Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 78

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 78
Náttúrufræðingurinn 150 stað – á bls. 182 þar sem hugtakið silungur er ekki útskýrt og virðist gegna öðru hlutverki en sem yfirheiti urriða og bleikju. Prófarkalestur er til fyrirmyndar og varla misfellu að sjá – því er villa í nafni yfirlesarans sérkennileg tilviljun! Skrá um atriðisorð og sérheiti er ýtarleg og góð. Heimildaskrá er sömuleiðis vel unnin. Hér á eftir set ég fyrst fram nokkur almenn gagnrýnisatriði, síðan lýsi ég aðalatriðum hvers kafla og bendi bæði á það sem vakti sérstaka athygli mína og það sem betur hefði mátt fara. Það sem mér þótti helst vanta í bókina er sögulegt yfirlit um rannsóknir á lífríki landsins, einkum vistfræðirannsókna þar sem getið væri þeirra vísindamanna sem mest hafa komið við sögu. Afar fáir eru nefndir á nafn og þótt vel sé vitnað í heimildir þá þýðir notkun númerakerfis í tilvitnunum að lesandi þarf að fletta heimildinni sérstaklega upp. Hætt er við að margir geri þetta ekki og kynnist því ekki nöfnum frumherjanna og þeirra sem tóku við kyndlinum. Í öðru lagi kemur fyrir að skipulag efnis er ekki alveg rökrétt (sjá kafla um lífríki sjávar og lífríki þurrlendis). Í þriðja lagi virðast þau mistök hafa verið gerð að nota aðeins tvær leturstærðir í fyrirsagnir – undantekning er kaflinn um Lífríki þurrlendis þar sem þær eru fleiri. Stundum er augljóst að stigskipting efnis var meiri en leturstærð gefur tilefni til að halda. Að lokum geri ég athugasemdir við frágang á nokkrum skýringarmyndum, kortum og línuritum þar sem texti er of takmarkaður, litir ekki nægilega aðgreinanlegir eða upplýsingar vantar við ásana (kort bls. 23, 25, 35, 55, 57, 59, 66, 90, 98, 111, 148, 150, 177, 197, 213, 225, 264). Þetta á einkum við um smærri myndirnar. Kafli 1. Eyjan Ísland á jaðri norðurhjarans (bls. 9–39) Þessi kafli er sérlega fræðandi og gefur mjög gott yfirlit yfir efnið. Þar er fyrst fjallað um hvernig lífverur á okkar einangruðu eyju hafa mótast af legu landsins, árstíðum og loftslagi. Gott yfirlit er síðan gefið um loftslag, sjóinn við Ísland, berggrunn, eldvirkni, jarðveg, vatnafar, jökla og jarðhita. Sérlega skýr tafla (bls. 16) sýnir hvaða umhverfisþættir hafa mest áhrif á plöntur og hvernig aðlögun þeirra birtist í byggingu, starfsemi og lífsögu. Hér er einstaklega skemmtileg frásögn af því hvernig humlur hafa aðlagast köldu loftslagi með því að stjórna líkamshitanum. Nýleg flokkun íslensks jarðvegs á bls. 32 og jarðvegskort af landinu sem Ólafur Arnalds á mestan heiðurinn að er mjög upplýsandi. Kafli 2. Saga lands og lífríkis (bls. 41–81) Byrjað er á stuttu yfirliti um sögu landsins en síðan fjallað um þróun lífríkisins frá því fyrir 16 milljónum ára, þegar gróður á Íslandi líktist laufskógunum á norðausturströnd Bandaríkjanna, fram á okkar daga. Þá er kafli um lífríkið á nútíma, tilgátur um hvort tegundir lifðu af jökulskeiðin, kafli um Surtsey, kafli um skyldleika lífríkisins við önnur lönd og að lokum eru sérkenni lífríkis á Íslandi dregin fram. Einkar fróðlegt er að lesa um það að tengslin við meginlönd vestan við okkur um landbrýr hafa líklega ekki rofnað fyrr en fyrir um 15 milljónum ára sem er 10 milljónum ára seinna en jarðfræðin hefur löngum gefið til kynna. Þetta sést meðal annars af steingervingum. Lesandinn fræðist um plöntulífið fyrr á tímum, um dýralíf á þurrlendi og í sjó og um gróðurbreytingar og skordýralíf á tertíer. Góðar myndir skýra textann. Gott yfirlit er gefið um lífríkið á nútíma þar sem setlaga- og frjókornarannsóknir staðfesta ritaðar heimildir um loftslag um og eftir landnám, og sýna að hér kólnaði á 12. öld og hélst kalt í sex aldir. Með ördeyðutilgátunni annars vegar og vetursetutilgátunni hins vegar er fjallað um hvort lífverur hafa lifað af ísaldirnar og þá hvernig. Framfarir í erfðafræði, þar sem erfðaefni mismunandi stofna er skoðað með mikilli nákvæmni, hafa breytt fyrri hugmyndum og sýnt að ýmsar tegundir virðast hafa borist oft til landsins og frá mörgum stöðum. Sú hugmynd að einhverjar tegundir hafi lifað af ísöldina er að mestu kveðin í kútinn. Fábreytni lífríkisins og tegundafæð, sú staðreynd að afar fáar tegundir finnast eingöngu hér Horft frá Kömbum til Skaftár og Uxatinda í Skaftárhreppi. Ljósm. Snorri Baldursson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.