Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 18
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Hún hannar og prjónar.Hann málar. Sú hug-mynd að þau HarpaHreinsdóttir handverks-
kona og Bjarni Þór Bjarnason list-
málari stilltu saman strengi sína og
efndu til sameiginlegrar sýningar á
Vökudögum á Akranesi átti Ásta
Salbjörg Alfreðsdóttir, eiginkona
Bjarna Þórs og besta vinkona
Hörpu. „Ásta Salbjörg bar hug-
myndina undir Bjarna sem leist vel á
og ákvað að mála peysur. Við Bjarni
gerum bara það sem Ásta segir okk-
ur og það hentar okkur báðum ágæt-
lega“ segir Harpa. „Ásta Salbjörg,
sem er listrænn stjórnandi sýning-
arinnar „Geggjaðar peysur“ gætir
Gallerís Bjarna Þórs milli kl. 12 og
16 á laugardögum. Það er löngu orð-
in hefð að gestir og gangandi líti ekki
bara inn til að skoða málverk heldur
taka sumir með sér prjóna eða hekl-
dót og svo sitjum við saman og
spjöllum, ásamt því að lóðsa fólk
öðru hvoru um Galleríið. Ásta Sal-
björg er dugleg að gefa kaffi og kök-
ur og allir eru velkomnir í þennan
mjög óformlega prjónaklúbb innan
um málverkin“.
Peysan prjónuð eins og
naglasúpan var elduð
Peysumálverk Bjarna
Þórs segir Harpa vera undir
áhrifum fatamerkisins „Desi-
gual“ því þau eru mjög lit-
skrúðug og lífleg.
Og peysurnar
hennar Hörpu eru
sannarlega geggj-
aðar í orðsins
fyllstu merkingu
því flestar prjón-
aði hún þegar hún
var mjög geðveik,
þ.e. í þunglyndis-
köstum. „Þegar ég
er sem veikust
missi ég hæfileik-
ann til að tjá mig,
lesa og horfa á
sjónvarpið en ég
get prjónað.“ Hún
prjónar mest eftir
eigin uppskriftum
og hannar gjarnan
jafnóðum eins og
t.d. „Matala“-
peysuna. „Ég byrj-
aði á að prjóna ferning með hjarta.
Síðan bættust við fleiri ferningar
með ýmsum prjónaðferðum sem ég
skeytti í renninga og loks renn-
ingana í peysu. Ég hafði ekki hug-
mynd um það fyrirfram hvernig hún
yrði, þessi peysa er prjónuð eins og
naglasúpan fræga var elduð“.
„Riddarapeysan“ var frumraun
Hörpu í myndprjóni, byggð á Ridd-
arateppinu fræga, rúmábreiðu frá
því um 1800. Næsta myndprjóns-
verk varð „Geðveika peysan“ með
ketti sem er útprjónað málverk
enska listmálarans Louis Wain
(1860-1939). Wain þjáðist af ein-
hvers konar geðveilu og má sjá það á
verkum hans. Harpa bjó til munstrið
eftir skannaðri mynd í þar til gerðu
forriti og muni hún rétt varð
munstrið 10 síður. „Síðan prjónaði
ég út málverkið eftir bestu getu, úr
alls konar garni og þurfti að ganga
frá feikilega mörgum endum“.
Kílómetralangar hespur
af silkigarni
„Silkipeysan“ er prjónuð úr
fjórföldu örfínu 100% silkigarni sem
Harpa pantaði á netinu hjá rúss-
neskri konu sem kaupir silki frá
Kína og handlitar það. „Þetta er eina
peysan á sýningunni
þar sem stuðst er við
uppskrift, en reyndar
var uppskriftin af
korseletti og þurfti ég
að breyta henni tals-
vert við handvegi og að
framan. Af því að ég
gat bara keypt eina kíló-
metralanga hespu í einu
varð ég að panta fjólubláa garnið
tvisvar sinnum í viðbót. Garnið er
handlitað og því eru þrenn litaskil í
peysunni“.
