Morgunblaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samúel Örn Erlingsson, íþrótta-
fréttamaður Ríkisútvarpsins í aldar-
fjórðung, var virkur þátttakandi í
starfi Framsóknarflokksins um
skeið. Hann skipaði 2. sætið á fram-
boðslista flokksins í Suðurvestur-
kjördæmi fyrir þingkosningarnar
2007 og þegar fyrstu atkvæðatölur
úr kjördæminu komu var flokkurinn
talsvert frá því að ná tveimur mönn-
um inn. Siv Friðleifsdóttir var þó
örugg inni.
Vestfirðingar réðu úrslitum
Þegar nokkuð var liðið á nótt fór
að hitna í kolunum. „Ég var farinn
að sofa þegar ég datt fyrst inn sem
uppbótarmaður á landsvísu, ég held
um fjögurleytið. Ég var svo vakinn
undir 7 um morguninn, þá var ég
inni og margt benti til að þingsæti
væri í hendi. Það var svo ekki fyrr en
á tíunda tímanum að veruleikinn
varð ljós, þegar lokatölur úr Vest-
fjarðakjördæmi bárust. Þá vantaði
11 atkvæði á landsvísu upp á að ég
næði kjöri,“ segir Samúel Örn.
Eftir kosningar segist þingmaður-
inn sem ekki varð hafa hugleitt að
atkvæðin 11 sem á vantaði hefðu
víða getað náðst. „Sem hálfum Vest-
firðingi fannst mér súrt að hlutfallið
réðist þar. Ég ýtti þessum hugs-
unum þó fljótt frá mér. Sjálfsagt
voru þetta forlög,“ segir Samúel Örn
sem á næstu misserum tók nokkrum
sinnum sæti á Alþingi. Var meðal
annars inni sem varamaður þann 6.
október 2008 þegar Alþingi setti
neyðarlögin vegna falls bankanna og
sat á þingi næstu tvær vikurnar þar
á eftir.
Setti punktinn
„Það að vera á þingi þá daga var
mikil reynsla og eldskírn fyrir
stjórnmálamann. Öngþveitið var al-
gjört og fólk vissi ekki sitt rjúkandi
ráð. Mér ofbauð harkan í umræð-
unni í kjölfarið. Eftir flokksþing
Framsóknar í janúar 2009 ákvað ég
að setja punkt fyrir aftan minn póli-
tíska feril,“ segir Samúel Örn sem
býr nú á Hellu og kennir við grunn-
skólann þar.
Forlög og 11 atkvæði
Var alþingismaður hluta úr nóttu Fékk eldskírn í
bankahruninu Fréttamaðurinn er nú kennari á Hellu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Næturþingmaður Samúel Örn
Erlingsson fór inn og út aftur.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í alþingiskosningum 30. júní 1974
gekk illa að láta atkvæði í Vest-
fjarðakjördæmi stemma við fyrir-
liggjandi gögn og vildi formaður ekki
að tölur yrðu birtar fyrr en komist
væri fyrir villuna. Þegar hér var
komið sögu var liðið fram undir
morgun og spennan mikil, því úrslit-
in á Vestfjörðum réðu því hver úhlut-
un uppbótaþingsæta á landsvísu
yrði. Tilvera Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna var í húfi. Magnús
Torfi Ólafsson í Reykjavíkurkjör-
dæmi var dottinn út - en það gat
breyst ef Karvel Pálmason næði inn
fyrir vestan.
Stíflan brast
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur, sem á þessum tíma bjó á Ísafirði,
var viðstaddur talningu vestra.
Hann kosninganóttina upp í Þjóð-
viljagrein árið 1983 og er byggt á
henni hér. Þar segir hann þetta hafa
verið ógleymanlega stund. Fólki í
talningarsal hafi vel vitað hverjar at-
kvæðatölurnar væru, þrátt fyrir
skekkjuna. Ekkert hafi mátt spyrj-
ast út, en svo fór
að lokum að stífl-
an brast.
„Formaður
kjörstjórnar lét
undan þrýstingi
og ákvað að senda
út fyrstu tölur þó
að ekki væri enn
komist fyrir
skekkjuna,“ segir
Guðjón í grein
sinni. Honum og öðrum tveggja full-
trúa Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna var falið að áætla atkvæða-
bunkana og senda tölur til Ríkisút-
varpsins. Í stráksskap ákváðu Guð-
jón og félagi hans hins vegar að
senda ímyndaðar og skáldaðar tölur
til Ríkisútvarpsins, það er fella Kar-
vel út af þingi, koma Kjartani Ólafs-
syni, þingmanni Alþýðubandalags-
ins, inn og láta Sjálfstæðisflokkinn
bíða afhroð.
