Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 78
78 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
✝ Jóna KristínÁgústsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 9.
ágúst 1957. Hún
lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans við
Hringbraut 18.
október 2016.
Foreldrar henn-
ar eru Nanna Guð-
jónsdóttir, f. 27.
september 1928, og Ágúst
Ólafsson, f. 1. ágúst 1927, d.
29. júlí 2003.
Jóna var önnur í röðinni af
sex systkinum, en þau eru: 1)
Jóhann Grétar Ágústsson, f. 7.
júní 1955. 2) Ágústa Salbjörg
Ágústsdóttir, f. 24. febrúar
1959. 3) Jenný Ágústsdóttir, f.
2. janúar 1961. 4) Ólafur Gísli
Ágústsson, f. 15. ágúst 1965.
5) Jón Eysteinn Ágústsson f.
Jóna lauk gagnfræðaprófi
við Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja. Hún hóf ung störf
við Fiskiðjuna í Vestmanna-
eyjum. Síðar starfaði hjá
Vinnslustöð Vestmannaeyja,
Ísfélagi Vestmannaeyja, Ís-
lenskum matvælum, ÍBV
íþróttafélagi og lauk starfs-
ferli sínum við heimilishjálp
hjá Vestmannaeyjabæ.
Jóna var öflug þegar kom
að sjálfboðavinnu, hvort sem
það var við íþróttahreyf-
inguna hjá Tý eða ÍBV,
Rauða krossinn eða krabba-
meinsfélagið. Hún var einnig
meðlimur í Sinawik-klúbbi
Vestmannaeyja. Jóna var mik-
il félagsvera og leið best í
margmenni. Hún var dugnað-
arforkur og baráttukona og
fengu sjálfboðaliðastörfin vel
að njóta krafta hennar. Þrátt
fyrir erfið veikindi gafst hún
aldrei upp og barðist til loka-
dags.
Útför Jónu verður gerð frá
Landakirkju í Vestmanna-
eyjum í dag, 29. október
2016, og hefst athöfnin klukk-
an 14.
19. október 1970.
Hinn 30. maí
1987 gifttist Jóna
lífsförunaut sín-
um, Magnúsi Birgi
Guðjónssyni, f. 13.
júlí 1949. Magnús
Birgir er sonur
hjónanna Guðjóns
Magnússonar, f. 4.
apríl 1921, d. 4.
janúar 2001, og
Önnu Sigríðar
Grímsdóttur, f. 14. júlí 1928.
Jóna og Magnús Birgir eign-
uðust þrjú börn en þau eru: 1.
Guðjón Magnússon, f. 20. sept-
ember 1983. 2. Anna Kristín
Magnúsdóttir, f. 6. mars 1987,
unnusti Toke Ploug Henrik-
sen, f. 21. mars 1987. 3. Ólafur
Vignir Magnússon, f. 12. febr-
úar 1993, unnusta Halla Krist-
ín Kristinsdóttir, f. 14. apríl
1997.
Kallið er komið,
komin er nú stundin
ómar í huga okkar er við
kveðjum móður okkar eftir
hetjulega baráttu hennar við ill-
vígan sjúkdóm. Ekki óraði okkur
fyrir því að þú værir að leggja
upp í þína hinstu ferð þegar þú
sóttir Reykjavík heim í byrjun
október.
Mamma lét okkur ávallt líða
eins og það væri ekkert sem hún
gæti ekki gert. Hún horfðist í
augu við lífið af hreinskilni og
virðingu, var ekkert að tvínóna
við hlutina því hálfkák var eitt-
hvað sem hún gat engan veginn
unað. Hún var ætíð boðin og búin
að leggja hönd á plóg og reyndi
eftir bestu getu að gera öllum til
hæfis, var ekkert að spyrja um
stétt eða stöðu.
Mömmu leið hvergi betur en
með prjónana í hendi, afkasta-
getan var á við meðalstóra verk-
smiðju. Íbúar Vestmannaeyja
nutu líka góðs af þessu áhuga-
máli því um leið og út spurðist að
einhver ætti von á sér þá var
mamma byrjuð að prjóna húfu,
vettlinga og sokka fyrir verðandi
foreldra.