Nýjasta peysan á sýningunni er
mósaík-peysan, en Harpa lauk við
hana nú í október. ,,Þessi er prjónuð
úr Aran-garni og munstrin eru feng-
in úr bók Barböru G. Walker, Mosa-
ic knitting. „Mósaíkmunstur er
hugsað eins og mósaíkflísar, þ.e.a.s.
hægt er að endurtaka sama munstr-
ið bæði lóðrétt og lárétt þannig að
það passi fullkomlega saman. Peys-
an er prjónuð í hring ofan frá og nið-
ur með garðaprjónsáferð.“ Harpa
mátaði svo peysuna reglulega til að
hún smellpassaði. Hún segir erfiðast
hafi verið að reikna út hvernig
munstureiningarnar gætu passað
við sniðið.
Óli gossari er verndari
sýningarinnar
Sérlegur verndari sýningar-
innar er Óli gossari (Ólafur Jónsson,
f. 22. des. 1834, d. 22. des. 1907), sem
er sennilega langfrægasti prjónari af
Skaganum. „Af því að ég er áhuga-
manneskja um prjónasögu vissi ég
vel deili á honum en við Bjarni Þór
höfðum ekki hugmynd um að hann
bæri einnig á góma í annarri sýningu
á Vökudögum og þykir okkur það
skemmtileg tilviljun. Óli gossari var
einn af síðustu flökkurum landsins,
hlutskipti hans var að flakka um
Borgarfjörðinn og víðar, setjast upp
á stöku bæ og vinna þar fyrir mat
sínum uns flökkuþráin greip hann á
ný. Óla var yfirleitt vel tekið því
hann kunni vel til allrar ullarvinnu
og prjónaði mikið. Menn fyrirgáfu
honum aðra bresti, s.s. að gerast
stundum fingralangur. Hrepps-
nefndin á Akranesi lét byggja lítið
hús undir Óla laust fyrir aldamótin
1900. Sá kofi var yfirleitt kallaður
Gossarabær og stóð nálægt þar sem
Bíóhöllin er nú. Síðustu æviárin
dvaldi Óli að mestu einn í kofa sín-
um, drakk svart kaffi og maulaði
þurrt skonrok en alltaf var hann með
prjónana í höndunum og rokkinn hið
næsta sér.“
Geggjaðar peysur og peysumálverk
Sýningin „Geggjaðar peysur“ á Vökudögum á Akra-
nesi er samstarfsverkefni Hörpu Hreinsdóttur hand-
verkskonu og Bjarna Þórs Bjarnasonar listmálara.
Harpa sýnir peysur sem hún hefur hannað og prjónað
og Bjarni Þór sýnir málverk af peysum og prjóni.
Lúrt Týra tík Ástu og Bjarna Þórs lætur fara vel um sig í Galleríinu.
Prjónalist Fyrirmyndirnar á málverkum Bjarna Þórs skrýðast allar handprjónuðum og litríkum peysum.
Ljósmyndir/Guðrún Vala
Samstarfsfólk F.v. Ásta Salbjörg, Bjarni Þór og Harpa auk Óla gossara, sérlegs verndara sýningarinnar.
Alveg geggjað Harpa í geðveiku og
litskrúðugu kattarpeysunni.
Mósaík og
silki Mósaík-
peysan t.h. og
silkipeysan
t.v.
Ár hvert, um mánaðamótin októ-
ber-nóvember, er menningarhá-
tíðin Vökudagar haldin á Akra-
nesi í boði bæjaryfirvalda.
Tilgangur er að efla menningarlíf
í bænum og lífga upp á skamm-
degið. Með hverju árinu hefur
dagskrá Vökudaga orðið viða-
meiri og þátttaka fyrirtækja og
stofnana aukist jafnt og þétt.
Eitt af því sem er í boði í ár er
sýningin „Geggjaðar peysur“
sem verður opnuð í dag, laugar-
daginn 29. október, frá kl. 12-16,
í Listasmiðju- og galleríi Bjarna
Þórs Bjarnasonar á Skólabraut
22 Akranesi.
Bjarni Þór stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands, Myndlistarskóla Reykjavík-
ur og Engelsholm kunsthøjskolen
í Danmörku. Bjarni hefur haldið
fjölmargar einka- og samsýn-
ingar og má fá nánari upplýs-
ingar á www.listamadur.com.
Sýningin Geggjaðar peysur
verður opin á sýningartíma gall-
erísins sem er kl. 10-12 og 15-18
á virkum dögum og kl. 12-16 um
helgar til 6. nóvember.
Menningarauki
VÖKUDAGAR Á AKRANESI
Matala Harpa í Matala-peysunni,
Riddarapeysan í baksýn.