Bókasafnið - 01.06.2016, Qupperneq 41
Bókasafnið 40. árg – 2016 41
ingu og hefur þetta bókasafn verið tilnefnt áður. Einnig
hefur það verið valið „Skolbibliotek i Världsklass / World
Class Library“, síðustu þrjú árin, 2013-2015. Fyrir þeirri
viðurkenningu stendur DIK, fag- og stéttarfélag háskóla-
menntaðra bókasafns- og upplýsingafræðinga.
Nya Malmö Latin
Eftir hádegi á öðrum degi ferðarinnar fór hópurinn í Nya
Malmö Latin á Drottninggatan 22. Nya Malmö Latin er
900 nemenda skóli sem var stofnaður árið 2014. Hann varð
til við sameiningu þriggja framhaldsskóla en byggir þó á
einum elsta skólanum í Malmö, Malmö Latinskola, sem
rekur sögu sína allt til 15. aldar. Hinir skólarnir hétu fyrir
sameininguna Heleneholms gymnasium og Mediegym-
nasiet. Meginhluti skólahússins er nýbygging sem reist var
við glæsilegt um það bil 200 ára gamalt skólahús gamla
Latinskolans. Þetta er hefðbundinn menntaskóli með hug-
vísinda-, náttúruvísinda- og samfélagsgreinar auk listnáms-
brauta og er framboð af listnámsgreinum mikið.
Við sameiningu skólanna og bókasafna þeirra var sú stefna
tekin að fækka bókum en leggja meiri áherslu á stafrænt
efni. Bókatitlum var fækkað úr fjörutíu þúsund í um það bil
átta þúsund og bækurnar sem ekki voru notaðar voru gefnar
öðrum bókasöfnum og stofnunum. Þær sem ekki gengu út
voru nýttar í listsköpun innan skólans. Við sáum allmörg
listaverk á bókasafninu og á göngum skólans unnin úr
gömlu bókunum. Glæsileg endurnýting sem gladdi augað.
Mikil áhersla er lögð á kennslu listgreina í skólanum, leik-
list, kvikmyndir, tónlist, dans og myndlist og er mikil sam-
vinna og samþætting milli listgreinanna og annarra náms-
greina.
Á bókasafninu starfa þrír bókasafns- og upplýsingafræð-
ingar sem tóku vel á móti okkur og leiddu okkur um safnið
og sögðu frá starfseminni. Bókasafnið er mjög miðsvæðis í
skólanum, staðsett í nýbyggingunni á mótum þeirrar nýju
og gömlu. Það er bjart og opið, mjög nútímalegt. Mikið
er af þægilegum stólum og sófum sem nemendur virtust
kunna vel að meta.
Skólinn leggur mikla áherslu á að auka læsi nemenda
og taka starfsmenn bókasafnsins virkan þátt í því í góðri
samvinnu við kennara skólans. Einnig standa starfsmenn
bókasafnsins fyrir ýmsum uppákomum þar sem kynntar eru
nýjar bækur eða bókmenntir sem hvetja til bóklesturs.
Skólinn er virkur í samstarfi 11 skóla í Malmö og Kaup-
mannahöfn varðandi úrræði vegna brottfalls nemenda úr
framhaldsskólum og fengum við ágætan fyrirlestur frá verk-
efnisstjóra skólans um málefnið.
Fredriksborg Gymnasium og HF
Á þriðja degi heimsóknarinnar var haldið til Hillerød, sem
er um 40 km utan við Kaupmannahöfn, og Frederiks-
borg Gymnasium og HF sóttur heim. Skólinn stendur á
gömlum merg því Kristján IV konungur stofnaði hann í
Friðriksborgarhöll árið 1630. Nú er skólinn nútímalegur,
einn af stærstu framhaldsskólum landsins og býður upp
á 2ja ára nám (HF, 10% nemenda) og 3ja ára nám (90%
nemenda). Nemendur eru rúmlega 1300 á aldrinum 16-20
ára, og meira en 130 kennarar starfa þar. Náttúrufræði-,
félagsfræði- og tungumálabraut eru við skólann en áhersla
er einnig lögð á skapandi greinar og alþjóðlega samvinnu.
Hver nemandi fer á námstímanum að minnsta kosti einu
sinni með skólanum í kynnisferð til útlanda.
Bókasafnið er ekki mjög stórt en er á tveimur hæðum.
Þar starfar einn bókasafns- og upplýsingafræðingur í fullu
starfi, auk aðstoðarmanns í hlutastarfi og tveggja nemenda
sem sjá um innröðun gagna. Safnið er opið 40 tíma á viku
á starfstíma skólans. Öflugt samstarf er á milli almenn-
ings- og skólabókasafnsins í bænum. Safnkosturinn er um
13.000 bindi og meira en 500 mynddiskar auk tímarita. Þar
er einnig gott handbókasafn, kennslufræðisafn, sem stað-
sett er á vinnustofu kennara, og aðgangur er að nokkrum
gagnasöfnum. Ennfremur eru eintök af mest notuðu
kennslubókunum úr kennslugagnasafninu aðgengileg á
safninu. Í Danmörku, líkt og í Svíþjóð, fá nemendur í fram-
haldsskólum ókeypis kennslugögn í skólanum og á hver
skóli safn kennslubóka, oftast kallað „bogkælderen“ sem
helgast af því að víðast hvar er aðstaðan í kjallara skólanna.
Þar er sérstakur starfsmaður sem sér um útlán til kennara
og nemenda, bekkjarsett sem kennarar taka með sér og/
eða bækur á einstaklingsláni, allt eftir kennslumarkmiðum
hverju sinni. Útlán eru til dæmis oft til eins árs. Aðstaða er
fyrir einstaklingsvinnu og hópvinnu á safninu og aðgangur
er að tölvum, prentara og ljósritunarvél. Gögn safnsins eru
lánuð út, mánuð í senn, til nemenda og kennara. Útlán
eru rafræn eða skrifuð á seðla og millisafnalánsþjónusta er
fyrir kennara. Listar yfir nýkomið efni eru birtir í vikulegu
málgagni skólans. Bókasafnsnefnd, skipuð starfsmönnum
Sagt frá samspili birtu og skugga í almenningsbókasafninu í Malmö
Skólabókasafnið í Frederiksborg Gymnasium