Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 87
DÆGRADVÖL 87
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Bragðgott, ho
llt
og næringarrí
kt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sérkennileg atburðarás kann að leiða
til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis þíns.
Gefstu ekki upp því þér verður þakkað þótt
síðar verði.
20. apríl - 20. maí
Naut Taktu höndum saman við aðra til þess
að ná markmiðum þínum. Nýtt fólk hefur líka
eitthvað fram að færa – hugsanlega ást.
Reyndu að sitja á strák þínum þótt öðrum
verði á mistök.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Farðu varlega í samræðum við
systkini þín, ættingja og nágranna í dag.
Taktu frumkvæðið sjálfur og þá muntu eiga
auðvelt með að fá hina til liðs við þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fátt er betra en góðir vinir svo leggðu
þig fram um að eiga með þeim ánægjulega
stund. Gerðu ekki meir en þú hefur efni á.
Vertu þakklátur þeim sem hjálpuðu þér og
leiðbeindu í æsku.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mundu að þú ert dæmdur af verkum
þínum og það þýðir ekki að slá ryki í augu
fólks með einhverjum látalátum. Segðu vin-
um þínum frá framtíðaráætlunum þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Framfarir eru ekki ímyndanir einar.
Hugmyndir þínar um umbætur geta breytt
miklu fyrir þig og þá sem eru í kringum þig.
Líkurnar eru þér ekki í hag núna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er tækifæri til þess að lífga upp á
heimilið. Taktu andbyr með brosi á vör, því
þinn er sigurinn, þegar upp verður staðið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Farðu ofan í saumana á öllum
fjármálum og gefðu þér til þess góðan tíma.
Sóaðu ekki tímanum í tilgangslausar tiktúrur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur verið særður – það er
gott að viðurkenna það. Ef þig endilega lang-
ar að láta hlutina flakka gerðu það þá í ein-
rúmi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú myndir gefa allt til að fá sönn-
un fyrir því að þú sért á réttri leið, og verðir
betri manneskja. Ef þú vilt sjá fram úr þeim
skaltu prófa að standa á öxlunum á risa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lausnirnar sem leiða til betra lífs
eru augljósar. Hafðu hugfast að séu menn
einlægir má síður búast við að allt fari í bál og
brand.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú skarar fram úr jafningjum þínum,
en ekki athugasemdalaust. Mundu að ganga
frá öllum reikningum áður en þú svo mikið
sem lætur þig dreyma um að eyða peningum.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Á það flykkist manna mergð.
Mjög er þarft við kökugerð.
Með þeim svipur sést ei par.
Saman koma leiðir þar.
Lausn Hörpu á Hjarðarfelli:
Á mannamótin fólkið fer.
Fyllt af deigi kökumót.
Ættarmót þar enginn sér.
Ökum við um gatnamót.
Helgi R. Einarsson svarar:
Er ég gátukornið kanna,
kryf það alveg nið’r í rót,
upp þá lúkast orðin: Manna-,
ættar-, köku-, og vegamót.
Þessi er ráðning Helga Seljan:
Fólkið sækir ákaft mannamót,
mót er brýnt við ýmsa kökugerð.
Svipmót bræðra ekkert hætis hót
hér að vegmótum enduð ferð.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa:
Fer á stöku mannamót,
úr móti köku gef ég þrjótum
þó engin sjái ættarmót,
enda þrengsli á gatnamótum.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Fólks er oft á móti mergð.
Mót er þarft við kökugerð.
Svipmót ekki sést með þeim.
Svo eru mót á leiðum tveim.
Síðan er það limran:
Það var eftirminnilegt öllum
ættarmót niðja frá Hjöllum,
þeir brutust í byl
byggða til,
sem ekki frusu á fjöllum.
Og að lokum kemur Guðmundur
með nýja gátu:
Veröld dagsins vitrast mér,
víkur draumsins glýja,
losa svefn, á fætur fer,
og fæst við gátu nýja:
Í sorpinu rótar sífellt og hrín.
Í sjó er það reyndar hvalur.
