Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 48
48 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
BIRGIT GEGNHEILT BORÐSTOFUBORÐ 105X180/270 kr. 269.900 / PETER STÓLL kr. 49.900 / BIRGIT SENKUR 180 cm kr. 252.700
29. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.46 114.0 113.73
Sterlingspund 139.1 139.78 139.44
Kanadadalur 84.86 85.36 85.11
Dönsk króna 16.65 16.748 16.699
Norsk króna 13.789 13.871 13.83
Sænsk króna 12.653 12.727 12.69
Svissn. franki 114.33 114.97 114.65
Japanskt jen 1.0828 1.0892 1.086
SDR 155.79 156.71 156.25
Evra 123.85 124.55 124.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.5311
Hrávöruverð
Gull 1269.3 ($/únsa)
Ál 1673.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.05 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Velta með hluta-
bréf í Kauphöll Ís-
lands nam ríflega
5,1 milljarði króna í
gær. Í vikunni hafa
ellefu félög á að-
allista kauphall-
arinnar birt uppgjör
sín.
Mest velta var
með bréf Icelandair Group og nam hún
tæpum 1,2 milljörðum. Stóð gengi bréfa
félagsins í stað í viðskiptunum. Næst-
mest var veltan með bréf N1 eða 910
milljónir og hækkuðu bréf þess um
2,14%. Þriðja mesta veltan var með bréf
Haga, tæpar 598 milljónir og lækkaði fé-
lagið um 3,71% í viðskiptum dagsins. Var
það mesta lækkunin sem sást í Kaup-
höll í gær. Mest hækkuðu bréf Símans
eða um ríflega 4% í viðskiptum sem
námu tæpum 587 milljónum króna.
Næst mest varð hækkunin á bréfum TM
eða 2,33% en viðskipti með bréf félags-
ins voru ríflega 283 milljónir króna.
Mikið líf í Kauphöll í kjöl-
far birtingar uppgjöra
STUTT
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Stýrihópur sem fjármála- og efna-
hagsráðherra skipaði til að endur-
skoða reglur um kaup og sölu á
vöru og þjónustu milli landa hefur
nú skilað ráðherra greinargerð
sinni. Inniheldur hún meðal annars
drög að lagafrumvarpi með breyt-
ingum á lögum um virðisaukaskatt
og tollalögum.
Í tillögum hópsins er meðal ann-
ars lagt til að lögfest verði svoköll-
uð gjaldmörk aðflutningsgjalda
vegna innflutnings á vörum með
lágt verðgildi. Lagt er til að mörkin
miðist við 2.000 kr.
Starfshópurinn telur einnig að
leiða eigi í lög nýtt ákvæði um
virðisaukaskatt sem auðveldar er-
lendum fyrirtækjum sem selja raf-
ræna þjónustu til Íslands að skrá
sig á virðisaukaskattsskrá. Þá er
einnig lagt til að erlendum aðilum
sem selja hingað blöð og tímarit á
pappírsformi verði einnig heimiluð
samskonar skráning.
Einnig eru lagðar til gagngerar
breytingar á fyrirkomulagi skatt-
lagningar á sölu á þjónustu frá Ís-
landi og er miðað við leiðbeininga-
reglur OECD í þessum efnum en
meginreglan yrði sú að skattlagn-
ingarstaður þjónustunnar telst vera
sá staður þar sem þjónustan er nýtt
af kaupanda.
Gjaldmörk aðflutningsgjalda
Starfshópurinn fékk einnig það
hlutverk að greina hvort þörf væri
á því að gera breytingar á lögum og
reglum um póstverslun og þá sér-
staklega ákvæði er varða vörur sem
pantaðar eru rafrænt til landsins og
hafa lágt verðgildi. Niðurstöður
hópsins voru þær að leggja til að
vörur sem kosta undir 2.000 krónur
að meðtöldum aðflutningskostnaði,
verði undanþegnar aðflutnings-
gjöldum og virðisaukaskatti.
Kemur fram í greinargerð hóps-
ins að öll ríki innan OECD, að Ís-
landi undanskildu, fella nú niður að-
flutningsgjöld á ákveðnar
vörusendingar. Í frumvarpinu felst
því að íslenskir neytendur verði
settir við sama borð og erlendir
neytendur þegar kemur að niður-
fellingu aðflutningsgjalda á ódýrar
vörur.
Morgunblaðið leitaði álits Sam-
taka verslunar og þjónustu á mál-
inu.
„Við niðurfellingu á opinberum
gjöldum vegna kaupa á netinu þarf
að gæta jafnræðis; að sömu reglur
eigi við um staðbundna verslun og
að allir sitji við sama borð út frá
samkeppnislegum forsendum,“ seg-
ir Lárus Ólafsson, lögfræðingur
samtakanna.
