Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 64

Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 64
VELLÍÐANí vetur Jólablað Morgunblaðisins kemur út fimmtudaginn 19. nóvember Fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 12 mánudaginn 16. nóvember. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Jólablað Morgunblaðsins kemur út fimmtudaginn 1. desember Fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 28. n vember.NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Við vinnum að sölu á eftirtöldum fyrirtækjum: • Verslun með alþjóðlegt vörumerki, fatnaður fyrir konur og karla. Mjög góður hagnaður. • Sérverslun í Kringlunni. • Sérhæft matvinnslufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Framleiðsla matvæla í háum gæðaflokki. Góður hagnaður. • Tískuvöruverslun fyrir konur í Reykjavík, hefur gengið vel í áratugi. • Gistiheimili í 101 Reykjavík, góður hagnaður og möguleiki á auknum umsvifum og hostel rekstri. • Topp veitingastaður í 101 Reykjavík. Velta um 400 milljónir. • Innflutningsfyrirtæki með vín, kaffi og heilsudrykki. • Heildverslun með sælgæti. • Sérhæfð bílaleiga. Við erum með kaupendur og fjárfesta að ýmsum gerðum fyrirtækja, við hvetjum fyrirtækjaeigendur sem eru í söluhugleiðingum til að hafa samband. Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Abaco Heilsulind hefur verið starf- andi síðan árið 1999 og býður Ak- ureyringum – og gestum bæjarins – upp á margvíslegar leiðir að vellíð- an og dekri. Þar á bæ kvíðir enginn vetrinum nema síður sé því fátt er notalegra en að safna kröftum og láta sér líða vel, ekki síst að vetri til, eins og eigandinn, Kristín Hild- ur Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og snyrtifræðimeistari, segir frá. „Við erum ein stærsta og best búna nudd- og snyrtistofan á Ak- ureyri, og þó víðar væri leitað,“ seg- ir Kristín, en starfseminni má skipta niður í snyrtistofu, nuddstofu og baðstofu, sem er hjarta stof- unnar, ásamt því að hægt er að fara í ljós. „Baðstofan er 80 fermetrar að stærð og hún er okkar aðal, ef svo má segja enda er þar að finna 12 manna heitan pott, sófasett, gufu- bað og svo er útgengt á pall utan- dyra sem er mikið notaður hjá okk- ur,“ segir Kristín um stofuna. „Í baðstofunni tökum við á móti ein- staklingum, pörum og hópum í alla- vega dekur. Við bjóðum upp á herðanudd í heita pottinum, og svo erum við með nokkuð sem ég held að við séum ein með á landinu en það er kaldsteinanudd í pottinum.“ Ekki verður hjá því komist að spyrja Kristínu nánar út í málið. „Þá nuddum við herðar, bringu og andlit með köldum steinum auk þess að vera með hefðbundið nudd. Þetta er í senn notaleg og skemmti- leg upplifun og fólk kemur aftur og aftur og er mjög hrifið af þessu,“ bætir Kristín við. Hún útskýrir að kaldir steinar nái dýpra inn í vöðv- ana og þegar nuddað sé með köld- um og heitum steinum til skiptis, ekki ósvipað því þegar íþróttafólk er í meðferðum við bólgum með heitu vatni og ísvatni á víxl. „Þetta hefur áhrif á blóðrásina því æðarn- ar eru að dragast saman og þenjast út á víxl og það hefur afar góð áhrif á blóðflæðið til bólginna vöðva. Með köldu steinunum náum við að vinna á bólgum hjá fólki sem er í heita pottinum, jafnvel þó um stutt nudd sé að ræða. Svo er bara svo ósköp Slegist um tímana um helgar  Abaco Heilsulind á Akureyri býður vetrinum byrginn  Meðal meðferða í boði eru kaldsteinanudd og demantahúðslípun  Nudd með köldum steinum með likamann ofan í heitum potti þykir ákaflega þægilegt Vellíðan Fyrir hópa og pör er góður kostur að byrja dekrið í pottinum og þá sakar ekki að fá sér einn kaldan eða kælt hvítvín til hressingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.