Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 84
84 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Kristín Sigríður Hannesdóttir, forstöðumaður Dvalarheimilisaldraðra í Stykkishólmi, á 50 ára afmæli í dag. „Við erum með 17 heimilismenn og 15 þjónustuíbúðir sem
eru tengdar dvalarheimilinu og er elsti íbúinn 107 ára. Dvalarheimilið
er í gömlu húsnæði sem áður var heimavist, en fólkinu líður vel og fé-
lagsstarf á dvalarheimilinu er gott.“
Kristín hefur gegnt starfi forstöðumanns í rúmt ár en var fyrir það
aðstoðardeildarstjóri á gigtardeild á Landspítalanum í Fossvogi. „Ég
útskrifaðist árið 2001 úr hjúkrunarfræði og hef starfað sem hjúkr-
unarfræðingur síðan. Upphaflega ætlaði ég að verða ljósmóðir og fór
þess vegna í hjúkrun en svo stoppaði ég þar og hef fundið mig vel í því
sem ég hef verið að gera sem er að starfa með öldruðum.“
Kristínu líkar mjög vel í Stykkishólmi og finnst gott að búa þar. „Ég
hafði engin tengsl við Hólminn þegar ég flutti hingað en er frá Bíldu-
dal og líkar vel við fámennið úti á landi.
Áhugamál mín eru aðallega útivist og að vera með fjölskyldunni,
syni mínum sem er 12 ára og heitir Jason Helgi. Hann er mjög ánægð-
ur í Hólminum. Hann er á fullu í körfuboltanum og er að æfa með
Snæfelli. Það snýst allt um körfuboltann hérna og við erum því á hár-
réttum stað.“
Kristín er stödd í höfuðborginni og ætlar að eyða deginum með fjöl-
skyldu og vinum.
Mæðginin Kristín og Jason Helgi í Ósló í fyrrasumar.
Líkar vel að
búa í Stykkishólmi
Kristín Sigríður Hannesdóttir er fimmtug
G
uðjón Ketilsson fæddist
í Reykjavík 29.10. 1956
og ólst þar upp í Smá-
íbúðahverfinu. Hann er
Strandamaður í báðar
ættir og dvaldi öll sumur í æsku hjá
ættingjum sínum, á sveitabæ
skammt frá Hólmavík. Guðjón var í
Breiðagerðisskóla og Réttarholts-
skóla, lauk myndlistarnámi frá Ný-
listadeild Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1978 og stundaði
framhaldsnám við skúlptúrdeild
Nova Scotia college of Art and
Design í Kanada.
Við heimkomuna kom Guðjón sér
strax upp vinnustofu og hefur sinnt
myndlist síðan.
Guðjón hefur haldið yfir þrjátíu
einkasýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga, hérlendis sem erlendis,
s.s. á Norðurlöndunum, í Banda-
Guðjón Björn Ketilsson myndlistarmaður – 60 ára
Morgunblaðið/Einar Falur
Listafjölskylda Hjónin Guðjón Björn og Ragnheiður Elfa eru hér með börnum sínum, B irtu Guðlaugu sem er deild-
arstjóri sýningardeildar í Listasasfni Íslands, og Hrafnkeli Erni tónlistarmanni og unnustu hans, Ester Ýrr.
Setti ungur að árum
stefnuna á listsköpun
Listamaðurinn Guðjón við eitt verka sinna í Hafnarborg árið 2013.
Herdís Fjeldsted Jakobsdóttir og Hartmann Páll Magnússon fagna gullbrúð-
kaupsafmæli sínu í dag, 29. október. Hjónavígslan fór fram í Hólakirkju 1966. Þau
fagna þessum tímamótum á Tenerife.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
gerðu tónlist á makkann þinn
Duet 2
stúdíógæði í lófastærð
One
fyrir einfaldar upptökur
MiC
hágæða upptökur
Jam
alvöru gítarsánd