Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 21
93
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
4. mynd. Fundarstaðir pólrækju og leirblóms við Ísland.
Rauðir punktar merkja fund í trolli en grænir fund í
magasýnum. Ljósbláir punktar sýna fundarstaði
leirblóms. – Known locations of Lebbeus polaris and
Bolocera tuediae around Iceland. Red dots indicate
Lebbeus from bottom trawl, and green dots from
stomach content analysis. Light blue dots indicate
locations of Bolocera.
3. mynd. Pólrækja, lengd 8 cm. – Lebbeus polaris, total length 8 cm. Ljósm./
Photo: Ingibjörg G. Jónsdóttir.
Við kortlagningu búsvæða á hafsbotni, og sérstaklega
við rannsóknir á viðkvæmum búsvæðum, notar
Hafrannsóknastofnun neðan sjávar upptökuvélar og
ljósmyndavélar. Þeim er komið fyrir á sérsmíðaðri grind (5.
mynd) sem hangir neðan úr rannsóknaskipinu og svífur
rétt ofan við sjávarbotninn. Upptökuvélin er í gangi allt
sniðið sem siglt er yfir en stafrænar ljósmyndir eru teknar
handvirkt með reglubundnum hætti. Ljósleiðarakapall
flytur myndefnið frá myndavélunum beint upp í skipið
og er hægt að fylgjast þar með í rauntíma. Tækjunum
stjórnar tæknimaður en auk hans er líffræðingur á
vakt og skráir það helsta sem fyrir ber (6. mynd).
Hafrannsóknastofnun hefur með þessum hætti tekið 137
snið til ársins 2012, öll fyrir sunnan og vestan landið (7.
mynd). Eins og sjá má hefur neðansjávarmyndefni verið
safnað af fáeinum svæðum við landið. Staðsetning sniða
er valin með tilliti til ólíkra þátta, botnlags, veiðiálags,
þarfa á upplýsingum um ákveðin búsvæði o.fl. Áhersla
hefur verið á að kortleggja viðkvæm svæði, svo sem
kóralsvæði.1,2,14
Neðansjávarljósmyndun
5. mynd. Myndavél hífð um borð á sérsmíðaðri grind. – The
camera taken aboard. Ljósm./Photo: Stefán Á. Ragnarsson.
6. mynd. Tæknimaður og líffræðingar að störfum um borð í
Bjarna Sæmundssyni. – A technician and biologists working
abord the research vessel Bjarni Sæmundsson. Ljósm./Photo:
Steinunn Hilma Ólafsdóttir.
7. mynd. Snið (rauð) sem Hafrannsóknastofnun hefur skoðað
með neðansjávarmyndavélum. – Areas that The Marine and
Freshwater Research Institute has studied using camera.