Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 45
City-liðsins og segir sjálfur að hann
hafi nú þegar lært mikið undir
stjórn Spánverjans.
„Ég vil alltaf verða betri á sama
tíma og ég safna fleiri leikjum á fer-
ilskrána. Að mínu mati vinn ég með
besta þjálfara í heimi og vonandi
held ég áfram að tileinka mér hug-
myndir hans hratt og örugglega.“
Sá leikmaður sem hefur blómstr-
að hvað mest undir stjórn Guardiola
er Raheem Sterling. Fólk efaðist
um framtíð kappans eftir von-
brigðatímabil í fyrra sem endaði
með neyðarlegu tapi gegn Íslandi í
16-liða úrslitum Evrópumótsins.
Fjölmargir stuðningsmenn liðsins
vildu ekki sjá kantmanninn aftur í
ljósblárri treyjunni en Guardiola
var viss í sinni sök. Hann hafði sam-
band við Sterling og kvaðst afar
spenntur að vinna með honum. Gu-
ardiola bað hann um að leggja sig
allan fram og þá gæti hann sýnt
Sterling hversu góður hann getur
orðið. Sterling tók hann á orðinu og
er betri en nokkru sinni fyrr. Hann
var valinn besti leikmaður ágúst-
mánaðar í ensku úrvalsdeildinni og
leiðin virðist aðeins liggja upp á við
hjá eldfljóta kantmanninum.
Nágrannarnir leiknir grátt
Í fjórðu umferð ensku úrvals-
deildarinnar heimsótti Manchester
City nágranna sína í United á Old
Trafford. Athyglin í aðdraganda
leiksins beindist hvað mest að þjálf-
urum liðanna en þetta var í fyrsta
skipti sem Guardiola og José Mour-
inho, knattspyrnustjóri Manchester
united, mættust á enskri grundu.
Áður höfðu þeir att kappi í
skemmtilegum rimmum í Meistara-
deildinni og á Spáni. Fyrir leik
höfðu þeir mætt hvor öðrum fimm-
tán sinnum, sjö leikir höfðu endað
með sigri Guardiola og Mourinho
hafði aðeins unnið þrisvar.
Það má með sanni segja að læri-
sveinar Pep Guardiola hafi kaffært
heimamenn í fyrri hálfleik. Þeir yf-
irspiluðu þá rauðklæddu og komust
tveimur mörkum yfir gegn engu.
En undir lok fyrri hálfleiks mistókst
Claudio Bravo að grípa langa fyrir-
gjöf og Zlatan Ibrahimovic þakkaði
pent fyrir sig og klippti boltann í
netið.
City hélt eins marks forskoti sínu
í síðari hálfleiknum og enn á ný
vann Guardiola þann sérstaka.
Það sem stóð upp úr eftir leik var
án nokkurs vafa góð spilamennska
City í fyrri hálfleik. Þeir léku á als
oddi, pressuðu andstæðinga sína af
miklum krafti og þvinguðu þá í mis-
tök ef þeir unnu ekki boltann. Þá
héldu þeir boltanum óaðfinnanlega
innan liðsins og fundu alltaf næsta
samherja í fætur. Það var líkt og
hver hreyfing væri skipulögð og all-
ir leikmenn liðsins voru með hlut-
verk sitt upp á tíu. Eins og fram-
úrskarandi sinfóníuhljómsveit sem
hafði spilað saman alla tíð.
Notar hálfsvæðin til
að opna mótherjann
Góð spilamennska þeirra í upp-
hafi leiktíðar er þó ekki hrein til-
viljun. Heilmikil vinna fer fram á
æfingasvæðinu á hverjum degi til
þess að innleiða hugmyndafræðina
en sú stefna sem Guardiola aðhyllist
er svokallaður stöðuleikur (e. Posi-
tional Play). Thierry Henry, spark-
spekingur Sky Sports og fyrrum
lærisveinn Guardiola, lýsti því að í
huga Guardiola væri ekki aðeins
mikilvægt að halda boltanum innan
liðsins heldur einnig að staðsetja sig
rétt á vellinum. „Haltu þinni stöðu
og bíddu eftir að boltinn komi til
þín,“ útskýrði Henry.
Til þess að rétta leikmönnum sín-
um hjálparhönd skiptir Guardiola
æfingavellinum í fimm jafn stór
svæði með lóðréttum línum. Hann
segir að allt sem gerist innan þess-
ara fimm svæða skipti höfuðmáli í
sóknaruppbyggingu. Vinstri væng-
ur, vinstra hálfsvæði, miðja, hægra
hálfsvæði og hægri vængur. Hálf-
svæðin eru því staðsett á milli
vængsins og miðjunnar. Hálfsvæðið
á uppruna sinn að rekja til Þýska-
lands (þ. Halbraum) en landsliðið
þar leggur ríkulega áherslu á að
nota hálfsvæðin tvö í sóknarupp-
byggingu. En af hverju í ósköp-
unum?
Í hálfsvæði er leikmaður yfirleitt
með meiri tíma en á miðjunni til
þess að athafna sig með boltann.
Leikmaður með boltann á tánum í
hálfsvæði getur gefið til allra átta,
út á væng, inn á miðju eða þvert yf-
ir völlinn. Á vængnum eru takmark-
aðri sendingarmöguleikar og þá er
leikmaðurinn fjær marki mótherj-
ans. Með því að leika á samherja í
hálfsvæði á vallarhelmingi andstæð-
inganna ruglar það þá iðulega í rím-
inu. Hver á að fara úr sinni stöðu til
þess að verjast boltamanninum?
Á milli línanna
Hálfsvæði er mest skapandi og
hættulegasta svæði vallarins. Þaðan
koma oftar en ekki lykil- eða stoð-
sendingarnar. Í því samhengi er
hægt að benda á David Silva og
Kevin De Bruyne sem leika í sitt
hvoru hálfsvæðinu undir stjórn
Guardiola. Þeir eru snillingar í því
að fá boltann á milli línanna og
finna sér svæði til þess að athafna
sig með boltann. Þaðan snúa þeir
sér í átt að marki og reyna að skapa
hættur upp við mark andstæðinga
sinna.
Leikfræðin skiptir höfuðmáli hjá
einum færasta knattspyrnustjóra
heims sem hefur nú þegar sett
fingraför sín á ensku úrvalsdeildina.
Hann er óhræddur að breyta göml-
um gildum fótboltans og að þróa
leik liðs síns. Sumir taka því sem
ögrun en Guardiola lætur ekki segj-
ast. Hann mun gera hvað sem er til
þess að næsta sending rati á sam-
herja.
AFP
Ástríðufullur Pep Guardiola lifir sig inn í leikinn á hliðarlínunni.
FRÉTTIR 45Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Styrkur, þol, jafnvægi og samhæfing
6 vikna námskeið fyrir 60 ára og eldri hefstmánudaginn 31. október.
Skemmtilegir tímar sniðnir fyrir fullorðið fólk. Áhersla á persónulega aðstoð,
styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu til þess að auka lífsgæði.
Verð: 39.900 kr.
Innifalið:Aðgangur að Spa, handklæði við komu, herðanudd í heitum pottum.
Tímar kl. 13.00 alla dagana
Mánudaga,miðvikudaga og föstudaga: Hóptími
Þriðjudaga og fimmtudaga: Prógrammhjá þjálfara í sal - frjálsmæting
9. nóvember verður fyrirlestur umnæringu fyrir fólk 60 ára og eldri.
Hilton Reykjavik Spa – Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090.
60PLÚS
Þjálfarar: Patrick Chiarolanzio, Agnes Þóra Árnadóttir og Guðbjartur Ólafsson