Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 38
VIÐTAL Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Ég man einu sinni eftir því að kýrnar hafi verið úti til 25. október. Þá voru þær alveg búnar með grænfóðrið, en voru settar út til þess að viðra sig því veðrið var svo gott. Nú er kálið búið, en þessa vikuna hafa þær verið í túninu sunnan við fjósið og hafa verið að bíta bæði gras og svolítið af rý- gresi, auk þess að njóta veðurblíð- unnar.“ Þetta segir Glúmur Haraldsson, bóndi í Hólum í Reykjadal, Suður- Þingeyjarsýslu, sem hefur verið með kýrnar úti, þó svo að fyrsti vetrardagur sé liðinn. Hann hefur alltaf verið mjög duglegur að setja út og hefur trú á útivistinni. Hann hefur ræktað gott grænfóður sem kýrnar hafa ekki alltaf getað klár- að, þar sem veður hafa kólnað og þær komið inn áður en akurinn hef- ur verið fullbitinn. Bráðum fimmtíu ár í fjósinu Glúmur í Hólum er ekki nýgræð- ingur í nautgriparæktinni, en hann sá um mjaltirnar í Hólum þegar hann var á fermingarárinu 1967 vegna heilsuleysis föður síns. Fór árið eftir í Laugaskóla, en tók svo við fjósinu 1969 þegar hann var 16 ára og hefur verið með það síðan. Hann segist ekki hafa sleppt nema einu máli á ári síðustu 10 árin og hefur sum ár mætt 365 daga í vinn- una, enda starf fjósamannsins mjög gefandi. „Þetta var nokkuð öðruvísi fyrr á árum,“ segir Glúmur. „Ég var í fót- bolta og ferðaðist töluvert með lið- inu um landið og þá fékk ég afleys- ingu. Þetta var gaman og ég fór m.a. til Siglufjarðar, Hvammstanga og Seyðisfjarðar og fleiri staða.“ Þetta er, að sögn Glúms, bindandi starf og hann segist skilja vel að ungt fólk hugsi sig um áður en það byrjar í kúabúskap. Hann segist eiga fjóra bróðursyni sem ólust upp í Hólum og hann hafi rætt við þá um það hvort þeir vilji taka við fjósinu. Líklega vilja þeir ekki binda sig yfir kúnum, enda allir fluttir til Reykjavíkur og nágrenn- is. Tómum fjósum fer fjölgandi „Ég er auðvitað ekki endalaus, en ég hef ekkert annað að gera en hugsa um kýrnar,“ segir Glúmur og er hugsi yfir framtíð kúabúskapar í Þingeyjarsýslu. Það hafa mjög margir hætt og honum finnst það merkilegt að það geti verið meira hvetjandi að hætta í búgreininni heldur en byrja. Mörg störf hafa horfið með brotthvarfi kúabúanna og í sumum sveitum lítur ekki vel út með þessa búgrein. Best er ástandið í gamla Ljósavatnshreppi, en þar er enn á annan tug kúabúa. Í Bárðardal hefur fækkað mikið og sama sagan er í Reykjadal, Reykja- hverfi og á Tjörnesi. Þá eru líklega yfir tuttugu tóm fjós í Aðaldal. Þró- unin hefur verið nokkuð hröð og þó svo að allir hafi vitað að búunum myndi fækka þá gerði fólk sér ekki grein fyrir því að þetta yrði svona mikið. Besta fjósalyktin er í Hólum Miklar breytingar hafa orðið á fóðuröflun og fóðrun mjólkurkúa á undanförnum árum og flestir kúa- bændur hafa lagt af gömlu hey- byssurnar og heydreifikerfin. Þá standa flestir súgþurrkunarmótorar óhreyfðir, ólíkt því sem áður var. Glúmur lætur rúlla hluta af hey- fengnum sem ekki kemst í hlöðuna, en er enn með heybyssuna í góðu lagi og súgþurrkar fulla hlöðu af heyi. Kýrnar eru sólgnar í þurr- heyið og sæðingamaðurinn segir að besta fjósalyktin í Suður-Þingeyj- arsýslu sé í fjósinu í Hólum. Lík- lega er það sumarlyktin af heyinu sem berst um fjósið þegar kúnum er gefið sem fer vel í menn, en þannig sumarlykt kemur aldrei af rúlluheyi. Baula, Birta og Hvít Glúmur hefur gaman af kúalit- unum og kýrnar í Hólum hafa jafn- an verið mikið skraut við þjóðveg- inn sunnan við þéttbýliskjarnann á Laugum. Hann á þrjár hvítar kýr sem heita Baula, Birta og Hvít og hefur uppáhald á þeim. Þær eru skyldar og allar út af nauti sem var á Nautgriparæktarstöð Bænda- samtaka Íslands og hét Hvítingur. Þá á hann fleiri kýr fallegar á litinn t.d. eina hjálmótta og aðra kol- skjöldótta, en segir að sægrátt hafi ekki verið í hans hjörð í áratugi. Kýrnar eru mjög gæfar og þegar hann gengur til þeirra í haganum, koma þær allar og tala við hann og kjassa hann. Líklega eru þær að vonast eftir að þeim sé gefið meira kál eða eitthvað gott, en hann seg- ist aðeins hafa sparað kálið þegar hann sá að tíðin ætlaði að vera svona góð í október til þess að úti- vistin yrði lengri. Glúmur er bjartsýnn og hlakkar til vorsins þegar hann fer að plægja akurinn og sá káli til haust- beitar. Og þó að tíminn líði þá verða fallegur kýrnar í Hólum, eins og Baula, Birta og Hvít, enn um sinn skraut á túnunum við Lauga- þorpið og það munu vegfarendur kunna vel að meta. Kannski klára þær kálið næsta haust líka. Kýrnar í Hólum kláruðu kálið  Einstakt haustveður í Reykjadal og kýrnar njóta veðurblíðunnar  Glúmur Haraldsson, bóndi í Hólum, hefur séð um fjósið í tæpa hálfa öld  Er hugsi yfir framtíð kúabúskapar í Þingeyjarsýslu Morgunblaðið/Atli Vigfússon Veðurblíða í Reykjadal Glúmur bóndi hefur gaman af að spjalla við kýrnar í haganum. Hjá honum stendur Hvít. Hjálma er falleg kýr Alla jafna hafa kýrnar í Hólum verið mikið skraut við þjóðveginn sunnan við þéttbýliskjarnann á Laugum í Reykjadal. 38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Hólar í Reykjadal standa rétt við Reykjadalsá gegnt Framhalds- skólanum á Laugum. Þetta var upphaflega eitt lögbýli, en síðar þ.e. 1947 var byggt annað býli sem var nefnt Lautir og er það hálflenda Hóla. Þéttbýliskjarninn á Laugum er byggður á landi sem tilheyrði Hólum og þar er nú vaxandi byggð og nokkur fyrirtæki m.a. annars fiskþurrkun. Byggðin er farin að umlykja jörðina, en ræktunarmöguleikar eru góðir sunnan við bæinn. Á und- anförnum árum hefur aðallega verið mjólkurframleiðsla í Hól- um. Byggð fer vaxandi LAUGAR Í LANDI HÓLA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.