Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 79
nánast heyrnarlaus og með
göngugrind við sófann.
Jóna mín, þú fórst ekki ein í
gegnum baráttu þína, þinn
elskulegi jákvæði Biggi stóð þér
við hlið ásamt börnum, tengda-
börnum og tengdafjölskyldu.
Guð gefi fjölskyldunni styrk á
þessum erfiðu tímum.
Elsku Jóna, ég kveð þig með
þakklæti fyrir allt það sem þú
gafst mér, sem lítilli stelpu að fá
að skottast með þér ófáar bæj-
arferðirnar, vináttu alla tíð og öll
prjónalistaverkin þín fyrir mig
og börnin mín.
Jóna mín, „það þarf fólk eins
og þig“.
Þín
Kristný.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H. )
Skrítið og erfitt að sitja hér
og kveðja þig, kæra vinkona. Þú
þurftir að lúta í lægra haldi fyrir
krabbanum. Við brölluðum svo
margt saman og nú flæða minn-
ingarnar. Vorum með börn á
sama aldri sem gengu inn og út
á báðum heimilum. Prjónuðum
margt og mikið, lituðum augun
og kláruðum peysurnar fyrir
Þjóðhátíðarnar. Fórum saman í
sumarbústað þrjár fjölskyldur,
bara gleði og gaman. Gengum
um hverfið og seldum fyrir
Krabbavörn, þú alltaf svo tilbúin
að gera allt fyrir alla. Síðasta ár
var þér erfitt en þetta verkefni
ætlaðir þú að vinna vel og klára
með sigri. Við ætlum okkur
margt en Guð ræður og hann tók
þig frá okkur alltof snemma.
Fjölskyldan þín er svo yndislega
samhent og gerði allt fyrir þig
sem hægt var. Elsku Biggi, Guð-
jón, Anna Kristín, Toke, Ólafur
Vignir, Halla Kristín, Nanna,
systkini, Anna, Þura og Óli og öll
fjölskyldan, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar frá öllum í
minni fjölskyldu. Elsku Jóna,
góða ferð í Sumarlandið og takk
fyrir allt. Þín vinkona,
Ester Ólafs.
Gott er að koma að garði þeim
sem góðir vinir byggja.
Þá er meira en hálfnað heim,
hvert sem vegir liggja.
(Guðmundur Böðvarsson)
Vinir eru eins og stjörnur,
þær eru ekki alltaf sýnilegar en
eru alltaf til staðar. Þannig voru
kynnin af Jónu. Það var mikill
happafengur að fá að vera ná-
granni þeirra hjóna, Birgis og
Jónu. Með fjölskyldunum í Ás-
hamri 6, 8, 12 og 14 tókust góð
kynni og ómetanleg vinátta.
Hópurinn átti margar
skemmtilegar stundir. Það voru
allir saman, bæði börn og full-
orðnir. Sumarbústaðaferðin
ógleymanlega, pysjuveiðar, söl-
vatínsla á háflóði, afmælisveisl-
ur, útskriftir, kaffispjall, leikir
barnanna úti og inni. Ef einhver
hélt veislu þá voru húsgögn og
borðbúnaður færð á milli húsa.
Ef eitthvað vantaði til heimilis-
halds var hlaupið yfir til Jónu í
næsta húsi. Það var ekki hægt
að hugsa sér betri nágranna.
Með íbúum úr hinum húsunum í
botnlanganum var svo margt
brallað, brenna á gamlárskvöld
með skrúðgöngu, lúðrablæstri,
brennu- kóngum og drottning-
um og götugrillin ógleymanlegu.
Þjóðhátíðin var á sínum stað og
kankvísi hláturinn hennar Jónu
er falleg minning sem við geym-
um. Það var gott að eiga Jónu
að, hún var hrein og bein og
sagði sína meiningu ef því var að
skipta. Hörkudugleg, hjálpsöm,
félagslynd og glaðvær. Prjón-
arnir voru aldrei langt undan og
handbragðið fallegt. Það gekk
allt áreynslulaust þegar Jóna
var annars vegar. Hún vann sín
verk hljóðlega af alúð og setti
aðra í forgrunn. Styrkur hennar
kom ekki síst fram meðan hún
barðist við þann vágest sem að
lokum hafði betur. Hún var
ákveðin að berjast til loka og var
dyggilega studd af sinni góðu
fjölskyldu.