Það var fátt sem kom mömmu
úr jafnvægi og oft reyndi nú á
þolrifin þegar við systkinin tók-
um okkur til og gerðum einhvern
óskunda af okkur sem varla telst
prenthæfur og skipti þá engu
hvort um væri að ræða fall í
hænsnaskítshaug suður á eyju
við kanínuveiðar, þegar Áshamar
6 varð hér um bil alelda vegna
tilrauna við reyksprengjugerð á
eldavélinni eða skömmustuleg
heimkoma í fylgd lögreglu vegna
„láns“ á kappróðrarbáti sem
endaði í sjávarháska. Það tók
hana ekki langan tíma að fyr-
irgefa þess háttar gjörðir.
Karakter mömmu kom ber-
sýnilega í ljós þegar hún fékk
þær fréttir að hún hefði verið
greind með krabbamein á loka-
stigi. Hún lagðist ekki í kör við
þessar fregnir, hér var á ferðinni
ákveðið verkefni sem hún ætlaði
sér að sigrast á og það með
glæsibrag. Með jákvæðnina og
einstakan baráttuvilja að vopni
(já og dass af þrjósku sem hún
var nú þekkt fyrir) vaknaði hún á
hverjum morgni staðráðin í að
gera daginn í dag betri en gær-
daginn, bæði fyrir sig en samt
aðallega alla aðra. Aldrei urðum
við þess vör að hún kveinkaði
sér, ekki einu sinni, sama hversu
slæmir dagarnir voru og alltaf
var svarið það sama „ég hef það
bara ágætt“ ef hún var spurð
hvernig henni liði. Í raun má
segja að hún hafir sigrast á sjúk-
dómnum með því að takast það
að láta hann aldrei stjórna lífi
sínu.
Elsku mamma, tómarúmið
sem nú hefur myndast í lífi okkar
eftir að þú kvaddir er stórt, sagt
er að tíminn lækni öll sár og í
þeirri von munum við halda
áfram göngu okkar í þessu lífi.
Eitt er víst, þetta sár verður
lengi að gróa en til allrar ham-
ingju eru hugur okkar og hjarta
stútfull af yndislegum minning-
um sem aldrei munu gleymast og
verða okkur ætíð ofarlega í huga
og munum við seint þreytast á að
deila þessum minningum með
öllu því fólki sem þekkti þig og
dáði. Okkur hefur verið tjáð að
handbragð þitt endurspeglist í
okkur, við vonum svo innilega að
það séu orð að sönnu því ef svo
er þá vitum við fyrir víst að lífið
muni koma til með að leika við
okkur með einum eða öðrum
hætti. Ef við getum gefið helm-
inginn af því sem þú gafst af þér
í þessu lífi, af okkur, þá getum
við litið sátt yfir farinn veg þegar
okkar tími kemur.
Það eru engin orð til yfir það
hversu mikið við elskum þig og
við munum seint geta þakkað
fyrir það að fullu að hafa fengið
að njóta þeirra forréttinda að
hafa þig í lífi okkar.
Því mamma skildi flest.
Já, mamma hún var best.
Hún bætti öllu úr, svo undarlega fljótt.
Guðjón, Anna Kristín
og Ólafur Vignir.
Erfiðu stríði er lokið og við
þökkum Guði fyrir að hún fékk
hvíldina úr því sem komið var.
Hún ætlaði ekki að gefast upp en
eins og svo oft áður fékk hún
engu ráðið.
Hún Jóna Kriss, eins og ég
kallaði hana alltaf, var bara fjög-
urra ára þegar við Gaui föður-
bróðir hennar fluttum á rishæð-
ina á Austurvegi 22 árið 1961.
Hún var yndisleg lítil bjarthærð
stúlka nr. tvö af fjórum systk-
inum, þegar þetta var, en seinna
bættust við tveir drengir svo það
var alltaf fjör og nóg að gera á
neðri hæðinni.
