Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 50
Náttúrufræðingurinn
122
14. mynd. Ljósmyndataka er hluti af hellamennsku og reyndist mikilvægur þáttur í
friðlýsingarferli Kalmanshellis. Hæð til lofts um 130 cm fjær og 200 cm næst. Enginn
kemst þarna um án þess að skaða hellinn, en erfitt getur verið að neita sér um að kanna hvað
handan býr. Viðkvæmasta hluta Kalmanshellis var lokað í tveimur áföngum sumrin 2006
og 2007 og hellirinn allur friðlýstur 2011. – Photography is a part of caving and proved to
be an important factor in the process of having Kalmanshellir preserved. The cave was gated
in 2006/2007 and proclaimed a national monument in 2011. Ljósm./Photo: ÁBS 1994.
myndunum eru ótrúlega lítil,
eins og ljósmyndir úr ósnortnum
hraunhellum sýna. 12. mynd er
tekin í Jörundi, sem er u.þ.b. 7–8
þúsund ára gamall; 13. mynd í
Árnahelli í Leitahrauni sem er um
5.600 ára gamall; 14. mynd var
tekin í hinum viðkvæma hluta
Kalmanshellis sem er í sama hrauni
og Surtshellis-Stefánshelliskerfið og
jafngamall. Líklegt er að skraut
Stefánshellis hafi, a.m.k. á nokkrum
stöðum, verið svipað því sem fram
kemur á 12. mynd.
Skemmdir á dropsteins-
myndunum Stefánshellis hófust
líklega fljótlega eftir að Stefán
uppgötvaði hellinn 1917. Smádrýlin,
eða hellahraundrýlin, voru líklega
fjarlægð snemma á sjöunda
áratugnum.
Það er hreint ótrúlegt hve
„vel“ hefur verið gengið til verks.
Dropsteinsmyndanir hellisins hafa
verið gereyðilagðar. Vel á annan
tug kílómetra af dropstráum hefur
verið brotinn úr lofti hellisins í
algeru tilgangsleysi. Sjöhundruð og
fimmtíu til áttahundruð dropsteinar,
hver og einn einasti steinn hellisins,
hefur verið fjarlægður. Fleiri en
þúsund dropsteinar hafa verið
brotnir í Víðgelmi.
Annar höfunda (Árni) þekkti
Víðgelmi frá ferðum 1959 og
1961. Mikilfenglegar ísmyndanir
voru þá fremst í hellinum, m.a.
feiknamiklar íssúlur sem náðu til
lofts. Dropsteinsmyndanir framan
til í hellinum voru farnar að láta á
sjá. Raskið minnkaði eftir því sem
innar dró og myndanirnar hreint
stórkostlegar. Hellirinn, allur ísinn
og steinskrautið er enn ferskt og
lifandi í endurminningunni.
Umræður voru um það við eld-
húsborðið í Kalmanstungu þegar
á sjötta áratugnum að gerlegt væri
og líklega rétt að loka Víðgelmi.
Víðgelmi var lokað í október 1990.32
Steinarnir sem gert var við 1995 voru
brotnir aftur eftir lokun hellisins og
eftir að umferð var takmörkuð við
leiðsögn og „ábyrga hópa“.33
Auk þess að hafa áratugareynslu
af hraunhellum landsins, rannsókn
þeirra, verndun og varðveislu hafa
höfundar kynnt sér hraunhella um
víða veröld og farið í marga þeirra.
Enginn hraunhellir jarðar kemst í
námunda við Víðgelmi að skrauti
til. Það er mat okkar að Víðgelmir
hafi verið skreyttasti stórhraunhellir
í heimi.
Stefánshellir var líklega næst-
skreyttasti hraunhellir veraldar.
Þegar tekið er mið af fjölda
dropsteina og smádrýla sem
fjarlægt hefur verið úr Stefánshelli,
magni dropstráabrota og -salla og
brota hraunstráaflækna á gólfi, af
fjölbreytileika ganga og flóknu
gangakerfi, þá er það mat okkar
að Stefánshellir hafi líklega verið
fegursti hraunhellir sem mannsaugu
hafa litið. Með þeim fyrirvara að
fegurð er auðvitað afstæð, háð
augum og öðrum skilningarvitum
þess sem skynjar, innri tilfinning
tengd bakgrunni skynjandans,
líðan hans, þekkingu, hugarástandi,
reynslu og tilfinningalífi.
Tilvist Stefánshellis spurðist
líklega fljótt út, meðal annars
með kynningargrein Matthíasar
Þórðarsonar í Eimreiðinni 1920.19
Stefánshellir varð þannig strax
„almannaeign“: Eftirsóknarverður
til heimsóknar og aðgengilegur.
Auðvelt er að fara um hellinn
og gólfin slétt. Þar er að vísu
hægðarleikur að villast, en einmitt
sá eiginleiki gerir Stefánshelli
svo skemmtilegan heimsóknar.
Skemmdir á dropstráum Stefáns-
hellis reyndust hins vegar umfangs-
meiri og ótrúlegri en okkur óraði
fyrir. Verður það að teljast merkilegt
í ljósi þess að annað okkar nánast
ólst upp í hellinum, hafði náin
kynni af þeim sem fann hellinn og
þeim sem fyrst fóru þar um, og
hefði því átt að gera sér grein fyrir
skaðanum.
Stefánshellir kúrir enn þarna
í hrauninu. Smíði og íverustaður
eldjötunsins, rændur innbúi og
innanstokksmunum. Má vera
stoltur af fortíð – sem enginn
núlifandi maður hefur augum litið.
LOKAORÐ
Vera má að Matthías Þórðarson
minnist ekki einu orði á
dropsteinsmyndanir Stefánshellis