Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 34
Náttúrufræðingurinn
106
8. mynd. Í Þórsmörk hefur landnám birkis verið mikið frá síðustu úttekt, og er hún að því leyti dæmigert svæði. Þórsmörk er eitt elsta
beitarfriðland á landinu, girt fyrst 1924. Kortið til vinstri sýnir eldri kortlagninguna frá 1987–91 en hægra megin er nýja kortlagningin
frá 2010–14. – The figure shows the mapped birch woodland in the 1987–91 inventory (left) compared with the same area mapped in the
inventory presented in this paper. Two height classes, higher than 2 m (brown) and lower than 2 m (yellow) are shown on the map from
1987–91. On the map from 2010–14 the height at maturity is shown; shrubland (<2 m) (yellow), woodland (2–5 m) (brown) and forest
(>5 m) (red). The area, Þórsmörk in South Iceland is a typical area where the birch has expanded rigorously since last inventory. The area
is one of the most popular tourist areas in Iceland and was one of the first woodland areas to be fenced off and protected from grazing in
1924. Mynd/Fig.: Björn Traustason 2016.
gagna og þekkingar var þessi aðferð
að okkar mati best til að meta
flatarmálsaukningu birkis frá 1989
til 2012. Það sem vegur upp á móti
mögulegu vanmati á aldri birkisins
er óvissa um þau birkisvæði sem
eldri kortlagning náði ekki til og
hafa mögulega eyðst frá árinu
1989. Önnur og einfaldari aðferð
við að meta breytingu á flatarmáli
birkis frá einum tíma til annars er
að bera beint saman niðurstöðu
flatarmálsmælinga milli úttekta.
Með slíkri aðferð er aukningin frá
1989 til 2012 metinn 323 km2 sem er
2,5 sinnum meira en athugun okkar
sýndi. Í ljósi þeirra skekkna og galla
sem voru á fyrri úttektum og þegar
hefur verið lýst var það mat okkar
að þessi aðferð væri síðri en sú leið
sem við fórum.
Mikill munur reyndist vera á
nýliðun milli landshluta og vakna
því spurningar um hvað valdi. Þær
ástæður sem oftast eru nefndar
fyrir aukinni nýliðun birkis eru
minnkandi beit vegna breytinga
á landnýtingu og batnandi
vaxtarskilyrði með breyttu veðurfari,
og þá ekki síst hlýrri sumrum. Þær
greiningar sem hér voru gerðar
benda til þess að báðir þessir þættir
hafi áhrif, þó að samband þeirra við
aukna útbreiðslu birkis hafi ekki
reynst marktækt.
Ekki er víst að tölur um
sauðfjárfjölda endurspegli vel
beitarálag innan kortlagðra birki-
reita. Neikvæð áhrif beitar á
ný liðun birkis er vel þekkt og sýna
niðurstöður rannsókna að nýliðun
eykst með beitarfriðun.44,45 Þá
sýna rannsóknir að nýliðun birkis
eykst með hækkandi hitastigi.46,47
Möguleg útbreiðsla birkis er
margfalt það svæði sem birki vex á
nú um stundir.11 Það þýðir að fyrir
hendi eru hitafarslegar aðstæður
fyrir margfalda þá birkiþekju sem
nú er til staðar. Útbreiðsla birkis
gæti orðið enn meiri með hækkandi
hitastigi. Þetta mátti þegar sjá á
Vestfjörðum þar sem töluvert var
um landnám birkis ofan við eldri
birkisvæði. Það er athyglisvert að
birkileifar er að finna á svæðum þar
sem sumarhiti er 2,1°C hærri en að
meðaltali á landinu öllu. Það gefur
vísbendingar um að sumarhiti sé
mikill áhrifavaldur þegar kemur að
viðhaldsþrótti birkilendis. Nýlegar
rannsóknir á magni frjókorna
3. tafla. Nýliðun og flatarmálsaukning birkilendis á Íslandi frá árinu 1989. – Newgrowth
and expansion of the natural birch woodland in Iceland since 1989 classified by regions.
Landshluti
Region
Nýliðun
Newgrowth
km2
Hlutfall af
Ratio of
birki í landshluta
birch in region
%
af heildar nýliðun
total newgrowth
%
Vesturland 28 7 22
Vestfirðir 44 14 34
Norðurland 8 3 6
Austurland 7 4 6
Suðurland 43 13 33
Nýliðun alls
Total newgrowth
130 9 100