Nú hefur skarð verið höggvið í
þennan góða hóp, en tíminn í Ás-
hamrinum uppúr 1980 og fram
undir aldamótin gleymist ekki.
Vinaböndin sem bundin voru
slitna ekki. Við vorum heppin að
fá þennan tíma saman. Það er
sárt að kveðja elsku Jónu og
hugur okkar er hjá ástvinum
hennar, við sendum samúðar-
kveðjur til Bigga, Guðjóns, Önnu
Kristínar, Ólafs Vignis og ann-
arra ættingja og vina.
Takk fyrir allt, elsku Jóna,
samfylgdin með þér gerði lífið
betra, hvíl þú í friði.
Guðný, Kristján, Einar,
Ester, Gylfi, Guðrún og
krakkarnir í Áshamrinum.
Komið er að kveðjudegi, kæra
vinkona. Of ung yfirgefur þú
þennan heim og skilnaðurinn er
sár. En minningarnar eru ljós í
myrkrinu og birtast mér ljóslif-
andi er ég hugsa til stunda okkar
saman. Hugurinn reikar til
Grænuhlíðar þar sem þú vandir
komur þínar á æskuheimilið
mitt. Tvær stelpur saman í leik
mynduðu þar vinabönd að eilífu.
Einlæg vinátta, hlátur og gleði
einkenndi okkar samband. Ótal
samverustundir á Heimaey eða
erlendis, með margar fullar
ferðatöskur eins og þá tíðkaðist.
Svo uxum við úr grasi. Þú kynnt-
ist Bigga og ég minnist þess þeg-
ar ástin vaknaði í hjarta þínu og
óx í brennandi þrá. Börnin komu
í líf okkar, ég var aðeins fyrri til,
og þú, Jóna, lést þitt ekki eftir
liggja. Boðin og búin að sinna
mínum sem þín eigin væru.
Fluttir inn á heimili mitt til að
taka þar við rekstri ef ég þurfti
af bæ að fara. Prjónaðir peysur á
drengina mína og færðir þeim
gjafir. Þannig varst þú, Jóna, og
þannig mun ég minnast þín,
ósérhlífin, dugleg og myndarleg
til allra verka.
Kletturinn í fjölskyldu þinni
sem allir treystu á.
Nú er sól þín sest eftir erfiða
baráttu. Eftir eru fjölskyldan,
Biggi og börnin sem þú varst svo
stolt af, sem nú syrgja móður
sína og konu.
Hugur minn er hjá ykkur öll-
um, kæra fjölskylda Jónu. Ég
kveð þig í friði og söknuði, kæra
vinkona.
Auróra.
Þegar við Ólafur kynntumst
fyrst fyrir alvöru komum við
ósjaldan eftir skóla á heimili
ykkar Bigga, sem varð fljótlega
eins og félagsmiðstöð fyrir mig
og vini Ólafs Vignis, öðrum
mömmum til mikillar ánægju. Sá
vinskapur vatt upp á sig og urð-
um við fljótlega óaðskiljanlegir.
Með því uxu þó vandamálin.
Fleiri símtöl bárust frá Lása
skólastjóra sem og stöku bréf frá
barnaverndarnefnd. Þó að at-
hæfin hafi verið saklaus í flestum
tilvikum, á ég það þér enn að
þakka að úr hafi ekki orðið lög-
reglumál þegar ég ákvað að
kveðja 6. bekk með stæl og
brenna allar kennslubækurnar
mínar í hrauninu fyrir ofan Bú-
hamarinn. Þetta, ásamt mörgu
öðru, fékk mamma aldrei að vita,
enda tókst þú á þessu líkt og hún
myndi gera og taldir þú það
óþarfa að hringja í hana og
hræra dýpra í þeim potti.
