Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið/RAX
Eva María „Við eigum margt sameiginlegt þó tími og fjarlægð sé á milli.“
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það var stórkostleg ogógleymanleg upplifun aðsigla með sextíu miðalda-fræðinga út í Viðey til að
velta vöngum yfir einu tilteknu
handriti sem að stofni til er frá tólftu
og þrettándu öld. Þetta handrit átti
hugsanlega heimili um tíma í Viðeyj-
arklaustri, svo staðsetningin var tal-
in vel við hæfi. Fólk á öllum aldri tók
þátt í ráðstefnunni, þau yngstu eru
fædd á níunda áratugnum en þeir
elstu voru um áttrætt. Þarna voru
líka margir erlendir nemendur sem
eru hér til að stunda íslensk mið-
aldafræði og þar með forníslensku.
Staðreyndin er sú að miklu fleiri út-
lendingar vilja læra íslensk miðalda-
fræði en Íslendingar,“ segir Eva
María Jónsdóttir, vef- og kynningar-
stjóri Árnastofnunar, en í síðustu
viku var tveggja daga ráðstefna í
Viðey þar sem því var fagnað að
hundrað ár eru liðin frá því að ís-
lenskir alfræðitextar frá miðöldum
voru gefnir út undir heitinu Alfræði
íslenzk I–III.
„Þarna voru flutt hin ólíkustu
erindi um handritið, sem er mikil
gersemi, elstu hlutar þess eru frá
tólftu öld, sennilega frá árinu 1192.
Efni þess er úr ýmsum áttum enda
var yfirskrift ráðstefnunnar „Heim-
ur í brotum“. Brynjólfur Sveinsson
biskup sendi Danakonungi þetta ís-
lenska handrit árið 1662. Handritið
var í þrjú hundruð ár í Konungs-
bókhlöðu í Kaupmannahöfn en kom
aftur heim til Íslands árið 1984 og þá
tók Stofnun Árna Magnússonar við
því.“
Heimi skipt í heitt og kalt
Eva María segir gríðarlega
gaman að skoða handritið því það sé
í raun alfræðibók síns tíma og þar
fáum við að kynnast heimsmynd
miðaldamanna.
„Þar eru meðal annars kort sem
sýna jörðina eins og hún sé flöt og
önnur sem sýna hana sem hnött. Í
handritinu sjáum við til dæmis
hvernig hnettinum var skipt í svæði
eftir loftslagsbeltum, í köld svæði og
heit svæði. En einnig er þar kort
sem sýnir landaskipun hins þekkta
heims. Heimsálfurnar eru aðeins
þrjár, Evrópa, Afríka og Asía og
snýr Asía upp á kortinu. Einnig eru
nokkur borgarnöfn skrifuð inn á
heimskortið og telst Jerúsalem vera
miðpunktur heimsins.“
Eva María segir að til séu í öðr-
um löndum miðaldahandrit með al-
fræðiefni og athyglisvert sé að bera
myndir í þeim saman við þær sem
eru í íslenska handritinu. „Þá kemur
í ljós að heimsmyndin er heilsteypt
og almenn, þrátt fyrir litlar sam-
göngur milli heimshluta. Þetta sýnir
vel að hinn sammannlegi undir-
straumur er staðreynd. Við getum
horft á myndir um fólk sem er afar
ólíkt okkur en við skiljum það samt,
og við getum sett okkur inn í vanda-
mál náungans þó hann sé hinum
megin á hnettinum í allt öðrum að-
stæðum og tali framandi tungumál.
Við erum mennsk og eigum margt
sameiginlegt þó tími og fjarlægð sé á
milli.“
Fólk notaði heilann vel
Eva María segir handritið gefa
hugmynd um hvernig minnistækni
fólk hafði á miðöldum.
