Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 76

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 76
76 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Elsku afi Tómas, ég veit um fátt betra en að koma í hólinn til ykkar ömmu. Trúi því ekki að þú sért farinn frá okkur. Það verður ekki eins án þín og knúsanna þinna. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp liðnar stundir, man ég alltaf eftir þér brosandi. Alltaf er ég kom í heimsókn og vildi gera einhvað þá varstu alltaf til í tusk- ið, hvort sem það var að fara á hestbak, kíkja á rollurnar eða bara borða góðmetið hennar ömmu. Ég man líka vel eftir því þegar ég fékk ávallt að gista hjá ykkur ömmu, og í flest skiptin fékk ég að kúra upp í hjá ykkur. Þar leið mér best og það var hið minnsta mál. Seinast þegar ég hitti þig var það deginum áður en ég flaug út, þá hentum við í eitt olsen olsen upp og niður-spil eins og svo oft áður og að sjálfsögðu vannst þú mig í öll skiptin. Það er mér líka sérstaklega minnisstætt hversu stoltur þú varst af því að ég erfði þitt fallega nef. Kónganef eins og við köllum það. Brosandi minntir þú mig oft og mörgum sinnum á það. Við erum ekki mörg með þetta nef og ég gæti ekki verið stoltari af því sjálf, því ég hef það frá þér. Ég get talið upp ótal margar minningar og allar eru þær ynd- islegar. Ég er þakklát fyrir þig og tímann sem við fengum saman. Ég veit ekki hvar ég væri án þín, þú gerðir mig að betri mann- eskju. Tómas Steindórsson ✝ Tómas Stein-dórsson fædd- ist 22. desember 1932. Hann lést 23. september 2016. Útför Tómasar fór fram 6. október 2016. Ég elska þig ávallt og sakna mikið, elsku afi, sjáumst síðar. Litla afastelpan þín, Karitas Tómasdóttir. Elsku afi minn, það er skrítið að koma í Hamrahólinn og fá ekki knús frá þér. Minningarnar ylja mér um hjartarætur og það er gaman að hugsa til baka og rifja upp gamla tíma. Þú varst svo ánægður og stolt- ur af litlu afa-hestastelpunni þinni og það gladdi þig mikið að einn sona minna hefði erft hesta- bakteríuna. Man svo vel hvað ég var montin þegar við riðum út saman, ég á Þengli og þú á Völ- ustakk og að sjálfsögðu á yfir- ferðartölti. Þú dásamaðir hestinn minn, hvað hann væri flottur og kæmist hratt á töltinu, það þótti mér gaman. Það voru líka ófá skiptin sem ég fékk að gista hjá ykkur ömmu þegar ég var lítil. Þið sögðuð æv- inlega já ef ég bað um að gista og alltaf mátti ég skríða upp í til ykkar ef ég vaknaði um miðja nótt. Auðvitað tróð ég mér á milli í hlýjuna og öryggið. Það er mér líka minnisstætt þegar ég fór með þér að Ásmund- arstöðum í vinnuna, mér þótti það mjög spennandi og ávallt varst þú tilbúinn til þess að leyfa mér að fara með og hjálpa þér. Minningarnar eru ótal margar og allar góðar, ég er þakklát fyrir þær allar og tímann okkar sam- an, þú kenndir mér svo margt og fyrir vikið er ég betri manneskja. Ég sakna þín, elsku afi, sjáumst seinna. Þín afastelpa Eydís Hrönn Tómasdóttir. Við fráfall Vikt- ors Ægissonar rifj- ast upp hlýjar minn- ingar. Kynni okkar við Viktor og fjölskyldu hans hófust 1979, þegar við fluttumst í Mark- land 6, þar sem þau bjuggu fyrir. Þarna kynntumst við einstökum hagleiksmanni, völundi, svo af bar. Börnin okkar náðu vel saman og áttu góðar stundir í rólegu og öruggu umhverfi Fossvogsdals- ins góða. Viktor var mikill fjölskyldu- maður og gætti hags síns fólks í Viktor Ægisson ✝ Viktor Ægis-son fæddist 24. febrúar 1948. Hann lést 2. október 2016. Útför hans fór fram 13. októ- ber 2016. hvívetna. Hann var greiðvikinn og fyrir það skal þakka hér. Viktor var skoð- anafastur og rétt- sýnn, ófeiminn í orð- ræðu, þegar svo bar við. Við þökkum góð kynni og vináttu. Við sendum Guð- rúnu, börnum og fjölskyldum okkar dýpstu samúðarkveðjur. „Já, öldur mínar munu aftur falla að ströndinni, og þó að dauðinn skilji okkur að og ég sé grafinn hinni miklu þögn, mun ég samt leita skilnings ykkar. Og ég mun ekki leita án árangurs.“ (K. Gibran) Góða ferð að ströndinni miklu. Minning um góðan mann lifir. Helga, Páll og fjölskylda. