Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 60
60 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Nýhöfn faste ignasa la ı Borgar túni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s Vesturgata 41 101 Reykjavík Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali Tvær íbúðir Erum með tvær íbúðir til sölu í mikið endurnýjuðu húsi á besta stað Efri hæð og ris: Mjög falleg og mikið endurnýjuð íbúð á tveimur hæðum með 3-4 svefnherb- ergjum, 2 baðherbergjum, 2 stofum og glæsilegum 60 fermetra garðsvölum. Stærð 113,9 fermetrar. Söluverð 62,9 milljónir. Neðri hæð og kjallari: Falleg íbúð með mikilli lofthæð og fallegum sólpalli. Innréttingar og gólfefni eru gömul. Íbúðin er 136,8 fm með 5 svefnherbergjum og þremur stofum. Miklir möguleikar felast í kjallara sem er 130 fermetrar með tveimur sér inngöngum. Mögulegt að útbúa herbergi eða íbúðir. Lofthæð í kjallara er 2,30 til 2,40 metrar. Stærð 270 fermetrar. Söluverð 73,9 milljónir. Allar upplýsingar og myndir eru á fasteignavef mbl.is en þar getur þú fengið söluyfirlit sent samstundis. Síminn okkar er 515 4500 og netfangið nyhofn@nyhofnfasteignir.is Í dag ræðst hverjir móta samfélagið næstu ár á Íslandi. Samfylkingin var stofnuð til að sameina jafnaðarmenn í einum stórum hópi. Sú veg- ferð hefur reynst lengri en vonir stóðu til, en hugsjónir jafn- aðarmanna eru samt sem áður þær sömu. Við í Samfylkingunni höfum lagt okkur fram um að kynna mál okkar með skýrum og kannski stundum dálítið frökkum hætti. Við höfum sagst vilja besta heilbrigðiskerfi í heimi og komið fram með hugmynd um fyrirframgreiddar vaxtabætur upp að 3 milljónum til útborgunar í fyrstu íbúð. Þetta er djarft og sett fram til að ná athygli kjósenda í þeirri von að þeir leggi við hlustir og velti fyrir sér valkostum. Stóra samhengið er hins vegar flóknara og oft erfiðara að koma því til skila með fyrirsögnum. Samfylkingin vill þjóðfélag jöfn- uðar, mannúðar og réttlætis. Aðeins með þessar hugsjónir að leiðarljósi er mögulegt að byggja upp þjóðfélag þar sem ríkir sátt og friður um helstu málefni. Við viljum jafna stöðu fólks, en til þess þarf meðal annars heilbrigðiskerfi sem allir hafa jafnan aðgang að, menntakerfi sem veitir öllum tækifæri til mennt- unar og við viljum að húsnæðismál séu samfélagsverkefni. Þetta eru nokkrar grunnstoðir þjóðfélags jafn- réttis og sáttar. Til þess að ná þessu markmiði verðum við að læra af þeim bestu. Við þurfum að nýta okkur fyrirmyndir frá þeim löndum sem best- um árangri hafa náð í að byggja upp slík þjóð- félög. Við þurfum bæði að læra af þeim bestu og vera í félagi með þeim bestu. Þess vegna var á sínum tíma samið um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, sem skilaði Íslandi langt fram á veg. Af sömu ástæðu þurfum við að halda áfram og klára viðræður við Evrópusam- bandið og leyfa þjóðinni að greiða at- kvæði um aðildarsamning. Það er fagnaðarefni að fleiri fram- boð taki nú undir mörg af helstu bar- áttumálum Samfylkingarinnar. Mál- um sem Samfylkingin hefur barist fyrir árum saman. En okkur er best treystandi til að koma okkar eigin málum í höfn. Þrátt fyrir mótbyr gegn nauðsynlegum umbótum á stjórnarskrá og að tryggja þjóðinni réttlátan arð af auðlindum til lands og sjávar, mun Samfylkingin eins og hingað