Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 55
55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Gengið til rjúpna Margar skyttur nýttu góða veðrið í gær á fyrsta degi sem rjúpnaveiði var leyfð í haust.
Golli
Rétt eins og metnaðarfullt fólk,
fyrirtæki og félög vilja metnaðar-
full samfélög sífellt bæta sig. Ís-
land er slíkt samfélag, sem þjóðin
hefur mótað með dugnaði, fram-
faratrú og metnaði.
Samkvæmt mælikvörðum
alþjóðastofnana af ýmsu tagi er
Ísland í fremstu röð, í samanburði
við önnur samfélög. Þar viljum við
vissulega vera, en föllum vonandi
aldrei í þá gryfju að halda að öll
samfélagsverkefni hafi verið
leyst. Við viljum gera betur og halda áfram að
bæta líf hvert annars. Við viljum nýta svigrúmið
sem skapast hefur á undanförnum árum til að
færa ýmislegt til betri vegar; huga betur að
öldruðum, bæta heilbrigðisþjónustu og styrkja
innviðina.
Í þeirri vinnu eigum við að horfa til þess sem
vel hefur tekist. Styðjast við að-
ferðir sem hafa virkað, en ávallt
leita að skapandi lausnum. Þannig
vill Framsóknarflokkurinn vinna
eins og nýleg dæmi sanna. Við er-
um í senn róttækur flokkur og
ábyrgur flokkur, með skýra sýn á
hvernig við bætum samfélagið og
efnahagslífið. Við hikum ekki við
að fara óhefðbundnar leiðir og
fáum til liðs við okkur færustu sér-
fræðinga hverju sinni, í stað þess
að þykjast vita allt best sjálf.
Þannig hefur okkur tekist að leysa
flókin verkefni og þannig munum
við áfram ná árangri fyrir Ísland.
Vinna, vöxtur, velferð
Við trúum því, að fjölbreytt atvinnulíf og út-
flutningur á vörum og þjónustu sé forsenda vel-
ferðar í landinu. Við viljum veg allra atvinnu-
greina sem mestan, en fögnum sérstaklega
þeim ótrúlega árangri sem náðst hefur á sviði
nýsköpunar og skapandi greina. Við viljum
skapa verðmæt störf og tryggja að mennta-
kerfið standist samanburð við það sem best ger-
ist í heiminum. Við viljum bæta kjör meðal-
tekjufólks, lækka tekjuskatt og einfalda
skattkerfið. Við viljum stuðla að góðri heilsu
þjóðarinnar og byggja nýtt þjóðarsjúkrahús frá
grunni á aðgengilegum stað.
Hagsmunir Íslands í öndvegi
Framsóknarflokkurinn hefur farið með utan-
ríkismál í fimmtán ár af síðasta 21 ári. Mark-
miðið hefur allan þann tíma verið skýrt: að
tryggja hagsmuni Íslands og stuðla þannig að
velsæld heima fyrir. Við viljum eiga góð sam-
skipti við aðrar þjóðir, en halda sjálfstæði okk-
ar. Við viljum eiga gagnkvæm viðskipti við aðr-
ar þjóðir og skapa gjaldeyristekjur fyrir
þjóðarbúið. Við höfum trú á Íslandi. Við vitum
að efnahagsstjórn í fámennu landi er krefjandi,
en reynslan sýnir að árangurinn getur verið
góður. Við trúum á dugnað, fagmennsku og
elju, en ekki töfralausnir. Við trúum því að vext-
ir geti lækkað með ábyrgri hagstjórn.
Við stöndum á krossgötum
Með skýrri sýn og markvissri stefnu hefur
orðið alger viðsnúningur á Íslandi á síðustu ár-
um undir forystu Framsóknarflokksins. Orð og
efndir hafa farið saman og fyrir vikið stöndum
við á traustum grunni til að bæta samfélagið
enn frekar. Framtíð Íslands er björt ef rétt er á
málum haldið.
Eftir Lilju Alfreðsdóttur »Með skýrri sýn og mark-
vissri stefnu hefur orðið al-
ger viðsnúningur á Íslandi á
síðustu árum undir forystu
Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er utanríkisráðherra.
Róttæk en ábyrg stjórnmál skila árangri
Jóhannes Karl Sveinsson,
samningamaður ríkisins í seinni
einkavæðingu bankanna, ritaði
nýlega grein í Kjarnann. Greinin
fjallaði í mjög stuttu máli um
skýrslu mína og voru þar settar
fram ýmsar fullyrðingar sem rétt
er að svara.
Í þessari grein verður fjallað
um söluna/gjöfina er ríkið færði
stærstan hluta sinn í Íslands-
banka til kröfuhafa Glitnis, en
fjárhagslegar afleiðingar hennar
virðast hafa farið fram hjá Jóhannesi.
Íslandsbanki var stofnaður með 775 millj. kr.
stofnframlagi ríkisins sem greitt var inn á geng-
inu 1 kr. fyrir hlut í október 2008. Á hluthafa-
fundi Íslandsbanka 14. ágúst 2009 skrifaði ríkið
sig fyrir 64.225 millj. kr. hlut í bankanum sem
greiddur var inn á genginu 6,5 kr. fyrir hlut. Út-
gefnir hlutir í Íslandsbanka voru því 10 millj-
arðar kr. og innborgað hlutafé nam 65 millj-
örðum kr. Ríkið veitti Glitni kauprétt á 95% af
útgefnu hlutafé í bankanum gegn greiðslu sem
samsvaraði því skuldabréfi sem Íslandsbanki
hafði gefið út til Glitnis vegna nettóstöðu við
bankann við stofnun skv. mati, en skuldabréf
þetta nam upphaflega 52 milljörðum kr. Glitnir
notaði kaupréttinn 15. október 2009.
Skuldabréf Íslandsbanka var gefið út í evrum
og hljóðaði upp á 346.182.012 evrur
og miðað var við gengi 15. október
2008 þegar gengi evru var 150,21 kr.
Ætla má að verðmæti skulda-
bréfsins með áföllnum vöxtum 15.
október 2009 hafi verið um 366
milljónir evra sem samsvaraði 67,1
milljarði kr. á gengi þess dags.
Hinn 9. mars 2009 yfirtók fjár-
málaeftirlitið fjárfestingabankann
Straum og 17. mars 2009 voru inn-
stæður Straums fluttar til Íslands-
banka gegn útgáfu Straums á
skuldabréfi að fjárhæð 43,7 millj-
arðar kr. Samhliða þessu var Ís-
landsbanka veittur lausafjárstuðningur og
bankanum afhent ríkisskuldabréf sem veðtækt
var hjá Seðlabanka Íslands.
Íslandsbanka bar að afhenda ríkinu til baka
bréf þetta í takt við afborganir Straums af sínu
bréfi. Bréf þetta bar REIBOR- vexti + 1,9%
álag fyrstu 12 mánuðina og 1% álag eftir það.
Samhliða þessu var gerður samningur um
lausafjárstuðning við Íslandsbanka.
Ríkið greiddi 775 millj. kr. og afhenti 64.225
milljón hluti af ríkisskuldabréfinu RIKH 18
1009 auk áfallinna vaxta á skuldabréfið frá 9.
október 2008, samtals 9,1 milljarða kr. Íslands-
banki endurgreiddi síðar 8 milljarða kr. af þess-
um vöxtum. Heildargreiðsla ríkisins var því 66
milljarðar kr.
Íslandsbanki endurgreiddi ríkinu hlutafjár-
framlag sitt með því að afhenda því til baka rík-
isskuldabréf að fjárhæð 33,8 milljarðar kr. en
24,8 milljörðum kr. hélt bankinn eftir. Ríkið
keypti fyrir þá víkjandi lán af bankanum.
Nettó greiðsla ríkisins fyrir 5% hlut í Íslands-
banka var því 7,3 milljarðar kr. Bankinn var
rekinn á ábyrgð ríkisins í heilt ár, en hækkun
eiginfjár sem komin var til vegna rekstrar
bankans frá yfirtöku og til 31. desember 2009
var 26,2 milljarðar kr. sem hefðu átt að renna til
ríkisins eiganda bankans á tímabilinu sem bar
af honum alla áhættu.
Ríkið virðist hafa gefið
eftir eiginfjáruppbyggingu
Ef aðilar hefðu kosið að líta svo á, að þar sem
Glitnir væri tilbúinn að leggja nettóeignir inn
sem hlutafé væri eðlilegt að þeir mundu njóta
hagnaðar bankans frá yfirtöku. Þá hefðu skipta-
hlutföllin væntanlega átt að taka mið af stofn-
framlagi í upphafi, þ.e. 52 milljarðar kr. af 65
milljörðum kr. hefðu þá átt að gefa kröfuhöfum
Glitnis 80% í bankanum en ekki 95%.
Ríkið virðist þannig hafa gefið eftir eiginfjár-
uppbyggingu bankans meðan hann var í eigu
þess. Ríkið virðist einnig hafa gefið eftir réttinn
til að gera upp skuld við gamla bankann á gengi
samningsdags. Ríkið greiddi 7,3 milljarða kr.
fyrir 5% hlut í bankanum eða rúmlega tvöfalt
nafnverð meðan Glitnir greiddi með 52 millj-
arða kr. skuldabréfi sem var vaxtareiknað og
fært í erlenda mynt. En þetta er ekki nema hálf
sagan.