„Fólk notaði heilann vel, enda
hafði það ekki þau tæki sem við not-
um, eins og tölvur og síma. Í hand-
ritinu er á einum stað orðalisti á lat-
ínu og íslensku yfir áhöld sem
tengjast hversdagslegu lífi, mat-
argerð, hreingerningum, eldstæði,
herbergjaskipan, orð yfir áhöld til
garðverka, orð sem tengjast mann-
legum úrgangi, heiti yfir ólíkar
hundategundir og fleira. Þetta gefur
dýrmæta mynd af húshaldi fólks en
Áslaug Ommundsen frá Björgvinj-
arháskóla var með skemmtilega til-
gátu á ráðstefnunni í Viðey um hvers
vegna þessir listar væru einmitt
svona. Hún telur að sennilega hafi
þetta verið minnisaðferð til að kenna
og læra latínu. Þessi upptalning er
þá í raun ferðalag í kringum eitt
heimili eða bæ. Fólk fór hugsanlega
í einhverskonar hugarferð um heim-
ilið og garðinn til að leggja latnesk
orð á minnið, því þannig er auðvelt
að muna.“
Kom alla leið frá Alsír
„Við sjáum líka í þessu handriti
að fólk hafði leiðir til að vita hvar og
hvenær það var statt í almanaks-
árinu. Tímatalsfræðin var unnin út
frá brjálæðislega flóknu og tækni-
lega fullkomnu fyrirbæri sem heitir
páskatöflur en þær voru grundvall-
aratriði til að reikna út hvenær
páskar væru og aðrar hræranlegar
hátíðir. Þær voru þess tíma exelskjöl
og geyma útreikninga á gangi himin-
tungla. Í þessu handriti er ritgerð
um tölustafakerfið eins og við þekkj-
um það í dag, en fram að því voru að-
eins notaðar rómverskar tölur.
Þarna er verið að kynna tölustafina
frá einum upp í níu, en núll er ekki
tala heldur er talað um það sem á
arabísku heitir „sífr“ og merkir tóm
eða eyða, en einnig núll, en þaðan er
enska orðið „zero“ komið,“ segir
Eva María og bætir við að einn fyrir-
lesarinn á ráðstefnunni í Viðey, Ab-
delmalek Bouzari, hafi komið alla
leið frá Alsír en hann er sérfróður
um sögu stærðfræðinnar á miðöld-
um.
„Hann sagði frá uppruna og
sögu stærðfræðiritgerðarinnar Al-
gorismus sem birtist í þessu hand-
riti, en hún á rætur að rekja til al-
Kwarizmi, fræðimanns sem starfaði
í Bagdad á áttundu og níundu öld.
Ritgerðin fjallar um reikning með
arabískum tölustöfum (sem í raun-
inni eru indverskir) og var þýdd á
latínu á miðöldum og á norrænu á
seinni hluta þrettándu aldar. Heitið
Algorismus er dregið af nafni al-
Kwarizmis sem og stærðfræði-
hugtakið algoriþmi.“
Ótrúlega margt áhugavert má lesa úr einu íslensku skinnhandriti frá miðöldum
þegar stjörnumerki og staða himintungla léku mikilvægt hlutverk í hversdagsönn-
um fólks. Hópur miðaldafræðinga kom saman í Viðey á dögunum til að spá og
spekúlera í þessu tiltekna handriti og kenndi þar ýmissa grasa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingað um handrit Eva María á leið út í Viðey með miðaldafræðingum.
Stjörnumerki Pennateikningar af táknum dýrahringsins. Uppdráttur Heimshlutar, árstíðir, mánuðir, vindar og áttir. Tölur Um lengdarmælingar, gang sólar og útreikning hans.
Hinn sammannlegi
undirstraumur
Í handritinu GKS 1812 4to er m.a. að finna: Latnesk rímvers (tímatals-
fræði), texta um himintunglin (gang þeirra og samband við dýrahringinn,
sem og um flóð og fjöru), um stjörnuhimininn, um rúmfræði hrings, Al-
gorismus (um útreikninga með arabískum tölustöfum), um lögun jarðar
og loftslagsbelti, um lengdarmælingar, gang sólar og útreikning hans,
um skiptingu ársins, heimskort, árstíðirnar, mánuðina, stjörnumerkin,
vindana og höfuðáttirnar, tákn dýrahringsins í stjörnufræði og þar með
fylgja myndir. Einnig pennateikningar af stjörnumerkjunum kentár (Cen-
taur), veiðimanninum (Orion), hundastjörnunni (Sirius) og hvalnum (Ce-
tus) með latneskum texta og af heimspekinni (philosophia) og undir-
greinum hennar. Um tímasetningu sköpunar Adams, um Betlehem-
stjörnuna og nöfn nokkurra íslenskra kynborinna presta.
Kennir margra grasa í handritinu
UM GANG HIMINTUNGLA OG FLEIRA