Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 66
VELLÍÐAN í vetur66 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þegar úti er myrkur og kuldi, og allur þungi og streita vetrarins hellist yfir sál og líkama Frónbúans, er gott að geta fundið athvarf á ró- legum og hlýjum stað þar sem stjanað er við kroppinn og andlega hliðin nærð. Heilsa & Spa (www.heilsa- ogspa.is) er ný heilsu- og vellíð- unarstöð í Ármúla 9, á sama stað og skemmtistaðurinn Broadway var áður til húsa. „Rýmið er allt ný- uppgert og fallegt, og við leggjum áherslu á endurnærandi andrúms- loft og persónulega þjónustu, auk þverfaglegrar samvinnu við önnur heilbrigðisfyrirtæki í húsinu, s.s. Klíníkina, Sinnum, Gáska sjúkra- þjálfun, Karitas og Hótel Ísland,“ segir Gígja Þórðardóttir, sjúkra- þjálfari og framkvæmdastjóri Heilsu & Spa. „Við bjóðum upp á fyrsta flokks spa-aðstöðu, með heitum og köldum potti, lítilli flot- og æfingalaug og sánu. Svo erum við með ýmis heilsu- námskeið, s.s. hefðbundna heilsu- rækt og jóga, og námskeið til að efla stoðkerfið,“ telur Gígja upp. „Hér eru vönduð heilsuræktartæki og fimm sjúkraþjálfarar frá Gáska sem eru hver öðrum frábærari. Einnig er í boði nudd af ýmsum toga, nála- stungur og sogskálameðferð – sog- blettirnir halda því áfram á Broad- way þó aðþeir séu í öðru formi,“ bætir Gígja við og hlær. Endurnæra líkama og sál Íslendingar virðast hafa lært að temja sér að hugsa vel um líkama og sál. „Við höfum séð það gerast að vaxandi áhugi er á því sem kalla má „mýkri heilsurækt“, og algengt að Íslendingar stundi það að fara reglulega í hugleiðslu, nudd og dek- ur. Er það ekki bara til þess gert að vinna á alls kyns kvillum heldur til að endurnæra líkamann, draga úr streitu og auka almenna vellíðan.“ Hjá Heilsu & Spa er meðal ann- ars boðið upp á paranudd. Gígja segir geta verið eftirminnilega upp- lifun fyrir pör að fara í nudd saman. „Þetta er mikil gæðastund fyrri parið og við leggjum okkur fram við að skapa fallega stemningu með kertum og ljúfri tónlist. Nudd- ararnir tveir samræma hjá sér nuddið sem fer fram í sama her- berginu, hlið við hlið. Vinsældir par- anudds hafa verið að aukast hjá okkur, og þykir meðal annars kjörin gjöf að gefa ef gera á vel við mak- ann og sjálfan sig í leiðinni,“ segir Gígja og bætir við að hægt sé að óska aukalega eftir léttum veit- ingum á borð við freyðivín og osta- bakka. Í góðra vina hópi Að sögn Gígju er líka vinsælt hjá alls kyns hópum að verja huggu- legum parti úr degi í heilsulindinni. „Þetta eru t.d. vinahópar og vinnu- staðahópar og getum við klæðske- rasniðið pakka handa hverjum og einum. Algengt er að byrja á jóga- eða zúmba-tíma og fara síðan í heita pottinn og sánu þar sem nuddari gengur á milli og veitir herða- eða fótanudd á meðan málin eru rædd og laufléttar veitingar smakkaðar, áður en farið er í mat á Bistróinu á Hótel Íslandi. Það gefur okkur sér- stöðu á markaðinum að hópar geta komið utan þess tíma sem opið er og er þá enginn annar en viðkom- andi hópur á staðnum.“ Í sumar var opnuð hjá Heilsu & Spa snyrtistofan Fegurð & Spa, sem Heiðdís Steinsen snyrtimeistari stýrir. „Þar er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, s.s. andlits- meðferðir, hand- og fótsnyrtingu, litun, plokkun og vax, fyrir bæði karla og konur,“ segir Gígja og læt- ur fljóta með að karlar sjást æ oftar á snyrtistofunni. Núllstilling á snyrtistofunni „Við erum öll að hamast eins og hamstrar alla daga, og getur verið núllstillandi og endurnærandi að heimsækja snyrtifræðinginn reglu- lega, gera vel við sig, kúpla sig út úr hversdagsamstrinu og koma svo aft- ur út í lífið með nýtt andlit, fagra fingur eða glóandi húð.“ Karlarnir komast oft á bragðið þegar þeir fá snyrtimeðferð að gjöf. Segir Gígja vinsælast meðal karl- mannanna að fá nudd, handsnyrt- ingu og andlitsbað. „Eftir að hafa prófað í eitt skipti hika þeir ekki við að koma aftur. Það getur verið svo- lítill nautnaseggur í körlunum. Þeir vita hvað þeir vilja og eru ekki feimnir að láta það eftir sér.“ Dekur til að komast í gegnum veturinn  Þökk sé sogskálameðferðinni eru sogblettirnir ekki úr sögunni á Broadway  Þar sem skemmtistaðurinn var áður er núna vel útbúin, fallega innréttuð og notaleg heilsulind Morgunblaðið/Ófeigur Nautnaseggir Gígja segir karlmenn fljóta að temja sér að láta dekra við sig og snyrta, eftir að hafa prófað einu sinni. Getur gjafakort í nudd, fótsnyrtingu eða andlitsmeðferð verið allt sem þarf til að þeir komist á bragðið. Ylur Hjartað í heilsulindinni er litla laugin. Þar er einstök lýsing. Fegurð Með snyrt andlit og slétta húð verður dagsins amstur léttara. Hnoðað Þegar vöðvahnútarnir hafa safnast upp er nudd himnasending.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.