Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Jón Þórisson jonth@mbl.is „Stóru fréttirnar í þessu eru hvað hið hefðbundna flokkakerfi stendur illa. Fjórir stjórmálaflokkar sem voru ríkjandi mestalla 20. öldina. Verði úrslit kosninganna í samræmi við niðurstöður nýjustu könnun- ar Félagsvísinda- stofnunar eru þrír þeirra, Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknar- flokkur og Sam- fylking, sem á uppruna sinn í Alþýðuflokki, að fá verstu útkomu frá upphafi,“ seg- ir Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í mynd hér að ofan sést hvernig fylgið hefur þróast frá byrj- un sumars. Rétt er að gera fyr- irvara um samanburðarhæfi kann- ana Þjóðarpúls Gallup og Félagsvísindastofnunar. Engu að síður ætti myndin að gefa vísbend- ingu um þróunina undanfarna fimm mánuði. Þriðjungs fylgistap frá 2009 „Samanlagt fylgi þessara flokka í könnuninni er 56% ef maður slær lauslega á það, sem er langsamlega versta niðurstaða þeirra frá því nú- verandi flokkakerfi varð til. Þeir fengu slæma útreið síðast og fóru niður í 75%, en 2009 voru þeir með 90%. Það vekur svo spurningar um framhaldið. Það er engin tveggja flokka stjórn í kortunum, sem ekki hefur gerst áður. Líkurnar á þriggja flokka stjórn eru ekki mjög miklar, miðað við hvernig hún þyrfti þá að vera samsett.“ Gunnar Helgi segir að þessa þróun sé ekki að merkja með sama hætti í öðrum löndum. „Það eru vissir þættir sem hægt er að sjá í mörgum löndum, en ekki að hefðbundið flokkakerfi sé að molna niður.“ Svarhlutfallið í þessari könnun Félagsvísindastofnunar er um 61%. „Almennt séð eru þeir líklegri til að svara í könnun sem ætla sér að mæta á kjörstað. Að vísu er fólk mismunandi líklegt til að mæta á kjörstað. Rannsóknir sýna að ungt fólk skilar sér ekki jafnvel á kjör- stað og aðrir aldurshópar,“ segir Gunnar Helgi. Hann segir þetta skapa ákveðna óvissu um forspár- gildi kannana. „Píratar eru með yngsta stuðningsmannahópinn og þetta skapar ákveðna óvissu um þeirra hlut í kosningunum.“ Lítill áhugi á stjórnarskrármáli Gunnar Helgi segir erfitt nefna eitthvert eitt atriði sem þessar kosningar snúast um öðrum fremur. „Það er mikill mismunur á því sem flokkarnir ræða um og svo því sem kjósendur hafa áhuga á. Þetta eru dæmigerðar velmegunarkosningar. Kjósendur eru mjög uppteknir af velferðarmálum, af heilbrigðismál- um, húsnæðismálum og málefnum aldraðra og öryrkja. Af því að hag- kerfið gengur frekar vel þá er minna rætt um uppbyggingu efna- hagslífsins, skattamál og harðari efnahagsmál. Almennt séð myndi maður telja að umræða um velferð- armál gagnist betur vinstri flokkum og á hinn bóginn myndi umræða um skattamál og efnahagsmál gagnast hægri flokkum. En síðan hafa ákveðnir þættir kosningabaráttunn- ar snúist um annars konar mál, sér- staklega stjórnarskrármálið, sem vekur ekki mikinn áhuga kjósenda.“ Fylgi flokka sem mælast yfir 5% í könnunum Félagsvísindastofnunar og Þjóðarpúls Gallup 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Júní 2016 Þjóðarpúls Gallup Júlí 2016 Þjóðarpúls Gallup Ágúst 2016 Þjóðarpúls Gallup September 2016 Þjóðarpúls Gallup 6. október 2016 Félagsvísinda- stofnun HÍ 13. október 2016 Félagsvísinda- stofnun HÍ 20. október 2016 Félagsvísinda- stofnun HÍ 27. október 2016 Félagsvísinda- stofnun HÍ 28. október 2016 Þjóðarpúls Gallup Alþingis- kosningar 2013 Framsóknarflokkurinn Björt framtíð SamfylkinginSjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Píratar Viðreisn 28% 25% 10% 15% 9% 8% 3% 26% 25% 9% 17% 9% 8% 4% 26% 26% 9% 16% 11% 8% 3% 25% 23% 9% 13% 12% 9% 3% 26% 19,8% 9,7% 16,5% 11,7% 6,3% 4% 21,5% 17,5% 8,6% 17,7% 11,4% 6,9% 7,7% 21,1% 22,6% 9,1% 18,6% 8,8% 6,5% 6% 22,5% 21,2% 10,2% 16,8% 11,4% 5,7% 6,7% 27% 17,9% 9,5% 16,5% 8,8% 7,4% 6,8% 26,7% 24,4% 12,9% 10,9% 8,2% 5,1% *Aðferðarfræði Gallup og Félagsvísindastofnunar er ólík og það gæti haft áhrif á samanburðarhæfi kannanana. Velmegunarkosningar framundan  Mikill munur á því sem flokkarnir ræða um og því sem kjósendur hafa áhuga á að mati prófessors í stjórnmálafræði  Lítill áhugi á stjórnarskármálinu þó hluti kosningabaráttunnar hafi snúist um það Morgunblaðið/Árni Sæberg Gert klárt Katrín Jakobsdóttir fékk aðstoð við að láta jakkann sitja rétt fyrir kappræðurnar í sjónvarpssal í gær- kvöldi. Benedikt Jóhannesson og hinir stjórnmálaforningjarnir biðu eftir að komast í kræsingarnar. Gunnar Helgi Kristjánsson ALÞINGISKOSNINGAR 2016 GRANCANARIA Netverð á mann frá kr. 161.595 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 189.325 m.v. 2 fullorðna í íbúð. Turbo Club Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Um jólin til Frá kr. 161.595 m/allt innifalið22. des í 10 nætur Þjóðin gengur til almennra kosn- inga til Alþingis í dag, laugardag- inn 29. október, og verða flestallir kjörstaðir opnaðir klukkan níu og er hægt að kjósa á flestum þeirra til klukkan 22 í kvöld. Að þessu sinni eru 12 stjórnmálaflokkar sem bjóða fram lista og eru 1.302 einstak- lingar í framboði til Alþingis. Meðalaldur frambjóðenda í fjór- um efstu sætum er lægstur í Suð- vesturkjördæmi, 43 ár, og hæstur í Norðausturkjördæmi, 49 ár. Yngsti frambjóðandinn að þessu sinni er 18 ára gamall. Kemur þetta fram á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is. Í framboði eru 716 karlmenn og 586 konur, og karlar eru því 55% af heildinni. Kjósendum fjölgað talsvert Fjöldi nýrra kjósenda sem gátu ekki vegna aldurs kosið í síðustu al- þingiskosningum árið 2013 er 15.743. Breyting milli áranna 2013 og 2016 er því 3,6%. Í ár er fjöldi kjósenda alls 246.515, en þeir voru árið 2013 237.957 talsins. khj@mbl.is Kjósendur yfir 240 þúsund  Yngsti fram- bjóðandinn í kosn- ingunum er 18 ára Morgunblaðið/Ómar Á kjörstað Kjósendum á kjörskrá hefur fjölgað um 8.700 frá vorinu 2013.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.