Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Skoðið úrvalið á dimmalimmreykjavik.is DIMMALIMM Jólafötin eru komin kjóll 6995,- pels 9795.- Kjólar Kápur Peysur Vesti Skyrtur Buxur Frakkar og Fylgihlutir Eyrnalokkagöt Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða starfsmann? 13:00 Ávarp formanns Gigtarfélags Íslands Dóra Ingvadóttir 13:15 Fyrirlestur um slitgigt Helgi Jónsson gigtarlæknir 13:50 Rannsóknarstofa í gigtarsjúkdómum 20 ára Kristján Steinsson gigtarlæknir 14:20 Starfsemi Gigtarmiðstöðvarinnar kynnt, vörukynningar, kaffi, tertur, o.fl. Kynnt verður sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, áhugahópar, hópþjálfun, Gigtarlínan, fræðsla og ráðgjöf o.fl. Vörukynningar. Eirberg, Össur, Stoð og HAp+ 16:00 Lokið Opið hús á Gigtarmiðstöðinni í dag 29. október 2016 frá kl. 13:00 til 16:00 Gigtarfélag Íslands 40 ára – Allir velkomnir GIGTARFÉLAG ÍSLANDS www.gigt.is Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Fyrr í vikunni leit spáin ekkert sér- staklega vel út enda talsverð snjó- koma í kortunum þá, en sem betur fer hefur hlýnað aðeins svo þetta verður nú ekki eins slæmt og menn héldu fyrst,“ segir Gestur Jónsson, formaður yfirkjörstjórnar í Norð- austurkjördæmi, við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til þess að almennar kosningar til Alþingis fara fram í dag, laugardaginn 29. októ- ber, og óttuðust menn fyrr í vikunni að slæm veðurskilyrði kynnu að tor- velda flutning kjörgagna milli lands- hluta og seinka talningu atkvæða. „Við höfum þó auðvitað gert ráð- stafanir eins og alltaf þegar um vetr- arkosningar er að ræða, en t.a.m. er búið að tryggja aðstoð frá Vegagerð- inni ef á þarf að halda,“ segir Gestur. Margir óvissuþættir uppi Þótt útlit sé fyrir skárra veður en verstu veðurspár gerðu ráð fyrir í upphafi getur veðrið enn sett svip sinn á flutning kjörgagna. Nefnir Gestur í því samhengi að flytja þarf kjörseðla frá Egilsstöðum til Akur- eyrar til talningar. „Við söfnum kjörkössum af Aust- urlandi upp á Egilsstaði þaðan sem flogið er með þá til okkar. Flugið er enn stór óvissuþáttur og ef veður er slæmt þá þarf að keyra með þá og ef færðin er erfið þá tekur það enn lengri tíma. Allt kemur þetta þó í ljós,“ segir hann. Þá hefur verið ófært út í Grímsey undanfarna daga og komust t.a.m. kjörseðlar og önnur gögn ekki þang- að fyrr en seint í gær. „Svo eiga þessi kjörgögn eftir að komast í land aftur – þetta er ekki alveg sama samgönguöryggi og í Reykjavík. Þetta kjördæmi er mjög víðfeðmt, nær frá Siglufirði og að Djúpavogi, og flækjustigin geta þar af leiðandi varið ansi mörg,“ segir Gestur. Kristján G. Jóhannsson er for- maður yfirkjörstjórnar í Norðvest- urkjördæmi. Hann segist ekki hafa neinar áhyggjur þegar kemur að flutningi kjörseðla. „Við stefnum að því að vera komnir með atkvæði alls staðar að úr kjördæminu strax um kvöldið og hefja flokkun fyrir lukt- um dyrum eftir klukkan 20. Við byrjum svo að telja klukkan 22,“ segir Kristján G. og bætir við að hann eigi von á fyrstu tölum frá kjördæminu milli klukkan 23 og miðnættis í kvöld. Stórir kjörseðlar tefja talningu Að þessu sinni bjóða 12 stjórn- málaflokkar fram lista og eru 1.302 einstaklingar í framboði. Stóran kjörseðil þarf til að koma listunum 12 fyrir á blaði og segir Kristján G. stærðina tefja talningu. „Bæði tekur seðillinn mikið pláss á borði og svo er hann tvíbrotinn, en til þess að opna hann þarf tvenn handtök og það tekur lengri tíma,“ segir hann. Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi, tekur í sama streng og segir erfiðara að telja stóra kjörseðla. „Hann er 64,5 sentimetrar á lengd – það er svoldið stórt og tekur pláss á borði, en við höfum nú séð þá svipaða áð- ur,“ segir hann og bætir við að gangi allt eftir ættu fyrstu tölur að berast frá kjördæminu um klukkan 22.30. „Það er þó spáð suðaustanátt svo það gæti verið heljarsjór við Vest- mannaeyjar. En miðað við mína reynslu ættum við að geta siglt til Þorlákshafnar – best hefði verið að komast með kjörgögnin til Land- eyjahafnar,“ segir Karl Gauti. Jónas Þór Guðmundsson, formað- ur yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjör- dæmi, segir fyrstu tölur geta komið um klukkan 22.30. „Þetta er auðvit- að áætlun, en við stefnum að þessu og allur undirbúningur fyrir kosn- ingarnar hefur gengið vel.“ Á síðustu metrunum í Rvk Þegar Morgunblaðið náði tali af Sveini Sveinssyni, formanni yfir- kjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður, voru menn á lokametrunum með undirbúning kjörstaða, en alls eru kjörstaðir 15 talsins í Reykjavík. „Þetta var að vísu svolítið erfitt því það er náttúrulega ekkert frí í skólum. Okkar menn hafa því verið á handahlaupum í undirbúningi,“ seg- ir hann. „Það er auðveldara að und- irbúa kosningar á sumrin þegar menn hafa eins marga daga og þeir vilja.“ Af þeim 15 kjörstöðum sem kosið er á í Reykjavík eru 12 skólar. Hinir þrír eru Ráðhús Reykjavíkur og tvö íþróttahús. Þá segist Sveinn búast við fyrstu tölum um klukkan 23. Erla S. Árnadóttir, formaður yf- irkjörstjórnar í Reykjavíkurkjör- dæmi norður, reiknar með fyrstu tölum þaðan milli 23 og 23.30. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lokahönd Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn í Verkmenntaskólann á Akureyri var enn unnið að undirbúningi. Kjördæmin sex klár undir alþingiskosningar  Veðrið gæti enn sett svip sinn á flutning og talningu gagna „Það var bara svo hvasst að það komst enginn bátur í höfn,“ segir Auðunn Kristinsson, verkefnastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, um aðstoð sem veitt var til að koma kjörkassa og atkvæðaseðlum til Grímseyjar í gær. Það hefur verið ófært til eyjar- innar undanfarna daga en í dag fara fram kosningar til Alþingis. Grímseyjarferjan Sæfari gat kom- ist nálægt höfninni og henti út kjör- kassa í vatnsheldum umbúðum og sjómenn í trillu gátu pikkað upp kassann. En svo óheppilega vildi til að gleymst hafði að koma kjörseðlum fyrir í kassanum og því var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og fór hún með kjörseðlana til eyjar- innar. Er ekkert erfitt að fljúga þangað á þyrlu í svona vondu veðri? „Nei, nei, það þarf að vera tölu- vert hvassara til að við komumst ekki þangað á þyrlunni.“ Þannig að þetta hefur leyst far- sællega? „Já, það má segja það. En svo er bara að sjá hvernig mun ganga að koma atkvæðunum til baka eftir kosningar.“ Það gæti verið jafn erfitt og jafn- vel erfiðara? „Já, en við erum með varðskip á þessum slóðum þannig að það mun alltaf geta komið til aðstoðar og skutlað atkvæðunum í land,“ segir Auðunn. borkur@mbl.is Kjörkassa kastað í sjóinn  Ýmsar leiðir notaðar til að fólk geti kosið  Kjörkassi veiddur upp úr sjónum og þyrla send með kjörseðla Ljósmynd/Helga Mattína Björns Ófært Það er ekkert grín að búa í Grímsey, hvað þá að kjósa þar. ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.