Læknablaðið - 01.11.2016, Side 41
sildenafil 50 mg og 100 mg
sildenafil 50 mg og 100 mg
Notkunarsvið: Ristruflanir hjá karlmönnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Samhliðanotkun efna sem gefa frá sér köfnunarefnisoxíð (s.s. amýlnítrít) og hvers konar
nítrata. Karlmönnum sem ráðið er frá því að stunda kynlíf skal ekki gefa lyfið. Sjúklingar sem tapað hafa sjón á öðru auga vegna framlægs sjóntaugarkvilla vegna blóðþurrðar án slagæðabólgu eiga ekki að nota
lyfið. Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi, lágþrýsting, sjúklingar sem nýlega hafa fengið heilablóðfall eða kransæðastíflu eða hafa þekktan arfgengan hrörnunarsjúkdóm í sjónhimnu mega ekki nota lyfið.
Skammtar: Ráðlagður skammtur er 50 mg sem tekinn er eftir þörfum um það bil 1 klst. fyrir samfarir. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 100 mg eða minnka hann í 25 mg. Hámarksskammtur er 100 mg.
Hámarksskammtatíðni er einu sinni á sólarhring. Skert nýrnastarfssemi: Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi er mælt með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn
í 50 mg eða 100 mg. Skert lifrarstarfsemi: Mælt er með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Lyfið
er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára. Önnur lyf: Mælt er með að gefa sjúklingum sem eru samtímis meðhöndlaðir með CYP3A4 hemlum, öðrum en
ritonaviri, 25 mg upphafsskammt. Ritonavir á ekki að nota samtímis sildenafili. Til að draga úr líkum á réttstöðuþrýstingsfalli eiga sjúklingar sem nota alfa-blokka
að vera í stöðugu ástandi áður en meðferð með sildenafili hefst. Einnig ætti að hugleiða að hefja meðferð með 25 mg skammti af sildenafili. Upplýsingar um
aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er LYFIS ehf.
Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. Lyfið er lyfseðilsskylt (R) og er ekki með almenna greiðsluþátttöku. Hámarksverð: Sjá verð í lyfjaverðskrá. SmPC: Janúar 2015.
50 mg
með deilistriki
9 mm
100 mg
12 mm
töflur í pakka
24
NÝJUSTU
FRÉTTIR
Nú er hver tafla
af sildenafili
enn ódýrari
Sildenafil LYFIS
markaðssett í
24 stk. pakkningu