Þú hafðir þennan einstaka
hæfileika að takast á við svona
verkefni, kláraðir þau á staðnum
og þá voru þau bara búin. Ef það
brotnuðu fimm nýkeypt kristals-
glös í partíi, þá var þeim sópað í
poka, partíinu haldið áfram og
daginn eftir var farið út í búð og
keypt ný. Engin eftirmál, svo
einfalt var það. En verkefnin
sem deilt er niður á fólk eru mis-
munandi og oft óskiljanleg, en
kannski er manni bara ekki ætl-
að að skilja þau. Í þínu tilfelli
sannar það hve lífið getur verið
hverfult. En þó að verkefni þitt
hafi verið stórt var baráttan að-
alsmerki þitt, með stuðningi frá-
bæru fjölskyldu þinnar og vina.
Á móti því sem ólæknandi er
stendurðu alltaf uppi sem sigur-
vegari.
Elsku Jóna. Þínar 90 mínútur
eru liðnar, en þrátt fyrir það
munum við, einum færri, halda
áfram fjörinu á Áshamrinum,
eins og þú hefðir viljað hafa það.
Það verður ótrúlega skrítið að
labba „óboðinn“ þangað inn í
framtíðinni og mæta þér ekki í
sófanum með ástarsögurnar
góðu eða prjóna í hendi. En ég
veit það að Biggi mun taka vel á
móti mér og mínum í staðinn. Þú
verður hjá mér í hug og hjarta
líkt og alltaf.
Það er sumt sem maður saknar,
vöku megin við.
Leggst út af á mér slokknar.
Svíf um önnur svið,
í svefnrofunum finn ég,
sofa lengur vil.
Því ég veit að ef ég vakna upp,
finn ég aftur til.
(BJF og DÁH.)
Guðni Freyr Sigurðsson.
Mig langar með fáeinum orð-
um að kveðja vinkonu mína, hana
Jónu, eða Jónu hans Bigga eins
og hún var svo oft kölluð. Oft
finnst manni lífið rosalega órétt-
látt þegar kemur að því að
kveðja þessa jarðvist. Fyrir rétt
rúmlega ári síðan greindist Jóna
með illvígan sjúkdóm, langt fyrir
aldur fram. Hún ætlaði svo sann-
arlega að sigrast á veikindum
sínum og barðist hetjulega en
varð að lokum að lúta í lægra
haldi.
Við Jóna urðum vinkonur
fyrst í gegnum börnin okkar.
Börnin þeirra þrjú og börnin mín
þrjú eru öll á sama aldri, eins
yndislegt og sérstakt og það er
eru þau öll vinir. Guðjón og Ein-
ar Hlöðver, Anna Kristín og Erla
Signý, Ólafur Vignir og Guðni
Freyr. Heimili þeirra Jónu og
Bigga að Áshamri 6 hefur alltaf
verið börnunum mínum opið eins
og í raun öllum þeim sem lögðu
leið sína til þeirra hjóna, allir eru
þar velkomnir og hefur alltaf
verið gott að koma til þeirra.
Við Jóna náðum vel saman í
leik og starfi og unnum við mikið
saman í sjálfboðaliðastarfi fyrir
ÍBV. Það var mjög gott að starfa
með Jónu, hún var hörkudugleg,
hress og mikill ljúflingur. Hún
fór oftast hljóðlega í því sem hún
gerði og ég held að kannski hafi
ekki alltaf verið tekið eftir því
hvað hún skilaði miklu í starfi.
Jóna var mikill Týrari en ég aft-
ur á móti mikill Þórari og ef það
er hægt að segja að við höfum
einhvern tímann verið ósammála
hefur það mjög líklega tengst
rígnum þar á milli, en þó var það
alltaf í góðu.
Elsku Jóna, ég vil þakka þér
fyrir allt. Ég veit að við hittumst
síðar og ég mun geyma allar fal-
legu minningarnar um þig í
hjarta mínu að eilífu.
Elsku Biggi, Guðjón, Anna
Kristín, Ólafur Vignir og fjöl-
skylda. Ég bið algóðan Guð að
styrkja ykkur í sorginni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Guðný Hrefna Einarsdóttir.
ÍBV íþróttafélag vill með
nokkrum orðum kveðja góðan fé-
laga sem lést á Landspítalanum í
Reykjavík eftir erfiða baráttu við
krabbamein. Jóna var starfsmað-
ur félagsins til margra ára og var
mikill stuðningsmaður knatt-
spyrnuliðs ÍBV.