til leggja allt undir til að tryggja þessum málum framgang. Við verðum að sækja fram því að að- eins þannig komumst við í hóp þeirra bestu, en þar bæði getum við verið og eigum að vera. Lærum af þeim bestu Eftir Loga Einarsson Logi Einarsson » Í dag ræðst hverjir móta samfélagið næstu ár á Íslandi. Höfundur er varaformaður Samfylk- ingarinnar og oddviti í Norðaustur- kjördæmi. Fjölmiðlar og eig- endur virðast geta stjórnað almenningi í útvarpi, sjónvarpi, símaöppum, í tölvu- póstum og á facebook, með einhliða viðhorfi til mála, sem almenn- ingur á erfitt með að afla sér þekkingar um, til þess að greina hvort þarna sé fluttur einhliða áróður eða ekki. Pólitískir einstaklingar í ríkisfjöl- miðlum, jafnvel fyrrverandi kosn- ingastjóri stjórnmálaflokks þar á meðal, ráða fréttum og skera sig ekki frá öðrum fréttaflutningi fjöl- miðla sem eru einnig í flestum fjöl- miðlum, fyrrverandi stjórn- málamenn eða með eigendur sem eiga mikið undir að réttir stjórn- málaflokkar komist að. Engin lög ná til þess hvort eig- endur megi hafa áhrif á umfjöllun miðilsins um tiltekin mál. Sam- keppnisstaða fjölmiðla er einnig skökk, þar sem ríkisfjölmiðlar njóta skylduáskriftar, ríkisstyrks og óhefts aðgangs að auglýsingum, sem þekkist raunar hvergi annars staðar með sama hætti. Í aðdraganda kosninga, stjórna ríkisfjölmiðlar svo umræðu fram- bjóðenda með pólitískri umfjöllun sérfræðinga á undan umræðu og leita jafnvel til skoðanakannana með leiðandi spurningum, sem þeir hafa sett fram til að fá leyfi til að spyrja út frá niðurstöðunni! Frétta- mennirnir stýra síðan umræðunni með ákveðnum spurn- ingum til frambjóð- enda út frá umfjöllun sömu sérfræðinganna aftur og aftur, með skírskotun til skoð- anakannana! Sterkustu fjölmið- arnir fyrir utan rík- isfjölmiðla ákveða síð- an að flokkar, sem ná ekki 5% fylgi í skoð- anakönnunum, fái ekki að tjá sig eða koma fram með sama hætti og aðrir flokkar sem bjóða fram. Eða hvers vegna er þessi 5% þrösk- uldur, sem ógildir hverju sinni 10 til 20 þúsund atkvæði? Ekki er það ákvæði í stjórnarskrá og er siðlaust að sitjandi alþingismenn geti sett lög um þennan þröskuld sem styrki þeirra eigin stöðu. Hvers vegna fá ekki frambjóð- endur flokkanna að koma að því hvernig þessi umræða eigi að fara fram? Hvers vegna fær ekki hver flokkur ákveðinn tíma, t.d. hálftíma, til að setja fram stefnumál sín í sjónvarpi hjá hverjum fjölmiðli með eigin framsetningu? Hvers vegna þarf ríkissjónvarpið að ritskoða eina sjónvarpsefnið, sem flokkur fær að koma fram með í komandi kosningum, sem tekur aðeins fjórar mínútur? Ég get ekki neitað því að mér finnst þessi stjórnun ríkisfjölmiðils á Íslandi minna á stjórnun í einræð- isríkjum sem höfðu það eitt að markmiði að ná fram fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Skoðanakannanir, skoðana- myndun og lögin Með hjálp fjölmiðla erum við leidd áfram að kjörkassanum með vitneskju skoðanakannana um að ekki þýði að kjósa nema þá sem eiga möguleika á að komast að eða möguleika á að bæta við manni. Hér hefði mátt ætla að löggjaf- arvaldið hefði sett leikreglur um svo áhrifamikinn þátt í okkar lýð- ræðisferli. Hefur löggjafarvaldið gert það? Engin lög eru til sérstaklega um skoðanakannanir hvenær þær megi fara fram, t.d. hversu mörgum dög- um fyrir