Vilja engin gjöld á
minni póstsendingar
Skattur Vilja að póstsendingar undir 2.000 krónum beri ekki opinber gjöld.
Rýmri heimildir
» Kostnaður ríkissjóðs við inn-
heimtu gjalda á vörur með lágt
verðgildi er hærri en tekjur
sem af gjöldunum stafa.
» Í ESB bera vörur sem kosta
22 evrur eða minna engan virð-
isaukaskatt og vörur undir 18
þúsund krónum engin vöru-
gjöld.
» Í Noregi eru gjaldmörkin
vegna niðurfellingur virðis-
aukaskatts og tolla 350 norsk-
ar krónur eða rúmar 4.800 kr.
Samtök verslunar og þjónustu segja að tryggja verði jafnræði
Hagnaður Haga á öðrum ársfjórð-
ungi nam rúmum 1.213 milljónum
króna og jókst lítillega frá sama tíma-
bili í fyrra þegar hann nam 1.175
milljónumkróna. Vörusala ársfjórð-
ungsins nam rúmum 20,7 milljörðum
króna á fjórðungnum.
Hagnaður fyrir fyrstu sex mánuði
rekstrarársins nam 2.161 milljón
króna, samanborið við 1.986 milljónir
á sama tímabili í fyrra. Fjárhagsárið
hjá Högum hefst 1. mars ár hvert.
Fyrstu sex mánuði uppgjörsársins
nam vörusalan 40,7 milljörðum, sem
var 6% söluaukning frá sama tímabili
í fyrra. Heildarframlegð hækkar lítil-
lega milli ára en framlegð félagsins
var 24,6% samanborið við 24,3% á
fyrra ári.
Hækkandi laun auka kostnað
Rekstrarkostnaður félagsins
hækkar um 413 milljónir króna eða
6,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið
stendur í stað í 17,1%. Mest munar
þar um hækkun á launum og launa-
tengdum gjöldum en annar kostnaður
stendur í stað. Eigið fé félagsins var
16.537 milljónir króna í lok tímabils-
ins og eiginfjárhlutfall 54,7%. Heild-
arskuldir samstæðunnar voru 13.683
milljónir króna, þar af voru langtíma-
skuldir 3.843 milljónir króna.
Handbært fé frá rekstri á tíma-
bilinu nam 2.398 milljónum króna,
samanborið við 2.815 milljónir króna
á fyrra ári. Handbært fé í lok tíma-
bilsins var 3.316 milljónir króna, sam-
anborið við 2.478 milljónir króna árið
áður.
Endurhönnuð verslun Hagkaupa í
Smáralind verður opnuð 5. nóvember.
Sama dag verður Krispy Kreme-
kaffihús opnað en Hagar náðu samn-
ingi við kleinuhringjarisann í septem-
ber síðastliðnum.
Morgunblaðið/Ómar
Matvöruverslun Velta á mat-
vörumarkaði eykst áfram.
Hagar hagnast
um 1,2 milljarða
Hagnaður 5,3%
af veltu og söluaukn-
ing nemur 6%
Hagnaður N1 á þriðja ársfjórðungi
nam 1.072 milljónum króna og jókst
um 44% frá sama tímabili í fyrra
þegar hagnaðurinn var ríflega 740
milljónir. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam
1.472 milljónum samanborið við
1.110 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Framlegð af vörusölu jókst
um 13,2% á fjórðungnum og reynd-
ist ríflega 3,4 milljarðar.
Selt magn á bensíni og gasolíu
jókst um 8,9% á fjórðungnum miðað
við sama tímabil í fyrra. Hins vegar
dróst selt magn án flugvélaelds-
neytis saman um 9,1% miðað við
þriðja ársfjórðung síðasta árs
vegna minni usmvifa í sjávarútvegi
ásamt minni sölu til erlendra aðila.
Hagnaður N1 á fyrstu níu mán-
uðum ársins er ríflega 1,9 millj-
arðar króna og er það 26,1% meiri
hagnaður en á fyrstu níu mánuðum
ársins 2015. Rekstrarhagnaður á
tímabilinu nemur ríflega 2,9 millj-
örðum og eykst um 566 milljónir frá
samanburðartímabili síðasta árs.
Í lok þriðja ársfjórðungs nam eig-
ið fé N1 8.538 milljónum króna og
eiginfjárhlutfallið reyndist 39,6%.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eldsneyti Umferð jókst um 9,1% á
þriðja ársfjórðungi miðað við 2015.
Hagnaður
N1 eykst
um 44%
Launakostnaður
eykst um 13,4%