Svo er það eins konar auraskrín.
Örlagabytta sá halur.
Stakan er sígilt yrkisefni hagyrð-
inga. Pétur Stefánsson yrkir
Kann að yrkja þessi þjóð,
það hún sannað getur.
Stytt hefur mér stakan góð
stundir heldur betur.
Ingólfur Ómar bærir við:
Eyðir drunga örvar sál
ærið slungin baga.
Lipurt sungið ljóðamál
létt á tungu braga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ekki er allt í sama móti steypt
Í klípu
„OG SKILDU ÞJÓRFÉ Í ÞETTA SKIPTIÐ.
NETTENGING Á KRISTALSKÚLU ER DÝR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER EINHVER VIÐ DYRNAR AÐ SPYRJA
HVAÐ MÉR FINNST UM JAFNRÉTTI
KYNJANNA. HVERNIG Á ÉG AÐ SVARA ÞVÍ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera enn jafn
bjartsýn og daginn
sem við kynntumst.
ÉG VILDI AÐ ÞESSI
LEIÐINDASTORMUR MYNDI
BARA HÆTTA STRAX!
GÆTTU ÞESS
HVERS ÞÚ
ÓSKAR ÞÉR!
HÓHÓHÓ! HVAÐ
HÖFUM VIÐ HÉR?
HVAÐ ER HANN
AÐ GERA?
HVAR HEFUR ÞÚ VERIÐ
ALLT MITT LÍF?
REYNA VIÐ ÍS
Í BRAUÐI.
ÉG HELD ÉG SÉ
ÁSTFANGINN!
Tískuorðið hjá íslenskum stjórn-málamönnum fyrir alþingis-
kosningarnar sem fram fara í dag er
„innviðir“. Innviðirnir hafa setið á
hakanum, hlúa þarf betur að innvið-
unum og þar fram eftir götunum.
Annað kemst varla að. Það eru bara
innviðir, um innviði, frá innviðum, til
innviða. Svo sem ekkert nema gott
um það að segja, innviðirnir skipta
vitaskuld verulegu máli í samfélag-
inu en skondið hvernig orð geta
komist með afgerandi hætti í tísku.
x x x
Muni Víkverji það rétt var tísku-orðið fyrir síðustu alþingis-
kosningar „úrræði“. Finna þurfti úr-
ræði fyrir heimilin, úrræði fyrir
atvinnulífið, úrræði fyrir aldraða og
öryrkja og úrræði fyrir ungt fólk.
Minna ber á úrræðum að þessu sinni
enda innviðir búnir að velta þeim úr
sessi. Vonandi hafa stjórnmálaflokk-
arnir þó ekki gleymt úrræðunum,
alltént þegar kemur að innviðunum.
x x x
Víkverji hleypti brúnum þegarhann frétti að Ashley Grimes
væri á Íslandi. Það var sérstaklega
tvennt sem sætti tíðindum í hans
huga: Annars vegar er Ashley Grim-
es hér til að spila körfubolta og hins
vegar er Ashley Grimes kona.
Ashley Grimes sem Víkverji man
eftir er karlmaður sem kunnastur
var fyrir sparkiðkun sína; gerði
garðinn til að mynda (sæmilega)
frægan hjá Manchester United, Lut-
on Town og fleiri liðum á áttunda og
níunda áratugi síðustu aldar.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að til er annar knattspyrnumað-
ur sem gegnir nafninu Ashley Grim-
es. Sá er enn að og leikur nú með
hálfatvinnumannaliðinu Southport.
Víkverji veit minna um körfu-
boltakonuna Ashley Grimes en hún
leikur í vetur með Grindavík í efstu
deild hér heima og er, að sögn, fram-
bærilegasti leikmaður.
x x x
Hverfandi líkur eru á því að okkarAshley Grimes sé skyld knatt-
spyrnumönnunum nöfnum sínum.
Alltént eru þau ekki eins á litinn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Guð er kærleikur og sá sem er stöð-
ugur í kærleikanum er stöðugur í
Guði og Guð er stöðugur í honum.
(1. Jh. 4.16)