Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Einn vinsælasti og þekktasti veitingastaður landsins sem staðsettur er
á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Mikill og vaxandi hagnaður.
Langur leigusamningur.
• Rótgróið, öflugt og vel tækjum búið þvottahús í miklum vexti sem
þjónar aðallega hótelum og gistiaðilum. Gott tækifæri til að gera
enn betur.
• Fasteignafélag með 27 nýjar stúdíóíbúðir í langtímaleigu. Góðar og
stöðugar tekjur.
• Vinsælt hótel á einstökum stað í nálægð við höfuðborgarsvæðið.
Velta eins og um hótel í höfuðborginni sé að ræða.
• Kraum, einstök verslun með íslenska hönnun, fatnað og gjafavöru.
• Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa
möguleika til þróunar.
• Vefverslun sem hefur starfað um nokkurra ára skeið. Mánaðarleg
velta 4 til 5 mkr., hagkvæm lagerstærð og góð framlegð. Öll vara
send með Íslandspósti.
• Gamalgróinn og mjög vinsæll veitingastaður, staðsettur á einstökum
stað í miðbænum. Frábær eining fyrir hjón eða einstaklinga.
• Stöndug heildsöluverslun með sérhæfðar vörur fyrir
byggingariðnaðinn í mjög góðu og stóru eigin húsnæði á besta stað
í borginni. Velta 300 mkr. og afkoma góð.
• Pizzastaður sem nýtur mjög mikillar velgengni og býður upp á
fjölgun staða undir sama nafni. Kontakt telur að eigandi geti hugsað
sér að gera það í samvinnu við meðfjárfesta.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
28. - 31. október
Föstudag - mánudags
TAX FREE
AF ÖLLUM VÖRUM*
Gildir ekki um vörur á áður
niðursettu verði.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24% virðisaukaskatt af þessari sölu.
Verðlækkunin 19,36% er alfarið á kostnað ILVA
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það var mikil andspyrna við kirkj-
una frá því að hugmyndin kom fram
árið 1942. Í fyrstu voru það arki-
tektar sem tjáðu sig en þegar ljóst
var að mönnum var full alvara með
að byggja kirkjuna þá voru margir
sem gagnrýndu hana, mikið grín
var gert að byggingunni og hún tal-
in mikil tímaskekkja í byggingar-
list,“ segir Pétur
H. Ármannsson,
arkitekt og sviðs-
stjóri hjá Minja-
stofnun Íslands,
um Hallgríms-
kirkju en bygg-
ing hennar féll í
grýttan jarðveg í
íslensku sam-
félagi á sínum
tíma þegar Guð-
jón Samúelsson,
þáverandi húsameistari ríkisins, var
fenginn til að gera tillögu að kirkj-
unni sem nú stendur á Skólavörðu-
holti. Kirkjan var vígð árið 1986 og
heldur því upp á 30 ára vígslu-
afmæli sitt um þessar mundir.
Hvatinn að byggingu Hall-
grímskirkju var upphaflega sá að
tryggja austurhluta Reykjavíkur
sóknarkirkju en þegar kaþólska
kirkjan við Landakot var vígð
ákvað Þjóðkirkjan að fyrirhuguð
kirkja á Skólavörðuholti yrði ekki
venjuleg sóknarkirkja heldur höf-
uðkirkja landsins. „Það eru til
blaðaskrif þar sem menn lýsa því
yfir að hin nýja þjóðkirkja á Skóla-
vörðuholti þurfi að vera svo stór,
vegleg og reisuleg að kaþólska
kirkjan á hinu holtinu, Landakots-
hæðinni, sé smábygging í saman-
burði við hana,“ segir Pétur.
Kirkjan tók töluverðan tíma í
byggingu eða rúm fjörutíu ár. Byrj-
að var á því að reisa kirkjuturninn á
undan kirkjuskipinu en að sögn
Péturs voru ákveðin klókindi þar að
baki þar sem líkur voru á að ef
kirkjuskipið yrði reist fyrst þá yrði
turninn aldrei byggður.
Með þjóðlegri skírskotun
„Hugmynd Guðjóns var að
mörgu leyti mjög sérstök en hann
sá fyrir sér fyrst og síðast að kirkj-
an yrði áberandi kennileiti á þessari
hæstu hæð Reykjavíkur á þeim
tíma og myndi blasa við innsigl-
ingum að Reykjavík og sæfar-
endum, segir Pétur, en Guðjón hafi
einnig haft uppi hugmyndir um raf-
lýsingu í turninum sem lýsa myndi
upp bygginguna á óvenjulegan hátt.
„Hann vildi líka tengja byggingalist
kirkjunnar, með þjóðlegri skír-
skotun, við stuðlaberg,“ segir hann,
en gluggarifurnar á milli stuðlanna
hleyptu inn ljósinu. Líkur hafa einn-
ig verið leiddar að því að Hraun-
drangi í Öxnadal hafi verið Guðjóni
fyrirmynd við teikningu kirkjunnar.
Hugmyndir voru uppi um að
gera Hallgrímskirkju að dómkirkju
þar sem sú sem stendur við Austur-
völl og gegnir því hlutverki í dag
þótti lítil og hjákátleg í samanburði.
„Dómkirkjan var ekki áberandi í
bæjarmyndinni og var of lítil. Á
tímum þjóðernisvakningar þótti
mönnum einnig bygging teiknuð og
byggð af dönskum húsameisturum
ekki endurspegla þjóðleg viðhorf,“
bætir Pétur við en Hallgrímskirkja
bjó yfir séríslenskum byggingarstíl
sem átti að vera einkennandi fyrir
íslenska kirkjuhefð.
Kirkjan var byggð úr stein-
steypu þó kirkjur í nýgotneskum
stíl hefðu yfirleitt verið hlaðnar.
Landakotskirkja er einnig steypt.
Fylgdi kirkjunni ekki til loka
„Þó Hallgrímskirkja sé stærst
og mest áberandi í byggingu þá er
hún í listrænu tilliti ekki hans há-
punktur,“ segir Pétur um val Guð-
jóns að byggja Hallgrímskirkju í
nýgotneskum stíl þar sem hann
hafði rétt áður teiknað bæði Akur-
eyrarkirkju og Laugarneskirkju
sem báðar eru í anda nútímastefnu í
byggingarlist þó þær vísi líka í
sögulegan stíl. Gagnrýnin sem
kirkjan hlaut á sínum tíma laut
einnig að því að hún væri ekki nú-
tímalegri í útliti.
Guðjón fékk þó ekki tækifæri
til að fylgja byggingu kirkjunnar til
endaloka og lagði einungis fram
frumdrög og aðaluppdrætti af kirkj-
unni að utan. Það kom því í hlut eft-
irmanna hans að leysa mörg álita-
mál um hönnun kirkjunnar að
innan, meðal annars hvað varðar
kirkjuskipið, kirkjubekki, altari og
predikunarstól.
Áberandi kennileiti á
efstu hæð Reykjavíkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hallgrímskirkja Kirkjan tók á móti 2.200 gestum að meðaltali á dag í fyrra eða um 800 þúsund manns í heildina.
Hallgrímskirkja var umdeild en á nú 30 ára vígsluafmæli
Búin Kirkjan tók um 40 ár í bygg-
ingu sem hófst 1942 og lauk 1986.
Eins og þekkt er orðið hefur Hall-
grímskirkja skapað sér sess sem
eitt af helstu kennileitum Reykja-
víkur og setur mikinn svip á borg-
armyndina. „Það sáu menn ekki al-
veg fyrir. Að því leyti má segja að
tíminn hafi unnið með hugmynd
Guðjóns og óneitanlega væri
Reykjavík svipminni ef ekki væri
fyrir þessa byggingu,“ segir Pétur
H. Ármannsson, arkítekt, en á
hverju ári heimsækja mörg hundruð
þúsund ferðamenn kirkjuna sem
komst nýlega á lista yfir tíu bestu
íhugunarstaði í heimi. Hluti ferða-
mannahópsins, á milli 150.000 og
200.000, fer upp í turninn með
lyftunni, upp á útsýnispall, en það
kostar 900 kr. fyrir fullorðna en
frítt er fyrir börn.
Á síðasta ári voru tekjur vegna
útsýnispalls í turni rúmar 162 millj-
ónir króna. Samkvæmt upplýs-
ingum frá kirkjunni eru fjármunirnir
nýttir til reksturs og viðhalds kirkj-
unnar en á döfinni er að kaupa nýja
lyftu og gera við kirkjuklukkur í
turninum sem nú eru þagnaðar.
Menn sáu þetta ekki fyrir
SETUR SVIP Á BORGARMYNDINA
Pétur H.
Ármannson
Ljósmynd/Börkur Arnarson