Við vorum barnlaus fyrstu tvö
árin og var Jóna mín dugleg að
skjótast upp til okkar í rólegheit-
in. 1963 og 1964 eignuðumst við
svo drengina okkar tvo og ein-
hvern veginn þótti henni meira
gaman að passa þá en systkini
sín! Svo áttum við svo fínan
barnavagn sem Siggi Vídó keypti
í Englandi og fór hún því oft með
mér út að ganga. Jóna átti góða
æsku, varð falleg ung stúlka, ljúf
og góð, fékk meðal annars verð-
laun í skólanum fyrir fallega og
góða framkomu.
Hún fór snemma að vinna,
eins og unglingar gerðu í þá
daga, var dugleg til vinnu, heið-
arleg og vinsæl. Þegar sá tími
kom giftist hún Bigga sínum og
eignaðist þrjú mannvænleg börn
sem hún elskaði og var stolt af
og vildi allt fyrir þau gera.
Hún var ótrúlega hjálpfús og
drífandi og voru þær óteljandi
skírnar- og fermingarveislurnar
sem hún hélt fyrir systkini sín og
ófáar eru afmælisveislurnar sem
hún hefur hjálpað mér við.
Núna síðustu ár, áður en hún
veiktist hjálpaði hún mér í hverri
viku við þrif og tiltekt á heim-
ilinu. Við áttum yndislegar
stundir saman þegar við fengum
okkur kaffisopa og stundum
sérrílögg eftir tiltektirnar. Rifj-
uðum upp gömlu góðu dagana og
jafnvel hjálpaði hún mér við
prjónaskap. Hún var mikil
handavinnukona.
Elsku hjartans Jóna Kriss, við
munum sakna þín mikið og send-
um Bigga, börnunum, mömmu
þinni og systkinunum, tengda-
fólki, vinum og vandamönnum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hólmfríður og Guðjón.
Elsku Jóna.
Það er með miklum trega sem
ég skrifa þessi minningarorð um
þig. Ég er samt sem áður mjög
þakklát fyrir að hafa kynnst þér
og þekkt þig í öll þessi ár.
Ykkar heimili var í raun mitt
annað heimili þegar ég var barn,
þar sem ég og Anna Kristín lék-
um okkur svo mikið saman. Og
þið Biggi hafið alltaf tekið vel á
móti mér með ykkar góðu nær-
veru. Þú varst mjög hress og já-
kvæð að eðlisfari og það var allt-
af gott að spjalla við þig.
Þrátt fyrir að ég hafi ekki hitt
ykkur hjónin oft síðasta áratug-
inn eða svo, eða síðan ég flutti
frá Vestmannaeyjum, hef ég
ávallt hugsað hlýlega til ykkar og
hef alltaf verið meðvituð um það
að væri gagnkvæmt.
Ég mun alltaf varðveita minn-
ingarnar um allar góðu stund-
irnar með þér, á Áshamrinum og
víðar.
Ég minnist þín sem góðhjart-
aðrar og duglegrar konu með
góðan húmor, og mun aldrei
gleyma þér.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans
fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver
und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Elsku Biggi, Anna Kristín,
Guðjón og Ólafur Vignir og aðrir
aðstandendur: Ég votta ykkur
mína dýpstu samúð. Megi Guð
gefa ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Kristín Stefánsdóttir.
Kæra vinkona. Að eiga þig
sem vinkonu var mér mjög kært.
Þú varst sú sem alltaf var hægt
að leita til og traustsins verð,
kletturinn á bak við sterka dug-
lega trúfasta vinkonu sem ég
kynntist 1972 í Fiskiðjunni í
Vestmannaeyjum þar sem við 14
ára gamlar vorum að vinna í
humri sumarlangt. Þú komst til
mín og kenndir mér tökin á
humrinum, þá var nú oft gantast
og hlegið. Síðan hittumst við aft-
ur 1976, þá í Vinnslustöð Vest-
mannaeyja, síðan lá leið okkar
saman í Ísfélag Vestmannaeyja
og síðasti vinnustaðurinn okkar
saman var Íslensk matvæli í
Vestmannaeyjum. Við hlógum
oft að því að við gætum ekki unn-
ið nema á sama stað og lýsir það
vináttu okkar svo vel. Einnig
vorum við samherjar í Kvenna-
deild Týs og síðan ÍBV. Þú varst
svo mikil kjarnakona, elsku Jóna
mín, svo vel gerð af Guðs náð og
vönduð til verka. Allar prjónuðu
peysurnar þínar sögðu til um
handverk þitt. Heimilið þitt og
Bigga svo hlýlegt og vinalegt og
stóð öllum alltaf opið.