Sem starfsmaður sá Jóna um
hin ýmsu verk hjá félaginu og
sinnti þeim af natni en hún kom
einnig mikið að starfi félagsins
sjálf og ekki síst í gegnum hann
Bigga sinn sem hefur setið í
þjóðhátíðarnefnd félagsins í ára-
tugi. Það eru ekki margir makar
sem sýna þá þolinmæði sem hún
sýndi til margra ára þeim störf-
um sem þarf að sinna árlega í
kringum verslunarmannahelgi.
Sem dæmi um umburðarlyndi
hennar gagnvart félaginu þá
vantaði sængur í dalinn eina há-
tíðina til að hlúa að gestum,
Biggi er maður framkvæmda og
dreif sig heim og sótti sængurn-
ar úr hjónarúminu. Þegar þau
hjónin komu heim undir morgun
eftir að hafa gengið úr skugga
um að allt væri í lagi á hátíð-
arsvæðinu þá undraðist Jóna
mjög hvar sængurnar væru nið-
urkomnar, en eins og svo oft áð-
ur þá sýndi hún þessu fullan
skilning.
Þrettándahátíðin átti líka sinn
sess í hjarta Jónu, enda ættuð úr
Gíslholti. Undirbúningur og
framkvæmd þessarar hátíðar var
fyrirferðarmikil á heimilinu hjá
Jónu, mikið líf og fjör og ekkert
var sjálfsagðara en að lána bónd-
ann í þrettándaverkefni.
Um leið og við þökkum Jónu
fyrir alla hennar margþættu og
ósérhlífnu vinnu fyrir ÍBV, mikið
framlag til þjóðhátíðar og þrett-
ándans og ekki síst alla þá þol-
inmæði sem hún hefur sýnt fé-
laginu þá viljum við senda Bigga,
Önnu Kristínu, Guðjóni og Ólafi
Vigni sem og öllum aðstandend-
um innilegar samúðarkveðjur og
megi guð og góðar vættir styrkja
þau á sorgartímum.
Minning um góðan félaga mun
lifa með félaginu.
Fyrir hönd ÍBV íþróttafélags,
Dóra Björk
framkvæmdastjóri.
MINNINGAR 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
REYNIR JÓNSSON,
Sunnubraut 16,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 21. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 3. nóvember klukkan 13.
.
Sævar Reynisson, Gunnhildur Guðlaugsdóttir,
Guðmundur Óli Reynisson, Svala Rún Jónsdóttir,
Jóhanna Reynisdóttir, Ólafur Eyþór Ólason,
Guðný Reynisdóttir, Axel Arnar Nikulásson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
JÓNÍNA I. G. MELSTEÐ
hjúkrunarfræðingur,
sem lést 21. október 2016, verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn
2. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
.
Gunnar H. Gunnarsson,
Gunnlaugur M. Gunnarsson, Halla Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Pétur Daníelsson,
Sveinborg H. Gunnarsdóttir, Eiríkur G. Ragnars,
Gísli Héðinsson
og barnabörn.
Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur,
móðurbróðir, barnabarn og frændi,
FINNBOGI FANNAR JÓNASSON
KJELD,
sem lést fimmtudaginn 20. október, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 15.
.
Ragnhildur Kjeld
Jónas Helgason
Anna Andrea Kjeld Haukur Guðmundsson
Arnljót María Kjeld Hauksdóttir
Heba Eir J. Kjeld Halldór Sturluson
Helgi Snær J. Kjeld
Helgi Ágústsson
móður- og föðursystkini.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNSTEINN HARALDSSON,
Mánatúni 4,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánu-
daginn 31. október klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á SÍBS.
.
Halldóra H. Kristjánsdóttir
Borgar Jónsteinsson Þórunn Inga Sigurðardóttir
Rebekka Rut Borgarsdóttir Ernir Snær
Ólafur Örn Jónsson
Halldóra Óla Hafdísardóttir Ísold Braga
Ólafur Kiljan Ólafsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
dóttur, eiginkonu, systur, móður,
tengdamóður og ömmu,
HELGU TRYGGVADÓTTUR
STOLZENWALD,
Nesvegi 3,
Grundarfirði.
.
Jóhanna Rakel Jónasdóttir,
Þorsteinn Björgvinsson, systkini, börn,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.