kosningar, hverjir megi setja þær fram, hverjir séu spurðir og eftir hvaða reglum úrtak sé gert, þ.e. eftir hlutfallsfjölda, hver geti átt félagið/stofnunina sem spyr og hver sé ábyrgð þeirra. Einnig hvernig spurningar séu bornar fram, hverjir geti keypt skoð- anakannanir og þá ráðið hvernig spurt er. Skoðanakannanir eru fram- kvæmdar með mismunandi hætti, t.d. er vitað að í mörgum þeirra eru eldri borgarar, 67 ára og eldri, ekki spurðir. Í niðurstöðu síðustu kosn- inga fékk flokkur um 3% fylgi, en hafði verið spáð 1% fylgi í flestum skoðanakönnunum degi fyrir kosn- ingarnar. Enginn fjölmiðill fjallaði um þá skekkju í umfjöllun eftir kosningar, en vitað var að margir, sem ætluðu að kjósa þann flokk, hættu við að kjósa hann, jafnvel frambjóðendur flokksins, því að kjósendur vilja ekki að atkvæði þeirra ónýtist. Skoðanakannanir geta þannig haft afgerandi áhrif á hvað ein- staklingurinn gerir með sinn dýr- mæta rétt í kjörklefanum. Fjölmiðlar og skoðanakann- anir í aðdraganda kosninga Eftir Halldór Gunnarsson » Við förum að kjör- kassanum með vitn- eskju skoðanakannana um að ekki þýði að kjósa nema þá sem eiga möguleika á að komast að eða geta bætt við manni. Halldór Gunnarsson Höfundur er fyrrverandi sóknar- prestur í Holti og varaformaður Flokks fólksins. Píratar bjóðast til að smala saman öllum vinstri villiköttunum sem Jóhanna náði ekki að gera í síðustu vinstristjórn. Best að hafa þetta klárt fyrir kosningar svo kjósa megi um vinstri eða hægri. Aldrei fór það svo að Píratar gætu ekki þvælst fyrir í ein- hverjum málum, en auðveldar það fólki að velja á kjördag? Birgittu Jónsdóttur varð brátt í brók og kom með þá hugmynd korter fyrir kosn- ingar að útiloka samstarf við tvo stærstu lýðræðisflokka á elsta Al- þingi veraldar. Ekki er útséð um hvernig það endar. Mér finnst skrít- ið að maður sem lítur á sig sem stjórnmálaspeking, þ.e. Ólafur Harðarson, skuli telja þetta einhver tíðindi. Þetta er aðeins áróðursbragð af hálfu Pírata að láta sem þeir séu einhver björgun frá spillingu eða annarri óværu. Þeir eiga alveg eftir að sanna sig sem stjórnmálaflokkur. Mér finnst það vera dónaskapur af verstu sort að bjóða hinum flokk- unum að kokgleypa agn sem þeir vita ekki einu sinni sjálfir hvað í rauninni er, en það gerði Oddný Harðardóttir, eins og drukknandi maður grípur hálmstrá- ið, svona rétt fyrir kosningar. Það gæti farið svo að sumir smáu flokkana hyrfu af þingi. Það sem hefur gerst í skoð- anakönnun getur gerst í alvöru og samkvæmt skoðanakönnunum hef- ur því verið spáð að sumir þingmenn muni ekki ná kjöri. Þegar fólk fer að líta á Pírata sem venjulegt fólk þá snarlækka turnar þeirra! Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið hina réttu leið og heldur því áfram. Það er bláköld staðreynd að valið stendur aðeins á milli stjórnarflokk- ana sem nú stýra landinu af glæsi- brag og vinstristjórnar sem þjóðin ætti nú að vera orðin vel upplýst um, þar sem vinstristjórnin á kjör- tímabilinu á undan skildi eftir sig bankahrunið sem var næstum búið að gera þjóðina gjaldþrota. Boðsmiði Pírata Eftir Karl Jóhann Ormsson Karl Jóhann Ormsson » Sjálfstæðisflokkur- inn hefur farið hina réttu leið og heldur því áfram. Höfundur er eldri borgari. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.