Ekki má gleyma yndislegu
stundunum sem við áttum saman
í desember í þó nokkuð mörg ár.
Þá gerðum við alltaf sörur saman
og þegar ég kom varst þú alltaf
búin að baka allar kökurnar og
ekkert eftir nema setja krem og
súkkulaði.
Nú kveð ég, kæra vina, með
þakklæti og góðar minningar um
yndislega vinkonu.
Elsku Biggi, Anna Kristín,
Guðjón og Ólafur Vignir, megi
góður Guð styrkja ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Kveðja,
Ragnheiður Víglundsdóttir.
Elsku Jóna mín, þú spilaðir
vel úr þeim spilum sem þú fékkst
á hendi, varst dugnaðarforkur,
gekkst allra þinna ferða og áttir
þér enga óvini. Heimili þitt stóð
öllum opið hvort sem það var fyr-
ir fjölskyldu eða vini. Fengu vin-
ir barna þinna, heilu hóparnir, að
njóta góðs af , líka í veikindun-
um, þú hafðir alltaf tíma og gleði
fyrir þau. Jóna mín, þú fékkst
ekki tromp á hendi í veikindum
þínum, greindist með krabba-
mein á 4. stigi fyrir rúmu ári sem
tók þig svo að lokum þann 18.
október, eftir hetjulega baráttu.
Áður hafðir þú gengið til sér-
fræðinga í nálastungu og raf-
meðferð vegna lömunar hægra
megin í andliti sem þú uppskarst
eftir eyrnaaðgerð. „Þetta er bara
svona,“ var alltaf þitt svar.
Æðruleysið og jákvæðnin var
engu lík í veikindum þínum,
elsku Jóna mín. Heimsókn mín
fyrir síðustu Reykjavíkurferð
þína á leið í geisla sem þú og fjöl-
skyldan bunduð miklar vonir við
er mér ógleymanleg.
Hvað segir þú, Jóna mín?
Veistu, Kristný, ég þarf ekki
að kvarta.
Nei, örugglega ekki, liggjandi
í sófa, að reyna að horfa á sjón-
varpið með lepp fyrir öðru auga,
Jóna Kristín
Ágústsdóttir
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 210 Garðabær
sími 842 0204 www.harpautfor.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR VILHELM GARÐARSSON
vélstjóri,
Árnastíg 8,
Grindavík,
er lést laugardaginn 22. október, verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 14.
.
Villhjálmur Sigurðsson Helena R. Jónsdóttir
Jens Sigurðsson
Garðar Hallur Sigurðsson Þóra Kristín Sigvaldadóttir
J. Harpa Sigurðardóttir Kristján Steingrímsson
Hjalti Páll Sigurðsson Unnur Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín, mágkona og móðursystir,
LILJA SIGURÐARDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir,
lést á Landspítalanum 24. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
.
Guðrún Sigurðardóttir, Valur Steinn Þorvaldsson,
Sigríður Þóra Valsdóttir, Sigurður Már Valsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
ÞORKELL ELÍAS KRISTINSSON,
Flétturima 28, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
hinn 25. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
.
Svava Ólafsdóttir,
Guðrún Þorkelsdóttir,
Jóhann Þorkelsson, Rannveig Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HÖRÐUR GUÐMANNSSON
frá Skálabrekku í Þingvallasveit
er látinn.
Útförin fer fram í kyrrþey.
.
Guðrún Þóra Guðmannsdóttir,
Óskar Arnar Hilmarsson,
Guðmann Reynir Hilmarsson og fjölskyldur.
Elskulegur föðurbróðir minn,
NÍELS ÁRNASON
frá Hafnarfirði,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
andaðist 24. október. Útförin mun fara fram
í kyrrþey að hans ósk.
.
Helga Kristinsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Yndisleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGRÚN GYÐA SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Lambhaga 26,
Selfossi,
lést miðvikudaginn 26. október.
.
Ólafur Th. Ólafsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.