Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 8

Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða öryggisvörð? Í febrúar síðastliðnum sagðiBirgitta Jónsdóttir, foringi Pírata, að ekki kæmi til greina að gera neinar tilslak- anir á kröfum Pírata um stutt kjörtímabil eftir næstu kosningar. Píratar mundu ekki vinna með flokkum sem ekki sam- þykktu þetta skil- yrði enda væri það „ótækt“ að hennar áliti og „óráð að gera það sem allir gera alltaf“. Þá væri betra fyrir Pírata að vera í minnihluta.    Hún sagði líka að hún vildi aðstjórnarsáttmáli yrði tilbúinn fyrir kosningar og helst líka fjár- lög.    Þessar áherslur Pírata hafa ver-ið margítrekaðar síðan, eink- um skilyrðið um stutt kjörtímabil, helst níu mánuði en að minnsta kosti ekki lengra en átján mánuði.    Allt þetta eru Birgitta og Pírat-ar þegar búin að svíkja. Nú er sagt að hinir vinstri flokkarnir hafi ekki verið til í styttra kjör- tímabil og þar með er fallið frá því.    Svo tókst ekki að koma samanstjórnarsáttmála af nokkru tagi, hvað þá fjárlögum, og þá er fallið frá því.    En þetta er ekki allt. Birgittavar búin að marglofa því að hún yrði ekki lengur á þingi en tvö kjörtímabil, en það loforð sveik hún líka með framboði sínu.    Píratar setja sig jafnan á háanhest og kvarta undan óheil- indum annarra, en eru þeir sjálfir alveg undanþegnir því að þurfa að segja satt? Birgitta Jónsdóttir Ítrekuð ósannindi STAKSTEINAR Veður víða um heim 28.10., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Akureyri 4 heiðskírt Nuuk -3 skýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 8 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 léttskýjað Stokkhólmur 8 heiðskírt Helsinki 9 rigning Lúxemborg 11 skýjað Brussel 14 alskýjað Dublin 13 rigning Glasgow 10 skýjað London 15 skýjað París 14 heiðskírt Amsterdam 15 rigning Hamborg 11 rigning Berlín 13 rigning Vín 11 heiðskírt Moskva 0 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 22 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 16 rigning Winnipeg 8 skýjað Montreal 5 rigning New York 6 heiðskírt Chicago 9 léttskýjað Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:04 17:20 ÍSAFJÖRÐUR 9:20 17:14 SIGLUFJÖRÐUR 9:03 16:56 DJÚPIVOGUR 8:36 16:47 Sigurður Stefánsson, löggiltur endurskoð- andi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 24. október sl., 93 ára að aldri. Sigurður fæddist á Auðnum, Vatnsleysu- strönd 28. júní 1923 sonur hjónanna Jó- hönnu Sigurðardóttur og Stefáns Sigurfinns- sonar, útvegsbónda, framkvæmdastjóra og síðar hreppstjóra. Sig- urður flutti með foreldum sínum til Innri-Njarðvíkur árið 1929. Hann fór í Flensborgarskólann í Hafnarfirði og síðan í Verslunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1943. Sigurður hóf störf og nám í endur- skoðun sama ár hjá Endurskoð- unarskrifstofu N. Manscher og Co. og varð löggiltur endurskoðandi árið 1949. Hann stofnaði eigin endurskoð- unarskrifstofu í Reykjavík árið 1952, Endurskoðunarskrifstofu Sigurðar Stefánssonar sf. og rak hana til árs- ins 1994. Stofan sameinaðist síðar öðrum skrifstofum og er nú rekin undir heitinu Deloitte ehf. Sigurður var einn helsti endur- skoðandi íslensks sjávarútvegs um langt árabil. Hann var endurskoðandi fjöl- margra sjávarútvegs- fyrirtækja auk þess sem hann sinnti ýmsum verkefnum og trún- aðarstörfum á vett- vangi samtaka sjávar- útvegsfyrirtækja. Hann var fulltrúi sjávarútvegsins í Síldarútvegsnefnd 1971-1988. Sigurður var virkur í félagsstarfi og sat í stjórnum ýmissa félaga og samtaka, þar á meðal í nokkur ár í stjórn Fé- lags löggiltra endurskoðenda og í stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilis- ins Grundar árin 1984 til 2015. Sig- urður var einn af stofnendum Rót- arýklúbbs Seltjarnarness árið 1971 og félagi í Oddfellow-stúkunni Þór- steini frá árinu 1964. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Anna Jónsdóttir. Börn Sigurðar og Önnu eru: Jón, framkvæmdastjóri í Reykjavík, Stefán, fjármálastjóri í Njarðvík, og Björg, endurskoðandi í Reykjavík. Útför Sigurðar Stefánssonar fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 8. nóvember nk. Andlát Sigurður Stefánsson Eigendur hússins að Lækjargötu 8 í Reykjavík hafa óskað eftir því við borgaryfirvöld að mega fjarlægja einnar hæðar bakhús og reisa nýja byggingu þar. Myndi sú liggja niður að rampi eða braut sem liggur niður í bílastæðakjallara. Í Lækjargötuhús- inu er nú veitingastaðurinn Hrað- lestin. Bakhúsið og skúrarnir þarna eru gömul hús og nánast ónýt og lengi hefur verið í bígerð að fjarlægja þá. Afgreiðsla málsins í borgarkerfinu hefur gengið afar hægt. Eigendur hússins vænta þess þó að málið nái fljótlega í gegn. Húsið Lækjargata 8 er þekkt kennileiti í miðborginni. Það var byggt árið 1871 sem aðsetur land- læknis. Það var gert upp fyrir nokkr- um árum og nú eru arkitektar hjá Studio Granda að skissa og áforma hvernig ný bakhús skuli verða. sbs@mbl.is Bakhús við Lækjar- götuna verði rifin Morgunblaðið/Júlíus Lækjargata 8 Til stendur að rífa einnar hæðar bakhús á lóðinni. Kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinnur nú að því að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust í fjörunni við Selatanga skammt frá Grinda- vík á miðvikudag. Nefndin sér um að staðfesta auðkenni en sá þáttur er á byrjunarstigi og unnið er að honum í samvinnu við frönsk yfir- völd. Þetta kemur fram í upplýs- ingum frá ríkislögreglustjóra. Brak frönsku skútunnar Red Héol fannst skammt frá Grindavík ásamt neyðarsendi sem gerði Landhelgisgæslu fyrst viðvart á miðvikudagsmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suðurnesjum er staðfest að sendirinn tilheyri skútunni. „Neyðarsendirinn er um borð í skútunni og hann virkar þannig að hann fer sjálfkrafa í gang ef hann lendir í sjó,“ segir Auðunn Friðrik Kristinsson, verkefnastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, um virkni neyðarsenda en á meðan sendirinn helst þurr um borð þá fer hann ekki í gang. „Það er hægt að kveikja á honum ef skipstjórinn er með rænu,“ bætir hann við. Ekki er skylda að vera með stað- setningarbúnað í skútum. laufey@mbl.is Rannsókn í samvinnu við frönsk yfirvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.