„Síðan hringdum við ábúðarmiklir
suður og tilkynntum þessar tölur …
Síðan rukum við í útvarp og þulnum
var mikið niðri fyrir þegar hann til-
kynnti fyrstu tölur frá Vestfjörðum,“
segir Guðjón og minnist þess að með
þessum tölum hafi komið ný tölvuspá
fyrir allt landið um skiptingu at-
kvæða. Hún var gjörólík hinum fyrri.
Hringekja fór af stað og margt af því
sem virtist í hendi riðlaðist.
Spenna stafaði af húsunum
„Við bókstaflega gátum heyrt
spennuna sem stafaði af húsunum á
Ísafirði. Það var ekki mjög frýnilegt
andlitið á kjörstjórninni og öðrum
viðstöddum þegar þeir uppgötvuðu
hvað við höfðum gert af okkur,“ seg-
ir Guðjón. Nýjar tölur, og þær hár-
réttar, voru sendar nokkru síðar, og
undruðust kosningaspekingar í út-
varpssal sviptingarnar á Vestfjörð-
um. Síðan kom ný spá fyrir allt land-
ið, gjörbreytt frá hinni fyrr en þó í
samræmi við veruleikann.
Um úrslitin í Vestfjarðakjördæmi
vorið 1974 er það annars að segja að
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn fyrir vestan fengu tvo
menn hvor og sá fimmti í kjördæm-
inu var Karvel Pálmason úr Samtök-
um frjálslynda og vinstri manna.
Kjör hans dugði svo til þess að áð-
urnefndur Magnús Torfi flaut með
og náði á þing með uppbótinni svo-
nefndu, það er landskjörinn þing-
maður.
Íhaldið á Ísafirði
beið ímyndað afhroð
Ísafjörður Stjórnmálin á Vestfjörðum þóttu oft átakamikil, en sviptingarnar þar voru eitt sinn skáldskapur.
Guðjón
Friðriksson
Prakkaraskapur á kosninganótt fyrir vestan árið 1974
ALÞINGISKOSNINGAR
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Dagskráin hefst klukkan 21.45 og
að þessu sinni verða fréttamenn
okkar á fjölmörgum kosningavökum
þar sem rætt verður við áhugavert
og skemmtilegt fólk,“ segir Ragn-
hildur Thorlacius, fréttakona á
RÚV, og vísar í máli sínu til kosn-
ingavöku sjónvarpsins þar sem m.a.
verður farið yfir tölur frá kjör-
dæmum, litið inn í kosningateiti á
hinum og þessum stöðum á landinu
og leitað viðbragða frá frambjóð-
endum og stjórnmálaskýrendum.
Hrekkjavaka og kosningar
„Við ætlum að leggja áherslu á að
heyra í frambjóðendum og stuðn-
ingsmönnum þeirra, vera úti meðal
fólks og hver veit nema við kíkjum
svo inn í eitt hrekkjavökupartí í leið-
inni,“ segir Ragnhildur og bætir við:
„Ég held að þetta verði alveg of-
boðslega spennandi kosninganótt og
hlökkum við mikið til að heyra í öll-
um nýju þingmönnunum og sjá
hvernig gengur að koma kjörkössum
á milli landshluta svona rétt við
mánaðamót október og nóvember.“
Að þessu sinni verða forystumenn
stjórnmálaflokkanna ekki staddir í
sjónvarpssal RÚV þegar fyrstu töl-
ur birtast. Þess í stað verða þeir á
kosningavökum flokka sinna þar
sem leitað verður viðbragða.
Fréttastofa Stöðvar 2 verður
einnig með sérstaka kosningaum-
fjöllun í kvöld og hefst útsendingin
klukkan 20.45 á skemmtiþætti með
Loga Bergmann fréttamanni.
„Þar verður áhersla lögð á pólitík
og skemmtiatriði í bland, en þegar
kjörstöðum verður lokað tekur
fréttastofan við. Þá verður farið yfir
fyrstu tölur í sjónvarpi og leitað við-
bragða formanna flokkanna,“ segir
Elísabet Hall, framleiðandi frétta
Stöðvar 2.
Kosningaþema á
báðum stöðvum
Rýnt í tölur og leitað viðbragða
Morgunblaðið/Kristinn
Kjördagur Rýnt í nýjustu tölur
kosninga í kosningasjónvarpi RÚV.