Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 43
Neyðarkall stúdenta
Stúdentafélög allra háskóla á Íslandi eru með undirskriftasöfnun á
www.haskolarnir.is þar sem þess er krafist að stjórnvöld setji menntamál
í forgang og fylgi settri stefnu um fjármögnun háskólakerfisins.
Meðalframlag íslenska ríkisins á hvern ársnema í háskóla er tæplega
1,3 milljónir króna. Ísland er þar langt á eftir nágrannaþjóðum sínum
því framlagið nemur rúmlega 2,2 milljónum króna að meðaltali annars
staðar á Norðurlöndum.
Stúdentafélögin standa í baráttu sem er ekki bara fyrir núverandi
háskólanema. Fjárframlögin koma ekki í tæka tíð fyrir þá. Háskólanemar
eru nú að berjast fyrir komandi kynslóðum, að tækifæri þeirra verði betri
en núverandi kynslóðar. Barist er fyrir framtíðinni. Þú skrifar ekki undir
fyrir þig, skrifaðu undir fyrir börnin þín, barnabörnin eða börnin sem þú
munt eignast í framtíðinni.
Alltof lengi hafa nemendur þurft að búa við undirfjármögnun háskólanna
sem bitnar meðal annars á kennslu og aðstöðu í háskólunum og ekki síður
framþróun í samfélaginu. Enn fremur er ljóst að ef ekki er lagt meira fé til
reksturs háskólakerfisins þarf á endanum að fækka nemendum og draga
úr fjölbreytileika í námsframboði.
Átt þú eftir að skrifa undir á
www.haskolarnir.is?
Ekki sjá eftir því í framtíðinni, að hafa ekki tekið afstöðu með
þeim sem þér þykir vænt um. Skrifaðu undir í dag.
Fyrir hönd félaganna,
Ellen Ósk Eiríksdóttir
formaður Nemendafélags Háskólans á Bifröst
Fríða Hansen
formaður Stúdentafélags Háskólans á Hólum
Helga Margrét Mason Jóhannesdóttir
formaður Félags Stúdenta við Háskólann á Akureyri
Kristófer Már Maronsson
formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Rebekka Rún Jóhannesdóttir
formaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík
Sandra Rún Jónsdóttir
formaður Nemendaráðs Listaháskóla Íslands
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands