 Uppdráttur og ljósm./Drawing and photo: ÁBS. 10. mynd. Stækkun úr 9. mynd. Gefur aðeins betri hugmynd um hlutfallslega stærð svæðisins sem safnað var af. – Enlargement of Fig. 11. Gives a little better idea of the relative size of the square meter the fragments were collected from. Uppdráttur og ljósm./ Drawing and photo: ÁBS. 20 dropsteinum sem annar höfunda lagfærði ásamt félaga sínum 1995 höfðu sjö verið brotnir aftur árið 2010. Brot eins höfðu verið fjarlægð. Þá ákváðu höfundar að snúa sér aftur að Stefánshelli. Í fimm ferðum sumrin 2014 og 2015 voru taldir 608 brotstaðir í um þremur fjórðu hlutum hellisins. Þegar sú tala er framreiknuð á hellinn allan má gera ráð fyrir að um 800 dropsteinar hafi verið brotnir og með öllu fjarlægðir úr hellinum (8. mynd). Athugunin sýnir að hver og einn einasti dropsteinn hefur verið fjarlægður. Af örverugróðri og öðrum ummerkjum virðast flestir steinarnir hafa verið teknir snemma, þ.e. strax seint á öðrum og á þriðja áratug síðustu aldar. Sérkennileg hraundrýlaþyrping, sem annar höfunda sá í æsku, hvarf hinsvegar ekki fyrr en eftir 1960. Til að fá hugmynd um skaðann var ákveðið að meta magn dropstráa á tveim aðskildum fermetrum Stefánshellis. Tínd voru upp þau brot sem til náðist á hvorum stað. Afgangurinn, sem metinn var um 30% brotanna í heild, leyndist í sprungum og skorum og var óhægt um vik að ná þeim stráum. Af fyrri fermetranum, undir skreyttasta stað hellisins (9., 10. og 11. mynd), tíndum við 1.516 brot. Meðallengd hvers brots var 19 mm. Heildarlengd brota af þessum eina fermetra var 28,4 m og þyngd um 2 kg. Hvelfingin umhverfis er um 15×30 m, eða um 450 fermetrar. Þar af voru a.m.k. 100 fermetrar jafnskreyttir og fermetrinn sem talið var af. Af síðari fermetranum reyndist heildarlengd brota vera um 8 metrar. Ætla má að að lágmarki hafi 1–2 metrar dropstráa (t.d. 10×10 cm eða 20×5 cm) hangið úr hverjum fermetra hellisloftsins að jafnaði. Stefánshellir er 1.520 m að lengd, að jafnaði 7–8 m á breidd og þannig yfir 10 þúsund fermetrar að flatarmáli. Í allt töldu höfundar og ljós- mynduðu brotstaði 608 dropsteina í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.