Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 32
Fatakeðjan Lindex hefur lagt svokallaða Generous deild fyrir stærri stærðir
af og bætt í staðinn stærri stærðum inní allar tískulínur í dömudeild fyrirtæk-
isins og breikkað þannig úrvalið fyrir dömur í stærri stærðum.
Stærri stærðir í öllum dömulínum
Jack McCollough og Lazaro Hernandez, yfirhönnuðir Proenza
Schouler, sýndu litríka línu fyrir sumarið. Þeir hafa unnið mikið
með milda, náttúrulega liti í línum tískuhússins undanfarið og var
því áberandi og djörf litapallettan hressandi tilbreyting. Eins og
vanalega lögðu hönnuðirnir áherslu á smáatriði og fallegt hand-
bragð. Á heildina litið var línan vel samsett og falleg.
Proenza Schouler
AFP
HRESSANDI LITABOMBA
Alexander Wang var samur við sig
þegar hann sýndi sumarlínuna þar
sem hann vann með afbyggingu
hefðbundins fatnaðar.
Fötunum var blandað á óhefð-
bundinn og spennadi máta og lýsti
hönnuðurinn sýningunni sem „50
Shades of Grey mætir Lords of Dog-
town“. Að lokinni sýningu tilkynnti
hönnuðurinn að hann hefði hafið
samstarf við Adidas og sýndi jafnframt
nokkrar flíkur úr þeirri línu. Ekki er
vitað hvenær sú lína kemur í verslanir.
Alexander
Wang
AFBÖKUN Á HEFÐBUNDNUM FATNAÐI
AFP
SILKIFLAUEL OG VÍDD
Victoria Beckham
TÍSKA
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Phillip Lim sótti innblástur á
æskuslóðir sínar í Los Angel-
es fyrir litríka sumarlínu
hönnunarhússins. Línan var
afslöppuð en í senn örlítið
sportleg. Þá voru skór og
fylgihlutir ekki síður spenn-
andi í þessari líflegu línu.
LOS ANGELES OG LITAGLEÐI
Tískuvikan í
New York
Tískuvikunni í New York lauk í vikunni en þar sýndu helstu
tískuhús Bandaríkjanna sumarlínur sínar 2017. Hér gefur að
líta brot af þeim sýningum sem báru af á tískuvikunni.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Sumarlína Victoriu Beckham einkenndist af ljós-
um litum og flæðandi efnum. Victoria vann
með svipuð snið og í fyrri línum sínum en þó
vann hún með meiri vídd að þessu sinni í efn-
um á borð við silki og silkiflauel.
Það sem vakti einnig athygli var áhersla á
brjóstahaldarann, ýmist var hann sýnilegur
undir kjólunum eða sniðinn á flíkurnar. Við
þessa fínlegu línu klæddust fyrirsæturnar gróf-
um leðurstígvélum sem rokkuðu upp heildina.
3.1 Phillip
Lim