Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
„Geturðu hringt í mig eftir klukku-
tíma? Ég er að fara að kjósa,“ segir
Egill Sæbjörnsson þegar ég slæ á
þráðinn til hans laust fyrir hádegi í
gær. Að sjálfsögðu; ekki fer maður
að hafa af mönnum lýðræðislegan
rétt þeirra. Hvert atkvæði skiptir
máli; ekki síst nú þegar mikið flökt
virðist vera á fylgi flokkanna.
Agli þykir greinilega öruggara að
kjósa utan kjörfundar enda í mörg
horn að líta í dag þegar ný sýning
verður opnuð í Hafnarborg, Bygg-
ing sem vera & borgin sem svið. Um
er að ræða innsetningu og svo sem
nafnið gefur til kynna er listamann-
inum arkitektúr hugleikinn að þessu
sinni.
„Fólk gengur um götur án þess að
pæla mikið í húsum og byggingum í
kringum sig enda hefur það um
margt annað að hugsa. Ef til vill er
samt einhver hluti af undirvitund
þess í samskiptum við umhverfið;
einhver frumheili sem reynir að
greina það sem fyrir augu ber, þar á
meðal byggingar,“ segir Egill.
Honum þykir byggingarlist í sam-
tímanum illu heilli einkennast af
flötu og einföldu yfirborði. „Það er
módernismi sem byrjaði fyrir svona
hundrað árum en er því miður ekki
nægilega örvandi fyrir okkar innri
veru. Það má líkja þessu við að tala
við manneskju sem er eins og tómt
pappírsblað í framan. Það er ekki
hægt að lesa neina sögu út úr andliti
hennar.“
Engar „rjómatertur“
Hann hvetur arkitekta til að gera
byggingar skrautlegri og fallegri án
þess þó að fara yfir í einhverjar
Hundertwasser og Gaudi „rjóma-
tertur“. „Einfaldleikinn er alls ekki
slæmur en það þarf bara að vera
eitthvað meira spennandi inni á
milli. Þannig fáum við áhugaverðara
samtal. Annars er harðbannað að
nota orðið „skraut“ í þessu sam-
hengi. Það er tabú. Þess vegna hef
ég fundið upp nýtt orð yfir skraut,
„flókið yfirborð“, sem er ágætt.“
Hann segir þetta endurspeglast í
sýningunni í Hafnarborg en í saln-
um hefur verið stillt upp hurðum,
gluggum og svölum í fullri stærð.
„Þetta var búið til úr brauðdeigi sem
var bakað og síðan stækkað upp
með öllum sínum sprungum, beygl-
um og ójöfnunum,“ segir Egill en
frummyndir verkanna eru að hluta
sóttar í Bakarí, viðburð sem haldinn
var í Hafnarborg í vor sem leið. Þar
var almenningi boðið að móta bygg-
ingarlist í deig sem síðan var bakað.
Allt verður lífrænna
„Það voru mjög margar og mis-
munandi hendur sem komu að verki
og sumar hurðirnar líta út fyrir að
vera úr Barbapabbabók sem er
mjög skemmtilegt. Nú er salurinn
hérna í Hafnarborg, sem alla jafna
er frekar þurr, kominn í samtal við
þessa hluti og það verður gaman að
skoða. Ég bað fólkið sem kom að
búa til arkitektúr en þegar allt þetta
kemur saman, hurðir, svalir,
gluggar og svo framvegis, þá verður
til bygging. Ein vera. Það er mun
skemmtilegra að skoða þetta gegn-
um brauð en AutoCad, því það fletur
út og gerir beint og leiðinlegt meðan
brauðið fer alveg hina leiðina.
Beyglar allt sem þú gerir og allt
verður lífrænna.“
Að mati Egils er ekki nauðsynlegt
að arkitektar fari þá leið en hann
hvetur þá þó til að gæta sín á tölv-
unum sem hafa tilhneigingu til að
fletja allt út. „Þá verða húsin eins og
persónur sem maður nennir ekki að
eyða orði á, vegna þess að þær eru
svo leiðinlegar.“
Tröllin eru víða
Egill verður fulltrúi Íslands á
Feneyjatvíæringnum á næsta ári og
segir því verkefni miða vel. „Ég er
að vinna þetta með nokkrum tröllum
sem ég kynntist fyrir fáeinum árum.
Þau eru bara í góðum fíling. Tröllin
ætla að vera með kaffihús; þannig að
þetta verður mjög gaman. Tröll eru
mjög skemmtilegar verur.“
Og snar þáttur í sögu þessarar
þjóðar. Finnst þér við þurfa að vera
meira í tengslum við álfa og tröll,
eins og forðum daga?
„Tröllin eru víða í samfélaginu. Til
dæmis heill bekkur í barnaskóla
sem ákveður að leggja einn nemand-
ann í einelti. Það er tröll. Eða stór-
fyrirtæki sem er sama um alla sem
það er að græða á. Það er tröll. Það
eru allskonar stórar verur og kraft-
ar til í samfélaginu sem ekki eru
séðir lengur með augum ævintýr-
anna.“
Egill hefur búið í sautján ár í
Berlín og er þar með sína vinnu-
stofu. Honum þykir þó alltaf jafn
gaman að koma heim og hefur verið
hér sjö sinnum á þessu ári. „Ísland
er skemmtilegt og spennandi land
sem býður upp á mikla möguleika
enda er samfélagið dýnamískara og
hreyfist hraðar en þessi stóru sam-
félög úti í heimi.“
Honum þykir gróskan mikil, bæði
í listum og á öðrum sviðum sam-
félagsins. „Það hefur margt breyst á
þessum sautján árum. Ekki endilega
vegna þess að Íslendingar séu svo
klárir, heldur vegna þess að heimur-
inn hefur breyst og um leið hefur
hann breytt Íslandi. Því megum við
ekki gleyma.“
Brauðið betra en tölvurnar
Egill Sæbjörnsson með innsetninguna Bygging sem vera & borgin sem svið í Hafnarborg Fer
með tröll á Feneyjatvíæringinn á næsta ári Segir Ísland hreyfast hraðar en stærri samfélög
Morgunblaðið/RAX
Listamaðurinn Egill Sæbjörnsson á sýningu sinni í Hafnarborg. „Einfaldleikinn er alls ekki slæmur en það þarf
bara að vera eitthvað meira spennandi inni á milli,“ segir Egill sem verður með listamannaspjall á morgun kl. 14.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
T E X T I 15.9 - 8.1.2017
Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 12.2.2017
JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 29.01 2017
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Leiðsögn á ensku alla föstudaga kl. 12.10
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
KAFFISTOFA heimabakaðar kökur
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017
Leiðsögn með sýningarstjóra sunnudaginn 30. október kl. 14.
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Kaldal í tíma og rúmi á Vegg
Myndir tala. Fimmtán tvennur –
Ljósmyndasýning í minningu Eggerts Þórs Bernharðssonar á Torgi
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU