Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 62

Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 62
62 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Nú styttist í að lands- menn fái ómetanlegt tækifæri til að kjósa sér nýja ríkisstjórn. Vænt- anlega verða þessar kosningar mjög sögu- legar, alla vega gefa þær kjósendum möguleika á að gera þær það. Í skoðanakönnunum kemur fram mikill vilji fólks til að breyta núver- andi stjórnarháttum og fólk hafnar rótgrónum flokkum. Mikl- ar breytingar eru að verða á fylgi ým- issa stjórnmálaflokka og Sjálfstæð- isflokkurinn og Framsókn missa stöðugt fylgi. Allt stefnir í að Píratar vinni stór- sigur í komandi kosningum. Þeir hafa margfaldað fylgi sitt frá síðustu kosn- ingum og haldið traustu fylgi í langan tíma. Þessar ótrúlegu skoðanakannanir og sviptingar á fylgi í íslenskri pólitík segja manni að kjósendur vilji breyt- ingar og að þeir vilji sjá aðra og nýja flokka í meirihluta. En mun þetta fylgi í könnunum skila sér á kjörstað? Sjálfur hefur undirrit- aður nokkrar áhyggjur af kosningaþátttöku fólks í þessum alþing- iskosningum, sér- staklega þátttöku yngra fólksins. Kosningaþátt- taka hefur dalað síðan 1991, en þá var hún 87,6% og þótt hún sé enn ein sú mesta í Evrópu var hún 6% minni í kosn- ingum 2013 eða 81,5%. Einnig er þátttaka fólks undir þrí- tugu áhyggjuefni. Í síðustu sveit- arstjórnarkosningum, 2014, mættu einungis tæp 50% kjósenda undir þrí- tugu á kjörstað. Í rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem var gerð eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar, kemur fram að helstu ástæður þess að ungt fólk kjósi ekki, er að það „nenni ekki að kjósa“. Það er verulegt áhyggjuefni að ungt fólk hafi svo lítinn áhuga á kosningum að það hreinlega „nenni ekki að kjósa“. Auðvitað er einnig kosið um málefni Látum spárnar rætast Eftir Eirík Þór Theodórsson » Það er áhyggjuefniað ungt fólk hafi lít- inn áhuga á kosningum. Eiríkur Þór Theodórsson Höfundur er frambjóðandi í 3. sæti Pírata í Norðvesturkjördæmi. ungs fólks í þessum kosningum og sú stefna sem verður tekin á þingi hefur gríðarleg áhrif á stöðu ungs fólks til framtíðar. Við þurfum að endurbyggja traust almennings á Alþingi og störfum þess og undirritaður telur að aukið traust muni nást með nýju fólki, nýjum hugs- unarhætti og gagnsærri stjórnsýslu. Undirritaður vonar að störf Pírata og nýjar hugmyndir er varða unga fólkið hafi aukið áhuga og þátttöku ungs fólks í stjórnmálum og óhjá- kvæmilega muni það leiða til þess að fleiri „nenni að kjósa“. Undirritaður hvetur ungt fólk til að nýta sér rétt sinn og mæta til at- kvæðagreiðslu utan kjörfundar ef fólk hefur ekki tök á að mæta á kjörstað næsta laugardag. Nú er nefnilega komin ný ástæða til að nýta kosninga- réttinn og hafa áhrif á framtíðina með því að velja P fyrir Pírata. Það er stundum erf- itt að vega og meta samstarfsmenn. Þó eru nokkrir menn og nokkrar konur sem ég hef unnið með og notið einstakrar návistar og samstarfs. Þar er mér ofarlega í huga sam- starfsfólk mitt í Út- vegsbankanum í Vest- manneyjum og Háskóla Íslands. Það er einn alþingismaður sem stendur þeim jafnfætis. Það er Birg- ir Ármannsson. Aldursmunur er nokkur með okkur og stundum skoð- anamunur. Birgir er um margt sér- stakur maður og hann kann ég að meta vegna þekkingar hans og eðl- iseiginleika. Hann hefur yf- irburðaþekkingu meðal alþing- ismanna á stjórnsýslu og utanríkismálum. Það tekur mig sárt að sjá að samkvæmt skoðanakönnunum veg- ur Birgir salt, inni eða úti af Alþingi. Fjarvera Birgis er meira en Alþingi hefur efni til. Ég bið Reykvíkinga að hugleiða vel hvort Alþingi hefur efni til að fara á mis við hæfileika Birgis Ár- mannssonar. Styðjum góða kosningu Sjálfstæð- isflokksins og Birgis Ármannssonar í Reykjavík. Til stuðnings Birgi Ármannssyni Eftir Vilhjálm Bjarnason Vilhjálmur Bjarnason » Það tekur mig sárt að sjá að sam- kvæmt skoð- anakönnunum vegur Birgir salt, inni eða úti af Alþingi. Höfundur er alþingismaður. Mikið eru vinnu- brögð RÚV ógeðfelld. Nú skal rétt fyrir kosn- ingar hamrað á Davíð Oddssyni, Geir H. Haarde og seðlabanka, enda Björn Valur hjá VG fljótur að tjá sig um rannsókn og skýrslu – en hvað um höfðingj- ann Steingrím J. og lafði Jóhönnu Sig.? Þar má ekki hrófla við neinu, enda hundr- að ára leynd. Meira að segja stjórn- málafræðingurinn Stefanía Ósk- arsdóttir og stjórnsýslufræðingurinn Sigurbjörg voru fljótar að setja út á skýrslu Vigdísar Hauks um málefni þeirra Steingríms og Jóhönnu – ekki marktæk skýrsla því hún var illa orð- uð og rituð, sögðu þessar vitru konur. Já, það er gott að mennta sig, en hafa síðan ekki vit til að vera menntaður. Hvað skyldi vera kennt í Háskól- anum? Að öðru, söngur frambjóðenda flokkanna er bæði falskur og leið- inlegur. Lítið um stjórnmál, bara lof- orð um að eyða fjármunum okkar. Ekkert um atvinnumál að finna né um aukningu starfa sem mundu skapa verðmæti. Það er búið að gera Alþingi að sveitarstjórnarskrifstofu þar sem rifist er um hverjum skuli af- hent fé okkar til stuðnings í lífinu. Björt Ólafs bullar um hrútskýringar og sveitta karlmenn á þinginu, en veistu Björt, ég vil þá frekar heldur en að hlusta og horfa á frekju- og hormónaköst þín, þú ert langt frá því að vera málefnaleg. Alþingi er orðið bullstaður, enda sést það á framboð- unum, allir telja sig geta stýrt landi og þjóð. Ekkert ykkar hefur minnst á íslensku þjóð- ina, það er ellilífeyr- isþegar séu 40 þúsund, brottfluttir um 20 þúsund, öryrkjar um 20 þús- und, hvað hafa margir látist á árinu, hversu stór hópur er börn og ung- lingar? Hversu margar vinnandi hendur skapa verðmæti, hversu margir eru á ævilaunum og lista- mannalaunum? Hvar ætlið þið að fá alla þá fjármuni í allt það sem þið haf- ið lofað? Séu útgjöld sveitarfélaga 70% launagreiðslur, hversu mörg prósent greiðir ríkið í allt sitt bákn og laun? Þið jarmið öll um heilbrigð- isþjónustuna, en hversu vel er farið með fé í þeim geira? Biðlaun til fyrr- verandi framkvæmdastjóra 67,7 mill- ur – já, Kári Stefánsson, viltu ekki rannsaka hvernig fjármunum er var- ið í þessum geira, áður en þú geltir meira? Inn til landsins eruð þið, og ætlið að taka á móti 250 til 500 manns á ári auk hælisleitenda. Ekkert er hugsað til framtíðar. Hver er fjölgun okkar Íslendinga á ári, hvað fæðast hér mörg börn á fjölskyldu, e.t.v. rúm- lega tvö að meðaltali, en þið eruð að flytja inn fólk sem lifir ekki eftir vest- rænum gildum og þar tíðkast stór- fjölskyldan, mörg börn, afar og ömm- ur, því stærri fjölskylda því betra. En það er ykkar val að afhenda þetta land til annarra en ykkar afkomenda. Ykkur er sjálfsagt sama þó að börn ykkar og barnabörn lúti í framtíðinni andlega sterkara fólki. Ykkar er val- ið. Og í lokin, hvar ætlið þið að fá fé í allt það sem þið lofið og til handa þessu fólki sem þið viljið fá til lands- ins, þar sem þið, Píratar, VG, Sam- fylking og Björt framtíð, eigið eftir að eyðileggja sjávarútveg, landbúnað og allt það sem mín kynslóð byggði hér upp? Sé ekki hvar þið ætlið að taka það, nema auðvitað að skatt- leggja okkur Íslendinga, miklum mun meira en þegar er. Það eru ein- kennileg stjórnvöld sem það vilja. Ferðamannastraumur til landsins verður ekki eilífur. Þegar þið, vinstra liðið, hafið klúðrað hér málum munið þið auðvitað kenna Framsókn og Sjálfstæðisflokknum um ófarirnar og þjóðin mun eina ferðina enn trúa því. Falskur söngur og loforð Eftir Stefaníu Jónasdóttur » Söngur frambjóð- enda flokkanna er falskur og leiðinlegur. Stefanía Jónasdóttir Höfundur býr á Sauðárkróki. Margir muna vafa- laust þegar Jón Baldvin Hannibalsson var utan- ríkisráðherra frá 1988 til 1995 Hann hamaðist eins og naut í flagi við að reyna að koma Ís- landi inn í ESB, en varð ekki ágengt en þó var stofnað Evrópska efna- hagssvæðið sem eins- konar málamiðlun. Eft- ir það riðlaðist vinstri vængur stjórnmálanna: Alþýðuflokkurinn lognaðist útaf, sömuleiðis Alþýðu- bandalagið. Kvennalistinn sá að tveir til þrír þingmenn gætu ekki haft mikil áhrif, hætti hann því störfum. Við kosningarnar 1995 vann Framsókn- arflokkurinn stórsigur og fór þá í hönd eitt mesta velmegunarskeið sög- unnar, sem aðeins verð- ur líkt við ástandið í dag. Ísland komið í hóp þriggja ríkustu landa í heiminum að mati al- þjóðlegra stofnana. Við þessar aðstæður var Samfylkingin stofnuð. Yfirlýst markmið henn- ar var að sameina alla vinstrimenn í einum flokki (rétt enn einu sinni). En það markmið sem ekki var yfirlýst, en kom í ljós smátt og smátt var að koma Íslandi inn í ESB, en þar sem það hafði mistekist að gera það eftir venjulegum pólítiskum leiðum varð að finna aðra aðferð í þetta sinn Hún fannst með því að kíkja á Svía. Þar voru sett lög sem auðsjáanlega mundu valda hruni efna- hagskerfisins, fólkið yrði uggandi, áróðursvélin mundi segja fólki að það væri allt kapitalismanum að kenna og eina ráðið væri að fela sig í tryggum faðmi Evrópusambandsins. Þetta gekk allt eftir svo undarlegt sem það var því Svíar voru alltaf mjög sjálf- stæðir, ekki með í neinum al- þjóðastofnunum, ekki í Nató og ekki einu sinni í Sameinuðu þjóðunum né stofnunum þeirra. Lögin sem hér um ræðir fólu í sér að fyrirtæki voru skylduð til að falla frá eignarréttinum smátt og smátt í hendur starfsfólks- ins. Afnám eignarréttar á fyrir- tækjum, og ekki síður almennt, er svo alvarlegt mál að mannsmorð gæti ver- ið réttlætanlegt (Olof Palme). Kratar fóru nú galvaskir af stað að gera ráð- stafanir, sem leiða mundu til hruns efnahagskerfisins og fengu fljótlega ýmsa áhrifamikla menn í lið með sér, t.d. stjórnendur viðskiptabankanna og háttsetta menn í Samtökum iðnaðar og verslunar og jafnvel hagfræðingar Seðlabankans virðast hafa hjálpað til eins og ákvarðanir um stýrivexti og ýms önnur peningamál benda til. Hrunið varð jafnvel fyrr en varði. En það varð ekki af innlendum orsökum heldur vegna gjaldþrots Lehmann- banka sem síðan dró Glitni með sér niður í svaðið. Hinir tveir, Landsbank- inn og KB banki, hefðu auðsjáanlega staðið ef Bretar hefðu ekki rænt þeim. Íslenski Seðlabankinn og líka sá sænski höfðu lagt fram fé til að tryggja stöðu KB-banka. Landsbank- inn var stöndugur og hefði ekki fallið ef Bretar hefðu ekki rænt honum. Það sést á því t.d. að strax árið 2014 var hann búinn að fullnægja öllum kröfum og á samt peninga afgangs. Spyrja verður: Hver var þáttur krata í allri þessari hegðun Gordons Brown og fé- laga? Þeir eru jú líka kratar. Hvernig datt nokkrum manni í hug að gera kröfu um að íslenska ríkið borgaði þessa kröfu, sem allir vissu að ekki byggðist á lögum, hvorki breskum, ís- lenskum né ESB-lögum? Var Jó- hönnu svona mikið í mun að binda Ís- land á áratuga skuldaklafa, innleiða nógu mikla fátækt í landinu svo að við yrðum að vera einskonar hreppsó- magi á ESB um ófyrirsjáanlega fram- tíð; og fengu sjálfa bresku stjórnina til að taka þátt í að blekkja Íslendinga til að samþykkja aðild. Þegar Alþingi hafði gerst svo hneykslanlegt að sam- þykkja aðildarumsókn með skil- yrðum, sem allir vissu að ekki yrði gengið að, og stækkunarstjórinn hneykslaði alla með því að taka við skilyrtri umsókn, það kostaði raunar mikið, erfitt og flókið samningaþóf á bak við tjöldin að fá hann til að taka þátt í blekkingarleiknum, samkvæmt syndaregistri Árna Páls Árnasonar frá í vor, og taka við þessari umsókn, sem ekki er nein umsókn í raun, og kalla viðræðurnar, sem á eftir fóru „samningaviðræður“ þegar ekkert er umsemjanlegt, enda vildi fram- kvæmdastjórnin sjálf ekki vera með í þessum leik og leiðrétti það ítrekað að um samningviðræður væri að ræða Skilyrðin eru þau að sjávarútvegur og landbúnaður skyldu ekki vera um- semjanleg, þau mál eru ekki með í umsókninni og því hefði viðræðu- nefndin ekki haft leyfi til að fjalla um þau á neinn hátt á þeim vettvangi. Þannig standa málin enn, svo það er grundvallarmisskilningur hjá þeim flokkum sem vilja endurvekja viðræð- urnar þar sem frá var horfið. Það er ekki hægt nema Alþingi samþykki og yrði þá væntanlega að samþykkja nýja umsókn. En það er fleira hneykslanlegt í sambandi við þetta ESB-mál. T.d. hegðun Vinstri grænna á þingi, þar sem margir þeirra lýstu andstöðu við umsóknina, raunar í samræmi við þeirra fyrri yfirlýsingar og bjargfasta stefnu, en sögðu samt „já“. Hafi Sam- fylkingin verið stofnuð til að koma Ís- landi inn í ESB þá var flokkur Vinstri grænna stofnaður til að koma í veg fyrir slíka ákvörðun. En forysta flokksins sveik það allt á einni nóttu svo það er eitt hneykslið enn og ekki síður að fleiri og fleiri virðast vilja kjósa þennan svikaraflokk í næstu kosningum. Hneyksli Eftir Pétur Guðvarðsson Pétur Guðvarðsson »Hvernig datt nokkr- um í hug að gera kröfu um að ríkið borg- aði þessa kröfu? Höfundur er fv. bóndi og áhugamaður um stjórnmál. Kona í loftbelg villtist af leið. Hún lækkaði flugið og sá mann einn á jörðu niðri. Hún lækkaði sig enn meira og kallaði á manninn. „Afsakið, en getur þú hjálpað mér? Ég átti stefnumót við vinkonu mína fyrir klukkutíma en ég veit ekki hvar ég er stödd!“ Maðurinn svaraði: „Þú ert í rauð- um loftbelg í ca. 30 feta hæð yfir jörðu á 64º 09́ 117“ norðlægrar breiddargráðu og 21º 57́ 144“ vest- lægrar lengdargráðu.“ „Þú hlýtur að vera tæknimaður.“ sagði konan. „Já, það er ég,“ svaraði maðurinn, „en hvernig vissir þú það?“ „Tja,“ sagði konan, „allt sem þú hefur sagt, er tæknilega rétt en ég hef ekki hugmynd um það hvernig ég á að nota upplýsingarnar. Stað- reyndin er að ég veit ekki enn hvar ég er, og það eina sem ég hef fengið út úr samtali okkar er að mér hefur seinkað enn meira.“ Maðurinn á jörðinni svaraði um hæl: „Þú hlýtur að vera Sam- fylkingarkona.“ „Það er ég,“ svaraði konan, „en hvernig vissir þú það?“ „Það er svo sem einfalt. Þú veist ekki hvar þú ert stödd, þú veist ekki hvert þú stefnir. Þú kemst ferðar þinnar á loftinu einu, þú ert búin að gefa loforð, sem þú ert ekki fær um að efna, og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þitt vandamál. Staðreyndin er að þú ert í sömu sporum og þú varst áður en þú hittir mig en allt í einu er það mér að kenna!“ Ólafur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Kona í loftbelg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.