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrar- kirkju syngja. Organisti er Sólveig Anna Aradóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson. AKURINN kristið samfélag | Kvöld- vaka í Núpalind 1, laugardagskvöldið 29. okt. kl. 20. Samkoma á sunnudag, 30. okt. kl. 14. ÁRBÆJARKIRKJA | Léttmessa sunnudaginn 30. október. Gospelkór Árbæjarkirkju undir stjórn Helgu Vil- borgar Sigurjónsdóttur leiðir söng. Sr. Þór Hauksson flytur hugleiðingu. Kirkjuþjónar lesa ritningarlestra. Sunnudagsskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Bryndísar Evu og Ingibjargar. Kaffi á eftir. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni leiðir sam- verustund sunnudagaskólans. Hljóm- félagið syngur, kórstjóri Fjóla Nikulás- dóttir, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi í Ási eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Barnakór kirkj- unnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Hólmfríður S. Jóns- dóttir annast fræðslu. Prestur er Kjart- an Jónsson. Hressing og gott sam- félag á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11 í umsjá Sigrúnar Óskar og Guðmundar. Síðdegismessa kl. 17. Álftaneskórinn leiðir sönginn ásamt hljómsveitinni Lærisveinunum hans. Sr. Stefán Már og Margrét djákni þjóna fyrir altari. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Leiðtogar sunnu- dagaskólans, Steinunn og Steinunn, leiða samveruna ásamt sr. Þórhalli. Örn Magnússon leikur á orgelið. Söng- flokkur ungmenna frá Lettlandi tekur þátt í guðsþjónustunni. Kaffi og önnur hressing á eftir. Tómasarmessan kl. 20. Sr. Magnús Björn Björnsson prédikar. Elskið ykkur sjálf og aðra, en Guð mest. Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt Tómasarmessusönghópnum. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11 í umsjá Petru, Daníels og Jónasar Þóris. Maríumessa kl. 14. Öll tónlistin verður sungnar Ave Maríur; einsöngv- arar og kammerkór Bústaðakirkju flytja. Maríutextar lesnir, stjórnandi Jónas Þórir. Prestur er Kristján Björns- son. Messuþjónar aðstoða og hafa heitt á könnunni eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Magn- ús Björn Björnsson. Organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Félagar úr Sam- kór Kópavogs syngja. Fermingarbörn fá söfnunarbauka Hjálparstarfs kirkj- unnar. Súpa í safnaðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er messa á íslensku. DÓMKIRKJAN | Hátíðarmessa vegna 220 ára afmælis kirkjunnar. Séra Þórir Stephensen prédikar og fyrrverandi prestar kirkjunnar þjóna, þau Jakob Ágúst Hjálmarsson og Anna Sigríður Pálsdóttir ásamt settum sóknarpresti, Sveini Valgeirssyni. Dagbjört Andrésdóttir syngur einsöng, Dómkórinn og organisti er Kári Þor- mar. Helga Hjálmtýsdóttir, Marinó Þor- steinsson og Ólöf Sesselja Ósk- arsdóttir lesa. Messukaffi í safnaðarheimilinu. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 10.30. Messa kl. 18. Sr. Þor- geir Arason sóknarprestur predikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar og fermingarbörn lesa ritningarlestra og bænir. Kór Egilsstaðakirkju syngur, organisti Torvald Gjerde. Haustsúpa að hætti Ástu Sigfúsdóttur borin fram í kirkjuvængnum eftir messu. FELLA- og Hólakirkja | Æskulýðs- messa kl. 11 í umsjá Péturs, Írisar og Ástu að ógleymdri brúðunni Viktoríu. Krakkarnir úr æskulýðsstarfinu taka þátt í messunni. Prestur Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Meðhjálpari Krist- ín Ingólfsdóttir. Litrófið syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Hljóm- sveit kirkjunnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta kl.14. Séra Hjörtur Magni Jó- hannsson leiðir stundina. Sönghópur- inn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Fjölskyldu- guðþjónusta kl. 11 Söngur, leikur, fræðsla, brúðuleikhús og fjör fyrir börnin. Sr. Guðmundur Guðmundsson og Eydís Ösp Eyþórsdóttir Æskulýðs- fulltrúi þjóna. Kvöldmessa kl. 20. Frelsi, siðbót eða bylting? Sr. Guð- mundur Guðmundsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgu- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur. Salný Vala Ósk- arsdóttir, nemandi í Söngskólanum í Reykjavík, syngur einsöng. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurð- ardóttir. Undirleikari er Stefán Birki- sson. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Organ- isti: Hilmar Örn Agnarsson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Matthías Guðmundsson. Undirleikari er Stefán Birkisson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. Umsjón hafa Silvía, Ásta Lóa o.fl. Messa kl. 11. Messu- hópur þjónar. Félagar í kirkjukór Grensáskirkju syngja, einsöng syngur Þórhildur Kristinsdóttir nemandi í Söngskólanum í Rvík. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur . Ólafur Jó- hannsson. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10. Þorvaldur Hall- dórsson sér um tónlist GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta í hátíðasal klukkan 14. Auður Inga Einarsdóttir heimilis- prestur þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org- anista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Skírnir Garðason, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðar- kirkju syngur. Sunnudagaskólinn, um- sjónarmenn Sigurður og Andrea Ösp. Hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra að koma í messu. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálp- ari Guðný Aradóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guð- mundur Sigurðsson. Félagar í Bar- börukórnum syngja. Söngur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Kaffi- sopi og djús eftir stundina. HALLGRÍMSKIRKJA | 30 ára vígslu- afmæli Hallgrímskirkju. Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Sr. Karl Sig- urbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestum safnaðarins. Mótettukórinn og Alþjóðlega barokk- sveitin syngja og leika, stjórnandi Hörður Áskelsson, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Fræðslustund kl. 10, forseti Íslands dr. Guðni Th. Jó- hannesson flytur ávarp, barna- og ung- lingakór kirkjunnar syngur, stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir, einnig syngur Bára Grímsdóttir við undirleik Chris Foster. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur undir stjórn Þor- gerðar Ingólfsdóttur. Kórfélagar syngja forsöng, leika á hljóðfæri, lesa ritningarlestra og aðstoða við altaris- þjónustu. Organisti Kári Allansson. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur prédikar og þjónar fyrir altari. Súpa og brauð í Safnaðarheimilinu eftir messu. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Kl. 20 verður messa á ljúfum nótum. Kirkjukórinn syngur við undirleik Hug- rúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Fermingarbörn 2017 eru sérstaklega hvött til að mæta ásamt foreldrum. Sunnudaga- skóli kirkjunnar er kl. 11. Tekið verður á móti Jólaskókössum í Hólaneskirkju fyrir Skagaströnd og nágrenni laug- ardaginn 29. október frá kl. 13-16. HRAFNISTA | Guðsþjónusta kl. 11 í Menningarsalnum Hafnarfirði. Hrafn- istukórinn leiðir safnaðarsöng. Böðvar Magnússon spilar á orgel. Ritningar- lestra les Ingibjörg Hinriksdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar og þjónar fyrir altari. HVALSNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20 í Hvalsneskirkju. Kvennakór Suðurnesja leiðir tónlistina undir stjórn Dagnýjar Þórunnar Jónsdóttur, undirleikari undir Ave Maríum er Geir- þrúður Fanney Bogadóttir. Organisti Steinar Guðmundsson. Fermingar- börn aðstoða á margvíslegan hátt. Bára Friðriksdóttir sóknarprestur. HVAMMSKIRKJA í Norðurárdal | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Jónína Erna Arnardóttir. Prestur Elínborg Sturludóttir. ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaup- mannahöfn | Guðsþjónusta kl. 14 í Skt. Pálskirkju. Íslenski kvennakórinn syngur undir stjórn Sigríðar Eyþórs- dóttur. Orgelleikur Steinar Logi Helga- son. Altarisganga. Prestur Ágúst Ein- arsson. Kirkjukaffi í Jónshúsi og aðalfundur safnaðarstarfsins. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna- kirkja kl. 11. Samkoma með lofgjörð kl. 20. Friðrik Schram predikar. Heilög kvöldmáltíð. Kaffi og samfélag eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.11. Súpa og brauð. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjón- ar. Bleikmessa í samstarfi við Krabba- meinsfélag Suðurnesja kl. 20. Kór- félagar syngja tesasálma við stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. Miðvikudagur kl. 12. Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og brauð í boði. KÓPAVOGSKIRKJA | Bókmennta- guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arn- arson þjónar fyrir altari. Dr. Grétar Halldór Gunnarsson fjallar um bókina „Það sem við tölum um þegar við töl- um um Guð“. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors. Sunnudagaskólinn með listasmiðju formi verður í safn- aðarheimilinu Borgum ásamt leik- urum og tónlistarfólki. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar- prestur þjónar. Organisti er Árni Heið- ar Karlsson. Graduale Nobili leiðir safnaðarsöng. Aðalsteinn Guð- mundsson kirkjuvörður og messu- þjónar aðstoða við helgihaldið. Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma eftir sameiginlegt upphaf. Snæv- ar og Sara taka á móti. Kaffi, djús og ávextir eftir stundina. Starf aldraðra miðvikudaga kl. 12- 15.30. LINDAKIRKJA í Kópavogi | 11 Sunnudagaskóli. 20. Gosp- eltónleikar. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Miðaverð 1.000 kr. Ókeypis fyrir ferm- ingarbörn og yngri. NESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Hljómur, kór eldri borgara í Nes- kirkju, syngur og leiðir söng undir stjórn Hildigunnar Einarsdóttur. Org- anisti Steingrímur Þórhallsson. Sunnudagaskóli í umsjá Stefaníu Steinsdóttur, Katrínar H. Ágústs- dóttur og Ara Agnarssonar. Rebbi og Vaka kíkja við. Hressing á kaffitorgi eftir helgihaldið. PRESTBAKKAKIRKJA Hrútafirði | Messa kl. 14. Stund fyrir börnin verð- ur í messunni og á eftir er samvera í safnaðarheimilinu. Organisti Elínborg Sigurgeirsdóttir, prestur Guðni Þór Ólafsson. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleitis- braut 58-60, 3. hæð. Ræðumaður Guðbjörn Gunnarsson. Túlkað á ensku. Barnastarf. SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Elvis-messa kl. 20. Kirkjukórinn syngur, einsöngur Íris Olga Lúðvíksdóttir og Ægir Ásbjörns- son. Undirleikur: Jóhann, Margeir og Fúsi Ben ásamt Rögnvaldi organista. Prestur Sigríður Gunnarsdóttir. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11, barnakór Seljakirkju syngur undir stjórn Rósalindar Gísladóttur. Biblíusaga og Brúðuleikritið verður einnig á sínum stað. Ávaxtahressing í lokin og mynd til að lita. Messa kl. 14, sr. Bryndís Malla Elí- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Tómas Guðni Eggertsson leikur á org- el og Kór Seljakirkju syngur. Kaffi að messu lokinni. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Á slóðum mormóna í Vesturheimi. Hildigunnur Hlíðar talar. Guðsþjónusta og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Tómas Sveins- son þjónar. Ari Ólafsson syngur ein- söng. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar og sam- félag eftir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa á pílagrímadögum í Skálholti. Prestar, Axel Njarðvík og Halldór Reynisson. Gestir frá tónlistarháskólanum í Árós- um flytja tónlist í messunni ásamt Jón Bjarnasyni organista. Hádeg- issúpa í Skálholtsskóla gegn vægu gjaldi. SÓLHEIMAKIRKJA | Kirkjuskóli kl. 13. Allra heilagra messa kl. 14. Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altari. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Ritning- arlestur les Valgeir F. Backman. Með- hjálpari er Valdís Ólöf Jónsdóttir. STOKKSEYRARKIRKJA | Sunnu- dagaskóli kl. 14. Jóhanna Ýr leiðir stundina og fermingarbörn aðstoða. Sr. Kristján Björnsson. ÚTSKÁLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17. Fermingarbörn munu aðstoða á margvíslegan hátt. Organisti er Steinar Guðmundsson. Bára Friðriks- dóttir sóknarprestur. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Vídal- ínskirkju syngur. Organisti og kórstjóri Jóhann Baldvinsson. Flautuleikari: Hallfríður Ólafsdóttir. Stefán Már Gunnlaugsson prédikar og þjónar fyrir altari. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Svavar Knútur flytur tónlist. Sunnudagaskól- inn kl. 11 í umsjá Maríu og Bryndísar. Veitingar eftir messur í safnaðar- salnum. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón- usta beggja Njarðvíkursókna kl. 11. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir söng við undirleik Stefáns Helga Krist- inssonar. Meðhjálpari Pétur Rúðrik Guðmundsson. Sunnudagaskóli beggja sókna kl. 11 í umsjá Heiðars og Péturs. Kaffi, djús og kökur að skóla loknum. Orð dagsins Skattpeningurinn (Matt. 22) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Þórshafnarkirkja. Minningar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.