Við söluna, veitti ríkið Íslandsbanka víkjandi
lán að fjárhæð 25 milljarða kr. með vöxtum sem
voru aðeins 1% hærri en vextir á láni Glitnis til
Íslandsbanka sem tryggt var með veðrétti án
þess að tekið væri tillit til þess við skiptingu
eigna. Kjörin voru í engu samræmi við áhættu
ríkisins og markaðskjör á samsvarandi lánum
til banka á þessum tíma. Ríkið veitti Íslands-
banka auk þess lausafjárfyrirgreiðslu upp á 25
milljarða kr. eins og fram hefur komið.
Áhætta ríkisins af Íslandsbanka eftir sölu
hans var því 32,3 milljarðar kr. og gat numið allt
að 57,3 milljörðum kr. ef lausafjárfyrirgreiðsla
yrði nýtt. Auk þess ábyrgðist ríkið skuldabréf
Straums og því fylgdi sérstök lausafjárfyrir-
greiðsla vegna yfirtöku innlána.
Framlag Glitnis til Íslandsbanka var einungis
52 milljarðar kr. Þrátt fyrir þetta fékk Glitnir
95% af ávinningnum eftir kaupin á bankanum,
en íslenska ríkið 5%. Verður þetta því að teljast
vingjarnleg gjöf.
Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Ríkið virðist þannig hafa
gefið eftir eiginfjárupp-
byggingu bankans meðan
hann var í eigu þess.
Vigdís Hauksdóttir
Höfundur er lögfræðingur og
þingmaður Framsóknarflokksins.
Jóhannesi Karli Sveinssyni svarað – Íslandsbanki
Í dag göngum við að kjör-
borðinu til þess að hafa áhrif
á það hvert leið okkar Ís-
lendinga liggur næstu fjögur
ár.
Við tókum við erfiðu búi
vorið 2013 – atvinnulífið í
járnum og efnahagslífið í
lægð – en við náðum að snúa
taflinu við. Okkur Íslend-
ingum auðnaðist að vinna
okkur út úr vandanum. Í dag
er fleira fólk í vinnu á Íslandi en nokkru
sinni í sögunni. Atvinnuþátttakan hefur
aldrei verið meiri, atvinnuleysi í lágmarki,
verðbólgan innan markmiða og kaup-
máttur launa er meiri en nokkru sinni. Við
náðum að binda enda á hallarekstur ríkis-
ins og höfum greitt niður skuldir. Á sama
tíma höfum við lækkað skatta og örvað at-
vinnulífið. Við skákuðum kröfuhöfunum
og losuðum höftin og hagvöxtur er sá
næstmesti í Vestur-Evrópu. Það er ekki
slæmt á þremur og hálfu ári.
Við erum á réttri leið og ef við höldum
áfram á þeirri braut eftir kosningar eru
okkur allir vegir færir, og við blasir stöð-
ug og örugg framtíð þar sem lífskjör allra
munu batna. Það gerist ekki af sjálfu sér,
við þurfum að sjá til þess í kjörklefanum í
dag.
Það gerum við aðeins með því að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Án
hans verður ekki mynduð
frjálslynd, borgaraleg rík-
isstjórn á Íslandi, með stað-
festu við stjórn efnahags-
mála. Því það sem Ísland
þarf á að halda er stöðug-
leiki í stjórnmálum og styrk
efnahagsstjórn. Á þeim
grunni byggjum við heil-
brigðiskerfi í fremstu röð,
menntakerfi sem undirbýr
unga fólkið fyrir lífið, ný-
sköpun sem fjölgar tæki-
færunum og hagsæld sem tryggir mann-
sæmandi kjör eldri borgara.
Kosningabaráttunni lýkur ekki fyrr en
síðasta kjörstað verður lokað í kvöld. Ég
hvet alla Íslendinga til þess að standa
vörð um efnahagsárangurinn og hafna
þeim flokkum, sem vilja setja hann í upp-
nám og óvissu. Valið stendur á milli þess
að taka u-beygju eða halda saman áfram á
réttri leið. Veljum leiðina fram á við.
Stefnum hagsældinni
ekki í óvissu
Eftir Bjarna
Benediktsson
Bjarni Benediktsson
» Við erum á réttri leið og
ef við höldum áfram á
þeirri braut eftir kosningar
eru okkur allir vegir færir.
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.