Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 69
141
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Mæld hnit stjarnanna tveggja á
tímabilinu voru borin saman við
viðurkennd gildi eiginhreyfingar
og hliðrunar, sem sýnd eru í 1.
töflu, eftir að þau voru framreiknuð
frá upphafstíma hnitakerfisins.
Niðurstöðurnar eru sýndar á
7. mynd. Skálínur lýsa ferð og
stefnu 61 Cygni og GSC 3168:678
vegna eiginhreyfingar samkvæmt
gögnum í SIMBAD.15 Miðlínan er
framreiknuð leið kerfisins 2000–
2018 en á þeim tíma hliðruðust
stjörnurnar ~15,7“. Styttri línur eru
reiknuð leið 61A og 61B frá 2011
en grænir punktar niðurstöður
mælinganna frá 2012–2015. Stjarnan
GSC 3168:678 (efst t.h.) birtist
sem stutt rák vegna lítillar
eiginhreyfingar á sama tímabili,
2000–2018. Í mynd B eru mælistök
borin saman við viðurkennd hnit
viðmiðsstjörnu á mælitíma. Skekkja
í lengd (stjörnutími) er ~0,05“ en 0,3“
í breidd (stjörnubreidd). Það skýrist
af því að stjarnan hliðrast meira í
breidd en lengd.
Á 8. mynd eru síðan sýndar
niðurstöður útreikninga á fjarlægð
með forritinu TrigParallax.14 Það
notar genetískt algrím (GA) til þess
að finna bestu lausn í gegnum
punktasafn, þ.e. á hliðrunarhorninu
(π) í parsekum sem fjarlægðin er
síðan ákvörðuð út frá. Það var
látið reikna 15 lausnir út frá fjórum
forsendum, og eru lausnirnar því
samtals 60 fyrir hvora stjörnu:
i) Allt punktasafnið með gildi
eiginhreyfingar (μ) og π fyrir
tvístirnið 61 Cygni í gagnasafni
SIMBAD; ii) Allt punktasafnið með
gildi μ og π fyrir hvora stjörnu, 61A
og 61B (skráðar HD 201091 og HD
2010992 í gagnasafni SIMBAD) en
6–8 millibogasekúndum munar á
þeim gildum og þeim sem eru skráð
fyrir tvístirnið. Tilgangurinn var
að fá fram hvort sá munur hreyfði
eitthvað við mælingarniðurstöðum;
iii) Sama og í i) en útlagar fjarlægðir
úr gagnasafni; iv) Sama og í ii) en
útlagar fjarlægðir úr gagnasafni. –
Svokallaðir útlagar eru mæligildi
sem lágu meira en 0,1“ frá spálíkani.
Notaðir voru 400 bitar (e. population)
og 80 kynslóðir (e. generation) í hvert
sinn. Meðaltal hliðrunarhorns og
fjarlægðar beggja stjarna er sýnt í
2. töflu.
Umræður
Meginmarkmið með þessu
verkefni var að fá úr því skorið
hvort aðstæður hér á landi leyfa
að meta árlega hliðrun nálægrar
fastastjörnu, og þá hve skýrar
niðurstöður væru. Samhliða var
ætlunin að sjá hversu vel tækist að
nema brautarhreyfingu tvístirnisins
en fyrirfram var vitað að hún er
afar hæg. Niðurstöðurnar sýna
að sjónauki stjörnuáhugamanna
nægir til að nema þessar færslur
stjörnunnar 61 Cygni með allgóðri
nákvæmni á nokkrum árum.
Hægt er að úrskurða að
breyting á hornbili er samkvæmt
líkani Gorshanovs o.fl.,23 þó að
niðurstöður fyrstu árin virðast
ekki skera úr um það (5. mynd).
Veturinn 2015–2016 voru teknar
mun fleiri myndir í hvert sinn og
jók það nákvæmnina í niðurstöðum
á staðsetningu stjarnanna. Stöðu-
hornið virðist þó enn falla með
brautarstikum Kiselevs o.fl.21
Fræðimenn við stjörnustöð Banda-
ríkjaflota (USNO)24 styðjast við
mælingar Gorshanovs í stjörnu-
almanakinu „Sixth Catalog of
Orbits of Visual Binary Stars“ vegna
lengri rannsóknartíma (William I.
Hartkopf, tölvuskeyti til höfundar
28. ágúst 2015). Litlu munar á
niðurstöðum þeirra, einungis 18
árum eða 3%. Mismunur á hornbili
milli þessara rannsókna er 0,07“,
sem er afar erfitt að ákvarða
með litlum sjónauka þrátt fyrir
hugvitsamlegar greiningaraðferðir
við að ákvarða hnit stjarna.
Mæld stjarnhnit beggja stjarna
lenda á reiknaðri stefnu eigin-
hreyfingar, byggðri á viður kenndum
gildum SIMBADs. Mjög skýr munur
kemur fram á hraðri eiginhreyfingu
stjörnunnar 61 Cygni samanborið
við viðmiðs stjörnuna GSC 3168:678
(7. mynd, efst t.h.) á þessu tímabili.
Frá 2012–2015 nam hliðrunin 15,7“
bogasekúndum en yfir sama tímabil
hreyfðist viðmiðsstjarnan um 0,3“.
Samanburður viðmiðsstjörnunnar
við framreiknaða lengd miðlínu frá
2000–2018 sýnir þetta enn betur.
7. mynd. A) Samanburður mældra gilda (grænir punktar) og reiknaðrar eiginhreyfingar.
Innskotsmynd B) sýnir mælistök við viðurkennd hnit viðmiðsstjörnu á mælitíma (ath.
hnitakerfi í bogasekúndum) til að meta gæði mælinga. – A) Observations (green dots)
compared to calculated proper motion of 61 Cygni. The inserted graph B) represents
measurement of reference star to it coordinates to estimate quality of observations.