Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 68

Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 68
68 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 27 ár Kompu- dagar Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 um helgina ungamaski Bláa Lónsins frábær kostur. Maskinn byggist á þörungum Bláa Lónsins, en rannsóknir sýna að þeir auka nýmyndun kollagens í húð- inni og veita henni fallegt yfirbragð,“ bætir Magnea við. Vellíðan í jarðsjó Bláa Lónsins Spa meðferðir og nudd í Bláa Lón- inu eru að sögn Magneu einstök upp- lifun enda ekki hvar sem er hægt að fá nudd meðan líkaminn flýtur, nán- ast eins og í þyngdarleysi. „Meðferðirnar fara fram utandyra í lóninu sjálfu,“ útskýrir Magnea. „Slökunarnudd er í boði auk sér- hæfðra endurnærandi líkams- meðferða sem byggjast á húðvörum Bláa Lónsins. Þar bjóðum við upp á heilnudd, skrúbb til að endurnýja húðina og vafning til að næra hana. Endurnærandi líkamsmeðferð af þessu tagi tekur um tvær klukku- stundir. Meðferðin er bókstaflega dekur fyrir allan líkamann, sem veitir orku og næringu.“ Magnea bætir því við að fyrir þá sem vilja taka með sér svolítið af lón- inu heim þá sé hægt að koma við í versluninni á leiðinni út og grípa með sér einhverja af hinum fjölmörgu Blue Lagoon húðvörum sem þar eru seldar og byggjast á virkum efnum jarðsjávarins, kísil og þörungum. Stoppað í mat – og gistingu En dekur í Bláa Lóninu er ekki skilgreint eingöngu sem slökun í lón- inu, nudd eða húðmeðferðir. „Heimsókn á Lava, veitingastað Bláa Lónsins, er sannkallað dekur fyrir bragðlaukana,“ segir Magnea. „Áhersla er á ferskt íslenskt hráefni Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is „Í okkar huga er Bláa Lónið birting- armynd dekurs og vellíðunar,“ segir Magnea Guðmundsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Bláa Lónsins. „Heimsókn í Bláa Lónið er til- valin til að njóta augnabliksins og gleyma um leið amstri dagsins í þægilegu og fal- legu umhverfi. Upplifunin er ein- stök hvort sem um er að ræða heimsókn að sumri eða að vetri.“ Breitt val um sérsniðna pakka Bláa Lónið er heimur af dekri, eins og Magnea orðar það, þar sem hver og einn gestur getur sett saman sína heimsókn algerlega eftir eigin höfði með því að velja þann pakka sem hentar best. „Gestir okkar hafa val um sér- sniðna pakka sem innifela mismikla þjónustu, allt frá grunnaðgangi í Lón- ið sjálft til Betri stofunnar þar sem gestir hafa aðgang að rúmgóðum einkaklefum og notalegri arinstofu,“ útskýrir Magnea. „En Lónið sjálft er þó alltaf eftir sem áður hápunktur heimsóknarinnar.“ Það eru orð að sönnu enda er jarð- sjórinn í Bláa Lóninu löngu þekktur fyrir lækningamátt og góð áhrif á húðina. Þar er óhætt að segja að kísill Bláa Lónsins sé í lykilhlutverki, rann- sóknir sýna að hann hreinsar ysta lag húðarinnar og dregur fram ljóma hennar, eins og Magnea bendir á. „Gestir fá kísilinn afhentan á Skin Care Bar sem staðsettur er í lóninu sjálfu og er það liður í persónulegri og góðri þjónustu sem við leggjum metnað okkar í. Fyrir þá sem vilja dekra enn meira við húðina er þör- og fiskur nýtur mikilla vinsælda á matseðlinum. Við leggjum höf- uðáherslu á ferskt hráefni og fáum daglega ferskan fisk frá Grindavík.“ Fyrir þá sem vilja létta rétti og hafa hugsanlega lítinn tíma bendir Magnea á að tilvalið sé að koma við í Blue Cafe Bláa Lónsins. „Þar má finna úrval léttra rétta á borð við sushi, lax, samlokur og boost. Þess má líka geta að allur matur í Blue Cafe er gerður í eldhúsi Bláa Lóns- ins. Þannig tryggjum við ferskleika og fyrsta flokks matreiðslu.“ Ef gestir Bláa Lónsins geta ómögulega slitið sig frá svæðinu og vilja hlaða batteríin yfir nótt er skammt að leita gistingar. „Silica Hótel Bláa Lónsins er einstakur kost- ur fyrir þá sem vilja dvelja í umhverfi Bláa Lónsins en hótelið er í fimm mínútna göngufæri frá lóninu sjálfu,“ útskýrir Magnea. „Þar eru 35 fallega hönnuð herbergi og gestir hótelsins hafa aðgang að einkalóni við hótelið þar sem hægt er að láta líða úr sér í rólegheitum.“ Að endingu bendir Magnea á að þó lónið sjálft, heilnæmir eiginleikar jarðsjávarins og hin einstaka nátt- úrulega upplifun sem staðurinn bjóði upp á séu í grunninn ávallt hin sömu, þá sé stöðugt leitast við að auka og bæta upplifun gestanna. „Sem dæmi um þetta nefni ég til dæmis að í upphafi þessa árs var Bláa Lónið endurhannað og stækkað úr rúmlega 5000 fermetrum í tæplega 9000 fermetra. Markmið breyting- anna var að auka enn frekar á upp- lifun gesta Bláa Lónsins. Upplifun gesta okkar er það sem skiptir mestu máli.“ Heimur af dekri, að sumri sem vetri  Sífellt fleiri val- kostir um vellíðan eru í boði hjá Bláa Lóninu  Nudd og slökunarmeðferðir, hótelgisting og veit- ingastaður auk lóns- ins sjálfs. Lónið „Í okkar huga er Bláa Lónið birtingarmynd dekurs og vellíðunar. „Upplifunin er einstök hvort sem um er að ræða heimsókn að sumri eða að vetri.“ Kyrrð Það jafnast fátt á við það að vakna endurnærður á Silica hóteli. Slökun Slökunarnudd á fljótandi dýnu í Bláa Lóninu er einstakt dekur. Magnea Guðmundsdóttir Náttúran Silica hótel við Bláa Lónið er í hrauninu, steinsnar frá lóninu sjálfu. Þar á milli er um fimm mínútna gangur með hraunið allt í kring. VELLÍÐAN í vetur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.