Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 65
65 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 www.heild.isfyrirspurn@heild.is Skrifstofuhúsnæði HEILD fasteignafélag Bjart og skemmtilegt 1.030 fm. verslunar- og skrifstofuhúsnæði á góðum stað í Kópavogi. Eignin er sýnileg í grónu hverfi, aðkoma góð og nóg af bílastæðum. Miklir möguleikar í boði fyrir ýmsan rekstur. Tilvalið húsnæði fyrir húsgagnaverslun. Svæðið er í mikilli uppbyggingu og er orðið að sterkum verslunarkjarna. • 1.030 fm. skrifstofuhúsnæði. • Björt og skemmtileg eign. • Góð staðsetning. Askalind 2A, 201 Kópavogur notalegt að finna fyrir köldum steinunum þegar þú ert ofan í heit- um pottinum.“ Auk kaldsteinanuddsins býður Abaco upp á flestallar gerðir af heilsunuddi sem nöfnum tjáir að nefna og aðstaðan býður upp á að hægt er að taka á móti alls fimm manns í nudd í einu. Má þar nefna sogæðanudd, meðgöngunudd, ilm- olíunudd, íþróttanudd og svæð- anudd og er þá fátt eitt talið upp. Demantshúðslípun fyrir andlit Á snyrtistofu Abaco er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir auk nokkurra sem ekki er að finna ann- ars staðar. Þar má meðal annars nefna sérhæfðar andlitsmeðferðir og háþróaðar snyrtivörur frá Gui- not. „Guinot eru vörur og meðferðir í hæsta gæðaflokki, sem eru fyrst og fremst framkvæmdar af við- urkenndum snyrtistofum af fag- lærðum húðsnyrtifræðingum,“ seg- ir Kristín. „Þar erum við meðal annars að nota háþróuð tæki til að þrýsta virkum efnum djúpt inn í húðina til að gefa henni aukinn raka og lyftingu. Einnig bjóðum við upp á laser-merðferðir og erum að vinna á háræðasliti, í háreyðingum og svo erum við með demantshúðs- lípun sem er ákveðin sérstaða hjá okkur enda enginn annar sem býð- ur upp á hana á Akureyri.“ Kristín útskýrir að um mjög virka meðferð sé að ræða. Fyrst sé húðin slípuð með grófum kristöllum sem örva mjög blóðflæðið sem aftur verður þess valdandi að endurnýjun húðfrumnanna verður örari. „Svo notum við sérstakan demantshaus fyrir fínpússun þar á eftir. Þetta er mjög öflug og árangursrík andlits- meðferð – sú árangursríkasta sem við erum með.“ Vinsælt fyrir pör og hópa Að sögn Kristínar er vinsælt að pör og hópar hafi samband og biðji um ráð og leiðbeiningar um sam- setningu á dekurdegi. Af nógu er að taka enda möguleikarnir margir og Kristín og samstarfsfólk hennar á því ekki í vanda með ráðgjöfina. Hún gefur hér dæmi um dagskrá fyrir slíkan dekurdag. „Ég myndi benda þeim á að byrja á því að fara í baðstofuna og beint í heita pottinn og slaka þar á í ein- hvern tíma. Að því loknu gætu þau bæði farið saman í fótsnyrtingu eða andlitsmeðferðir hjá snyrtifræðingi og svo má bjóða þeim í klukku- stundarlangt nudd uppi á bekk. Ef þau vilja eitthvað sem tekur skemmri tíma þá myndi ég stinga upp á kaldsteinanuddinu í pottinum því þar erum við að bjóða upp á andlitsmaska. Það er mjög vinsælt. Með þessu móti er parið saman all- an tímann sem er ótvíræður kostur fyrir pör.“ Aðspurð segir Kristín að tólf til fimmtán manna hópar séu kjör- stærð fyrir hópa sem koma en mest hafi hún tekið á móti 30 manna hópi; þá hafi reyndar verið í þrengra lagi. „Þess má líka geta að við erum með vínveitingaleyfi svo ef fólk vill fá kaldan bjór eða kælt hvítvín í heita pottinn þá er það minnsta málið. Ennfremur getum við útbúið ostabakka fyrir hópa en bjóðum fólki líka að það geti haft með sér eitthvað að narta í þegar það kemur til okkar. Það er mjög vinsælt þeg- ar hingað koma hópar hvort sem það er í tengslum við afmæli, steggjun, gæsun eða af hvaða tilefni sem vera skal.“ Kristín bætir við að það sé ekki síst eftirsótt að kíkja á Abaco og láta líða úr sér eftir hressandi dag í Hlíðarfjalli. „Það er hreinlega sleg- ist um tímana hjá okkur um helgar þegar snjórinn er kominn í fjallið,“ segir Kristín að endingu. Notalegt Það er sívinsælt að koma í dekur og slökun hjá Abaco heilsulind, ekki síst þegar nægur snjór er í Hlíðarfjalli. Dekur Andlitsmaskameðferð í pottinum er dekur eins og það gerist best.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.